Morgunblaðið - 16.03.2012, Side 42

Morgunblaðið - 16.03.2012, Side 42
42 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þér er allt að því ómögulegt að hafa hugann við vinnuna í dag. Ef þú ferð út að hitta vinina færðu alla athyglina. 20. apríl - 20. maí  Naut Fjarvistir og ferðalög geta tekið sinn toll hjá öðrum í fjölskyldunni. Taktu ekki álit þeirra nærri þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er hægt að sýna öðrum fram á sannleiksgildi hluta án þess að beita til þess afli. Tjáðu þig við þá sem eru þér næstir. Biddu um allt sem þig dreymir um. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Reyndu að halda aftur af þér í inn- kaupum í dag, þótt ómótstæðilegur mun- aðarvarningur verði á vegi þínum. Kannaðu rótina að þeim hömlum sem verið er að reyna að setja þér núna. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Farðu varlega í fjármálum núna og hugsaðu þig tvisvar um áður en þú eyðir peningum. Láttu ekki leti og kæruleysi ná tökum á þér í dag því þú þarft að skila verk- efni sem krefst einbeitingar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ástúðlegar tilfinningar til einhvers sem er þér nákominn eru sterkar í dag. Breytingar sem þú leggur til mæta mikilli andstöðu. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur meðbyr í seglin og átt að geta notfært þér hann. Vinur þinn hefur yfirhönd- ina í sókninni eftir frægð og frama – en það er stórkostlega langt frá efninu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Samræður þínar við vini þína eru óvenju skemmtilegar í dag. Taktu málin í þínar hendur og láttu áhugann leiða þig áfram. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Að elska og vera elskaður er það sem máli skiptir í lífinu. Gættu þess líka að vanrækja ekki þína nánustu. Láttu viðkom- andi vita að þér þyki vænt um hann. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér líður eins og þorpshetjunni sem flytur í stórborgina, hann hittir einum of marga sína líka. Vertu viðbúinn að svara spurningum annarra um fyrirætlanir þínar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Góðir hlustendur lifa sig inn í sögurnar sem þeir heyra. Eftirminnilegustu og frábærustu hlutar dagsins ganga út á inngrip í þínar upphaflegu ráðagerðir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þig langar svo mikið til að kaupa eitthvað að það er hætt við að þú fáir það á heilann. Vitsmunir þínir og líkami eiga mesta hrós skilið. Ragnar Ingi Aðalsteinsson varkjörinn formaður kvæða- mannafélagsins Iðunnar 9. mars síðastliðinn, en þá lét Steindór And- ersen af formennsku eftir 15 ára farsælt starf. Á litla hagyrð- ingamótinu, sem haldið var á fund- inum, ortu þeir Ingi Heiðmar Jóns- son, Ragnar Böðvarsson og Ragnar Ingi Aðalsteinsson um vatn, ís og gufu og stýrði Helgi Zimsen mótinu. Hlýða má á afraksturinn á hljóðbloggi Arnþórs Helgasonar: www.hljod.blog.is. Þar á meðal „lífsfararkvæði“ nýkjörins for- manns sem nefnist einfaldlega Ís, vatn og gufa: Ég hóf þessa ferð bæði vaskur og vís er víðáttan lokkandi brosti. Svo stælinn og kaldur í æsku sem ís í ágjöf og byljum og frosti. En veröldin bauð marga léttfarna leið hve ljúft var að hrasa og falla; Ég velktist um ævinnar víðsjála skeið eins og vatn sem er komið í halla. Ég nálgast nú óðfluga áfangastað á þó eftir svo margt til að prufa, en ég nenni ekki lengur að nöldra um það því nú er ég bara gufa. Umsjónarmanni barst kveðja um að einn meðlima hljómsveitarinnar 1860 hefði fyrir nokkru ort á fés- bókinni um atburði líðandi stundar og fylgir sögunni að bragurinn sé klæðskerasniðinn að Áföngum Jóns Helgasonar: Ólafur þykist eiga bágt ákvörðun vill ei taka. Kraftajötnarnir kveinka sér um karlhatur ýmsa saka. Í Helgafellinu hriktir svo hornsteinar landsins braka meðan hin fánýtu fuglabjörg á fésbókinni kvaka. Og í tilefni af ilmandi pistli Krist- ínar Heiðu Kristinsdóttur í Sunnu- dagsmogganum með „lofnar- kveðskap“ barst kveðja frá dyggum lesanda, sem ekki vildi láta nafns síns getið, en rifjaði upp vísu eftir Andrés Björnsson eldri frá Brekku í Seyluhreppi forna: Guð veit hvað hún gerði mér, gleymdi ég stað og líðan. Ég veit bara að ég er annar maður síðan. Eftirlætisvísa frá táningsárunum var einnig rifjuð upp og ku vera eft- ir Kristján Jónsson Fjallaskáld: Eg vil feginn óspilltur æskuveginn ganga. Og svo deyja ölvaður undir meyjarvanga. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af nýjum formanni og litla hagyrðingamóti Iðunnar G re tt ir H ró lf u r h ræ ð il eg i G æ sa m am m a o g G rí m u r S m áf ó lk Fe rd in an d ENN EINN PIZZA- SENDILLINN SEM KEMUR ALDREI AFTUR TIL OKKAR VÍST GERIR HANN ÞAÐ, ÉG ER MEÐ LYKLANA HANS ERTU MEÐ ÞETTA? VAR- LEGA, SVONA NÚ VAR- LEGA POTTAPLANTAN MÍN ÞARF SM SÓLARLJÓS ÞETTA ER NÝJASTA VOPN RIDDARANA Í BARTTU SINNI VIÐ HIN ILLU ÖFL SVO ER ÞETTA LÍKA FRBÆRT EF MAÐUR ÆTLAR AÐ GRILLA SYKURPÚÐA HVERT FÓR RUNÓLFUR? HANN HEYRÐI AÐ ÞAÐ VÆRI FRÆG „VALA” Í SIRKUSNUM OG DREIF SIG AÐ SJ HANA STEIN- VALA!? HANN VAR AÐEINS AÐ MISSKILJA, ÞETTA ER VÖLVA, HÚN HEITIR VENUS ÉG BÝST VIÐ AÐ ÞESSI STEIN- VALA SÉ SVONA FRÆG VEGNA ÞESS AÐ HÚN ER ÚR GLERI EN EKKI STEINI? ÉG SKYNJA AÐ ÞÚ SÉRT EKKERT SÉRLEGA VEL GEFINN Fyrir margt löngu, þegar Víkverjivar í byggingavinnu, fékk hann bakverk og gat sig vart hreyft. Hjúkrunarkona bæjarins sagði að til þess að ná skjótum bata væri best að hanga og ráðlagði háskólaborg- aranum að mæta og hanga í vinnunni. Hann gerði það, vinnu- félögunum til mikillar undrunar, en verkurinn hvarf og eftir það var ekki til setunnar boðið. x x x Þetta með sæti, stöðu og það aðhanga kom upp í huga Víkverja í gær þegar hann leit upp frá skjánum og virti tvo samstarfsmenn fyrir sér. Báðir stóðu við vinnustöðvar sínar og hömruðu á lyklaborðið eins og enginn væri morgundagurinn. Stóll annars blaðamannsins var eins og barið hundskinn, götóttur og illa far- inn, en hinn blaðamaðurinn hafði ekkert sæti til að setjast í. Ekki er ofsögum sagt að staða fólks er með misjöfnum hætti. x x x Gera má því skóna að þar sem erusæti þar eru vandræði. Það kom til dæmis berlega í ljós í Landsdómi á dögunum, þegar blaðamaður sat sem fastast þegar hann átti að standa upp og stóð þegar hann átti að setjast. Annað óleyst dæmi er daglega á ferðinni milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði. Þegar menn fóru gang- andi eða ríðandi á milli staða vafðist aldrei fyrir þeim hvort það ætti að standa eða sitja en eftir að Strætó tók að sér aksturinn standa menn ýmist eða sitja á leiðinni. Það er vandamálið því mönnum ber ekki saman um hvort þeir eigi að sitja eða standa og hvort þeir megi yfir höfuð standa. x x x Margir hafa verið kenndir viðgöngu og nægir að nefna Jo- hnnie Walker og Göngu-Hrólf í því sambandi. Víkverji hefur ekki heyrt um neinn sem hefur hefur öðlast frægð og frama fyrir það að standa en talið er að aðeins einn maður í veröldinni sé kenndur við sæti. Það fylgir sögunni að hann sé svo önnum kafinn að hann gefi sér sjaldan tíma til þess að setjast. Víkverji Orð dagsins: Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ósviknu mjólk, til þess að þér af henni getið dafnað til hjálpræðis. (1Pt. 2, 2.) Fjölhæfasti starfskrafturinn Fjölnota vinnuþjarkur sem höndlar hátt í 100 verkfæri ▪ Lágur rekstrarkostnaður ▪ Einstaklega lipur í notkun ▪ Örugg og þægileg í umgengni ▪ Vökvaknúinn í aldrifi Tilboðsverð 1.740.000 kr. + vsk. Skófla fylgir með 220 Bensín Hæð: 186 sm Breidd: 96 sm Þyngd: 620 kg Lyftihæð: 1,40 m Lyftigeta: 350 kg Hestöfl: 20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.