Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Page 70

Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Page 70
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 201470 framfarir í HanDskrifT Hjá grUnnskÓLaBörnUm í reyk javík í þyngsta flokknum rétt og börnin í hópi C minna en 38%. Þetta er vísbending um að leggja þurfi meiri áherslu á kennslu í þungum bókstafaformum en gert er, til þess að tryggja góðar framfarir. Rannsóknir hafa gefið vísbendingar um að meðalskriftargæði geti breyst um hér um bil 10% með gerð forskriftarletursins (Ragnheiður Karlsdóttir, 1997). Munurinn á árangri við að móta bókstafi, mældur í þeim hundraðshluta barna sem ná árangri við að móta bókstafinn, er þrefaldur á milli léttasta og þyngsta bók- stafaformsins. Þetta er vísbending um að mismunurinn á þyngd einstakra bókstafa- forma sé mun meiri en mismunurinn á „þyngd“ einstakra leturgerða. Rannsóknin sýnir að einstök bókstafaform, letureinkenni og tengingar í grunn- skriftinni eru þannig að börn fást ekki til að nota þau. Til dæmis hafa börnin tilhneig- ingu til þess að kringja skörp horn og þau forðast að tengja bókstafina (dæmi á mynd- um 4 og 7). Hagræðing á bókstafaformum og tilhneigingin til að skrifa ótengda skrift eru þekkt fyrirbæri í skrift barna og var umfang þessara tilhneiginga og áhrif þeirra á skriftarhraðann í samræmi við niðurstöður eldri rannsókna á leturgerðum sem svipar til grunnskriftarinnar (Maarse o.fl., 1986; Meulenbroek og van Galen, 1988; Ragnheið- ur Karlsdóttir, 1997; Ragnheiður Karlsdóttir og Þórarinn Stefánsson, 2002; Sassoon o.fl., 1989). Af rannsóknum á framförum enskra barna sem læra skrift samkvæmt forskriftarleturgerðum sem svipar til grunnskriftarinnar hefur Sassoon (1988) dregið þá ályktun að hagræðingu á bókstafaformum miðað við forskrift og tilhneigingu til að skrifa ótengda skrift megi rekja til þess að handskriftarkennslan hafi ekki verið nægilega umfangsmikil til þess að handskriftin hafi náð stöðugleika þegar kröfur um skriftarhraða fara að aukast í 3. til 4. bekk. Athugun á rithandarsýnum úr rannsókn Ragnheiðar Karlsdóttur (1997) leiðir í ljós að engin tilhneiging til þess að hagræða bókstafaformum og skrifa ótengda skrift var fyrir hendi hjá þeim börnum sem skrif- uðu lykkjuskrift. Einnig sést á mynd 5 tilhneiging til afturfarar í 5. og 6. bekk hjá börnunum sem skrifuðu grunnskrift en börnunum sem skrifuðu lykkjuskrift hélt hins vegar áfram að fara fram. Þetta gefur tilefni til þess að álykta að hin ávölu form lykkju- skriftarinnar kunni að vera betur sniðin að handarhreyfingum en grunnskriftin og það er ekki hægt að útiloka að það sé leturgerð grunnskriftarinnar sem, innan þeirra tímamarka sem gefin eru fyrir skriftarkennslu, sé orsök þess að börnin víkja sér undan því að tengja stafina. Niðurstaðan af þessari umræðu um hindranir á framförum er að þeir þættir sem torvelda framfarir virðast að litlu leyti tengjast samhæfingu sjónar og handar. Saman- burður sem hefur verið gerður á framförum barna sem læra lykkjuskrift við framfarir barna sem læra grunnskrift sýnir að það er ekki ástæða til að ætla að gerð forskriftar- letursins hafi veruleg áhrif á framfarirnar (Ragnheiður Karlsdóttir, 1997). Af þeim þáttum sem rannsakaðir voru var það árangur kennslunnar í 2. og 3. bekk hvað varðar þyngstu bókstafaformin sem hafði mest áhrif á framfarirnar og árangur kennslunnar í 2. og 3. bekk var lakari hvað varðar drengi en stúlkur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.