Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Qupperneq 93

Uppeldi og menntun - 01.01.2014, Qupperneq 93
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 23(1) 2014 93 vanDa sigUrgeirsDÓTTir (Brightbill, 1960, 1961). Árið 1966 gaf hann svo út fyrstu bókina sem eingöngu er helguð tómstundamenntun og ber hún heitið Educating for Leisure-Centered Living (Brightbill, 1966). Síðan þá hafa ýmsir fræðimenn fjallað um tómstundamenntun. Ásamt Bright- bill eru helstu frumkvöðlarnir, sem hafa unnið mikilvægt starf við að þróa kenningar og aðferðir tómstundamenntunar, þau John Dattilo, John Holland, Richard Kraus, Chester McDowell, Jean Mundy, Atara Sivan, Robert Stebbins og Norma Stumbo (Dieser, 2013). Þá er einnig til töluvert af rannsóknum á áhrifum tómstundamenntunar (sjá t.d. Caldwell, Baldwin, Walls og Smith, 2004; Caldwell o.fl., 2009; Iso-Ahola og Weissinger, 1987; Jansen, 2004). Fram hafa komið ólíkar skilgreiningar á tómstundamenntun. Verður hér fjallað um þrjár slíkar. Fyrst ber að nefna skilgreiningu Ruskin og Sivan (1995). Þau segja að tómstundamenntun sé meðvituð og kerfisbundin menntun með það að markmiði að hafa jákvæð áhrif á notkun frítíma. Slíkar jákvæðar breytingar megi merkja á aukinni þekkingu og færni einstaklinga, á viðhorfum þeirra og tilfinningum til tómstunda og hegðun í frítímanum. Svo taka þau einnig fram að tómstundamenntun geti átt sér stað við formlegar og óformlegar menntunaraðstæður fyrir börn, unglinga og fullorðna. Næst er skilgreining frá Dattilo sem segir að tómstundamenntun gefi fólki færi á að auka lífsgæði sín og koma auga á tækifæri og möguleika; tómstundamenntunin auki einnig skilning á því hvernig tómstundir geti haft áhrif á lífsgæði og með henni sé ætlunin að auka þekkingu og leikni og hvetja fólk til að stunda fjölbreyttar tómstund- ir (Dattilo, 2002). Loks má nefna skilgreiningu Mundy (1998) sem heldur því fram að tómstundamenntun sé þroskaferli þar sem einstaklingar öðlist aukinn skilning á tómstundum og mikilvægi þeirra fyrir eigin lífsgæði og fyrir samfélagið í heild. Hún bendir á að þessi menntun geri einstaklingum kleift að taka sjálfstæðar ákvarðanir í frítímanum, byggðar á þeirri vitneskju sem þeir hafa hlotið. Eins og sjá má leggja þessar þrjár skilgreiningar áherslu á viðhorf til tómstunda, vit- und eða skilning (e. awareness) á mikilvægi tómstunda, félagsfærni, ákvarðanatöku, athafnir (e. activities), tómstundabjargir (e. leisure resources) og tómstundafærni (e. leisure skills) (Stumbo o.fl., 2011). Fræðimenn eru svo almennt sammála um að mark- mið tómstundamenntunar sé að aðstoða börn, unglinga og fullorðna við að auka lífs- gæði sín með þátttöku í tómstundum (AAPAR, 2011). Leiðirnar að markmiðinu eru að auka vitund og skilning á frítímanum og tómstundum, á mikilvægi tómstunda, að einstaklingar þjálfist í tímastjórnun og geti þannig skipulagt frítíma sinn betur, að þeir þjálfist í ákvarðanatöku og að fylgja ákvörðunum eftir, að þeir geti komið auga á hindranir og fundið leiðir til að yfirstíga þær, að þeir þekki frítímatengd vandamál og hvernig tómstundir eru vörn gegn þeim og að þeir þjálfist í félags- og samskiptafærni. Einnig eru fræðimenn sammála um að það sé mikilvægt að einstaklingar öðlist tóm- stundafærni sem auðveldar þátttöku í slíkri iðju og viti hvaða tómstundir eru í boði í nágrenni þeirra (AAPAR, 2011; Dattilo, 2008; Leitner og Leitner, 2012; Mundy, 1998; Stumbo o.fl., 2011)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.