Helgafell - 01.12.1953, Síða 39
GUNNAR GUNNARSSON
37
Að ógleymdu sveitarskáldinu, Agii
gamia á Bálkastöðum. Hvaða sveit á
íslandi hefur ekki á hverjum tíma átt
sitt sveitarskáld ? — Jú, við þekkjum
þetta fólk. Að vísu ekki þannig, að
við getucn bent á ákveðna einstaklinga,
h'fs eða liðna og sagt, að þar sé fyrir-
mynd ákveðinnar persónu sögunnar.
En samt þekkjum við það. Þetta er ís-
lenzkt alþýðufólk eins og við höfum al-
>zt upp með og haft umhverfis okkur
a lífsleiðinni, langri eða skammri. Það
þarf ekki alltaf langar eða ítarlegar lýs-
mgar til þess að við könnumst við fólk-
>ð. Gunnari tekst að vekja í huga okk-
ar myndir og minningar, stundum með
fáeinum óbeinum athugasemdum,
stundum með því að láta fólkið segja
fáeinar setningar. Þess vegna verða
aukapersónurnar oft svo furðulega lif-
andi í huga okkar og hættir jafnvel á
stundum til að skyggja nokkuð á aðai-
persónurnar við fljótan yfirlestur. M.
a. af þessum ástæðum er ég smeikur
U).m að ýmsir muni ekki hafa gert sér
fulla grein fyrir mikilleik aðalsöguhetj-
unnar Bergþóru, en í raun og veru er
þar um áð ræða eina af merkustu per-
sónunum, sem Gunnar Gunnarsson
hefur skapað. Þeim, sem svo hefur far-
ið, vildi ég ráðleggja að taka fram báð-
ar þessar bækur og lesa þær í sam-
hengi, vel og vandlega. Eg er sann-
færður um að þeir muni ekki sjá eftir
þeim tíma, sem til þess fer.
Gunnar Gunnarsson hefur á listaferli
sínum mörgum háum tindi náð og mun
það mál margra að þar gnæfi Kirkjan
á fjallinu hæst. Með Urðarfjötri er
hann tekinn að fást við nýjan tind, sem
óséð er enn hversu hár verður, en ekki
myndi mig undra þótt sá þætti að lok-
um eigi lægri en tindur Fjallkirkjunn-
ar.
S\úli Jensson.