Hermes - 01.12.1988, Blaðsíða 113
111
Á eitt hundraö ára afmæli fónasar Jónssonar var haldin í Hamragöröum sýning á myndum úr //77
hans og starfi. Hér sést Pétur Sigurgeirsson biskup, ásamt dætrum fónasarþeim Geröi ogAuöi.
Árið 1972 kom árbók NSS út í fyrsta
sinn og var útkoma hennar upphafið að
merkum þætti í starfsemi NSS. Þetta
framtak styrkti mjög alla tilveru sam-
bandsins bæði inn á við og þó ekki síður
út á við, þar sem fjölmargir utan þess
hafa keypt bækurnar sem nú eru orðnar
11. Ritstjóri þriggja fyrstu bókanna var
Sigurður Hreiðar Hreiðarsson en hinna
átta Guðmundur R. Jóhannsson. Þar
sem þeir unnu jafnframt mikið starf að
útgáfu Hermesar er óhætt að segja að
þeir hafi unnið mjög mikið og fórnfúst
starf í þágu NSS, sem vissulega hefur
skipt sköpum fyrir tilvist þess.
Reynir Ingibjartsson, á einnig stóran
hlut að máli þar sem árbækurnar eru
annarsvegar, en hann vann mikið starf
við dreifingu og sölu bókanna, sem varð
til þess að enn eitt mikilvægt skref í sögu
NSS var stigið en það voru kaup á orlofs-
húsi að Bifröst. Frá og með 1. febrúar
1987 er NSS eigandi að orlofshúsinu nr.
27 sem ber nafnið Syðri-Búð. Varð þar
nokkurra ára draumur að veruleika og
gerði sala á birgðum af árbókinni fjár-
hagslega kleift að ráðast í þetta stórvirki
á mælikvarða sambandsins sem aldrei
hefur haft af stórum sjóðum að státa.
Framtakið hefur mælst vel fyrir og skipa
fulltrúar afmælisárganganna, þ. e. 5,10,
15, 20, 25, 30 o. s. frv. húsnefndina
hverju sinni en afmælisárgangar hafa
haft forgang um not af húsinu yfir sumar-
mánuðina júní - ágúst.
Árið 1979 var sett á laggirnar skóla-
nefnd Samvinnuskólans og kom þá fram
sú hugmynd af hálfu NSS að þeir ættu að
hafa fulltrúa í nefndinni. Niðurstaðan
varð hinsvegar sú að sambandið fékk að
hafa varamann í henni og er hann boðað-
ur á alla fundi nefndarinnar. Núverandi
nefndarmaður er Atli Freyr Guðmunds-
son.
Nemendasamband Samvinnuskólans
var óskabarn, sem annast átti af kost-
gæfni, endaslíkt mjög við hæfi. Óskir eru
eitt, lífið sjálft, raunveruleikinn annað.
Því er svo farið um líf flestra óskabarna
að aðstæðurnar ryðja lífi þeirra mismun-
andi farveg. NSS er löngu fullorðið. Það
er ekki lengur reifabarn í fangi braut-
ryðjendanna. Það hefur orðið að standa
á eigin fótum og aðlagast nýjum mönn-
um og ekki síst nýjum lífsháttum.
Þessari grein er ætlað að gera nokkra
grein fyrir starfsemi NSS í 30 ár. Það er
hinsvegar svo að ef allt sem drifið hefur á
daga sambandsins og vert væri að geta
um hefði átt að vera með, hefði þessi rit-
smíð þurft að vera margfalt lengri. Hér
eru nefnd nokkur nöfn, en það gefur
auga leið að margir liggja óbættir hjá
garði.
Því hefur hér verið reynt að stikla á
stóru um nokkra þætti í starfsemi NSS og
á eftir er ætlunin að gefa jafnframt örlitla
hugmynd um félagslega samheldni
Bifröstunga utan NSS, sem er ekki síður
athyglisverð. Þá eru hafðar uppi nokkrar
vangaveltur um ýmislegt er félagið og
framtíð þess varðar.
Þetta er Syöri-Búö, orlofshús Nemendasambandsins að Bifröst. Ljósm.: Ásta Nína Benedikts-
dóttir.
Árleg kvöldvaka Nemendasambandsins aö Bifröst hefur jafnan notiö vinsælda. Þar hefur Pálmi
Gíslason sérstööu því hann hefur séö um ýmis skemmtiatriöi á þessum kvöldvökum sextán
sinnum. Hér eru þeir tilbúnir til átaka Pálmi Gíslason, Pétur Óli Pétursson og Guömundur R. fó-
hannsson.