Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Page 92

Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Page 92
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 201492 TÓmsTUnDamennTUn hátt og til að bæta úr því sé árangursríkast að bjóða upp á tómstundamenntun, bæði í skólakerfinu en einnig fyrir hópa sem þurfa sérstaklega á því að halda, t.d. aldraða, fatlaða, fanga, fíkla og unglinga í áhættuhópum (AAPAR, 2011; Caldwell, Bradley og Coffman, 2009; Dattilo, 2002, 2008; Markus, 2000; Ruskin, 2000; Ruskin og Sivan, 2002; Sivan, 2000). Markmið þessarar greinar er að færa rök fyrir mikilvægi tómstundamenntunar og einnig að benda á að slíka menntun ætti að byggja upp innan skólakerfisins á Íslandi, og á meðferðarstofnunum, í fangelsum, meðal aldraðra, atvinnulausra, fatlaðra, inn- flytjenda og fleiri hópa sem búa við hindranir þegar kemur að þátttöku í tómstundum og glíma auk þess við ýmis frítímatengd vandamál. Leitner og Leitner (2012) halda því fram að beini kostnaðurinn sem slíkri innleiðingu myndi fylgja sé mun lægri en kostnaður samfélagsins vegna frítímatengdra vandamála. sKilgrEiningar Og MarKMiÐ Áður en lengra er haldið er rétt að setja fram skilgreiningu á hugtökunum frítími og tómstundir, eins og þau eru notuð í greininni. Frítími er allur sá tími sem eftir er þegar atvinnu og skyldum er lokið og líkamlegum þörfum hefur verið mætt (Leitner og Leitner, 2012). Auðvelt er að finna galla á þessari skilgreiningu, til að mynda getur verið erfitt að ákvarða hvað eru skyldur og hvað ekki (Roberts, 2004). Eigi að síður er þetta sá skilningur sem hér er lagður til grundvallar. Tómstundir er ekki einfaldara orð því fræðimenn hafa ekki komið sér saman um skilgreiningu á hugtakinu. Torkild- sen (2005) bendir t.d. á að það hafi verið rökrætt í yfir 2000 ár hvað séu tómstundir. Blackshaw (2010) gengur enn lengra og heldur því fram að hugtakið sé svo fljótandi að aldrei verði hægt að skilgreina það. Til marks um það séu yfir 200 skilgreiningar til á enska orðinu leisure (Edginton, Coles og McClelland, 2003). Það sem fræðimenn eru helst ósammála um er hvort líta beri á allar athafnir í frítíma sem tómstundir eða ekki. Hér verður stuðst við svohljóðandi skilgreiningu: Tómstundir eru athöfn, hegðun eða starfsemi sem á sér stað í frítíma. Til þess að slík athöfn teljist tómstundir þurfa þó ákveðin skilyrði að vera til staðar: Einstaklingurinn þarf sjálfur að líta svo á að um tómstundir sé að ræða. Athöfnin, hegðunin eða starfsemin þarf að vera frjálst val einstaklingsins, honum til ánægju og leiða af sér eitthvað gott fyrir hann. Kjarni tómstunda felst í vellíðan og aukningu á lífsgæðum (Vanda Sigurgeirsdóttir, 2010). Eins og sjá má er í skilgreiningunni tekin sú afstaða að tómstundir séu eitthvað já- kvætt og uppbyggilegt, en ekki að allt sem gert er í frítímanum sé tómstundir. Þannig er frítíminn yfirhugtak og undir hann falla athafnir sem sumar hverjar flokkast sem tómstundir en einnig aðrar sem eru það ekki, eins og glæpir og ofbeldi. Í beinu fram- haldi má segja að tómstundamenntun hafi þann tilgang að fá sem flesta úr ekki-tóm- stundunum og yfir í tómstundirnar, þ.e. að þjálfa og mennta fólk í að iðka tómstundir í frítíma sínum. Í sögulegu samhengi var fyrst farið að tala um tómstundamenntun á sjöunda áratug síðustu aldar og er Charles Brightbill líklega fyrsti fræðimaðurinn sem fjall- ar um tómstundamenntun en hann fjallaði um hugtakið í bókum um tómstundir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.