Morgunblaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2013
þær heilbrigðisógnir sem herja á þró-
unarlönd. Einnig hvað ylli því að ekki
hafa orðið meiri framfarir á síðari ár-
um. Ég held að þetta viðhorf mitt
stýrist að einhverju leyti af sterkri
réttlætiskennd,“ segir Gunnhildur.
Í Malaví starfaði hún með tveimur
öðrum íslenskum hjúkrunarfræð-
ingum; Benediktu Guðrúnu Svav-
arsdóttur og Guðbjörgu Bergmunds-
dóttur. Þar unnu þær á lítilli
heilsugæslustöð í umsjá lúthersku
kirkjunnar í þorpinu Madisi. Sinntu
þar almennum heilsugæslustörfum.
Voru utan þess svæðis þar sem Þró-
unarsamvinnustofnun Íslands hefur
helst látið til sín taka. Það er í Mon-
key Bay, þar sem Íslendingar hafa
m.a. reist sjúkrahús sem þjónar íbú-
um svæðisins.
Sjö verkefni í
Mið-Afríkulýðveldinu
Í Mið-Afríkulýðveldinu starfrækja
Læknar án landamæra alls sjö verk-
efni með samtals 75 alþjóðlegum
starfsmönnum og tæplega 1.300 úr
hópi innfæddra. Sinnt er bæði al-
mennri sem sérhæfðri heilbrigð-
isþjónustu. Og viðfangsefnin vantar
ekki. Tölur yfir ungbarna- og mæðra-
dauða í landinu eru með því hæsta
sem þekkist í heiminum og fara þess-
ar tölur í mörgum tilfellum langt yfir
svokallaðan neyðarþröskuld sem oft
er rætt um, að sögn Gunnhildar.
Meðalaldur fólks í landinu er aðeins
um 48 ár og aðeins örfá lönd eru neð-
ar á listanum.
„Þeir sjúkdómar sem helst draga
fólk til dauða þarna eru, eins sorg-
lega og það hljómar, flestir fyr-
irbyggjanlegir eða læknanlegir, hafi
fólk aðgang að sæmilegri heilbrigð-
isþjónustu. Læknar án landamæra
einbeita sér því að því að meðhöndla
og fyrirbyggja malaríu, niðurgangs-
sjúkdóma og loftvegssýkingar og
tryggja að sem flestir hafi aðgang að
grunnbólusetningum. Einnig er lögð
áhersla á þjónustu við HIV- og
berklasmitaða sjúklinga og varnir
gegn þeim sjúkdómum. Aðstoð við
konur á meðgöngu og í fæðingu er
einnig stór hluti af okkar vinnu.“
Uppreisn og átök
Samtökin Læknar án landamæra
voru stofnuð í París árið 1971 af
frönskum læknum sem höfðu unnið
fyrir Rauða krossinn í Biafrastr-
íðinu. Hugsjón þeirra var að stofna
samtök sem stjórnuðust eingöngu af
þörfum bágstaddra, án pólitískra
áhrifa. Þetta hefur verið leiðarljósið
æ síðan og í dag reka Læknar án
landamæra um 400 verkefni í 68
löndum. Undir merkjum samtak-
anna starfa um 2.500 manns; læknar,
hjúkrunarfræðingar, verkfræðingar,
viðskiptafræðingar, sálfræðingar og
fleiri – auk 25.000 starfsmanna sem
eru ráðnir í sínum heimalöndum.
Rétt fyrir jól upphófust átök í Mið-
Afríkulýðveldinu milli uppreisnar-
manna og herliðs forsetans. Upp-
reisnarmennirnir hafa það að mark-
miði að koma forsetanum frá völdum
og taka þar með stjórn landsins í sín-
ar hendur. Herlið frá Kongó og
Tsjad kom til landsins til að aðstoða
mið-afríska herinn í baráttunni gegn
uppreisnarliðinu. Nú er vopnalé í
landinu en framhaldið óljóst. Átökin
hafa leitt til þess að þúsundir manna
hafa neyðst til að flýja heimili sín og
leita skjóls inni í skógum, án húsa-
skjóls, öruggs drykkjarvatns og
fjarri allri heilbrigðisþjónustu. Eru í
raun flóttamenn í eigin landi.
Yfirmaður í apóteki
„Nokkur tonn af lyfjum hafa verið
flutt til landsins til þess að dreifa til
heilbrigðisstofnana sem enn eru
starfandi. Heilbrigðisstarfsfólk er
auðvitað meðal þeirra sem hafa flúið
átökin og því ekki sjálfgefið að ein-
hver sé til að reka þá takmörkuðu
þjónustu sem enn er í landinu,“ segir
Gunnhildur sem starfaði á sjúkra-
húsi í bænum Boguila, sem er í norð-
vesturhluta landsins. Sjúkrahúsið
hafa Læknar án landamæra rekið sl.
sex ár, en þar eru 115 rúm á 6 deild-
um: það er lyfjadeild, skurðdeild,
barnadeild, gjörgæsla, fæðing-
ardeild ásamt berkla- og HIV-deild.
Heilsugæslan sem rekin er á sama
stað tekur við allt að 70 sjúklingum
daglega.
„Þarna var ég yfirmaður apóteks-
ins sem sá sjúkrahúsi og heilsugæslu
fyrir lyfjum, ásamt því að við dreifð-
um lyfjum heilsugæslunnar á svæð-
inu. Verkefni mín fólust aðallega í
birgðastjórnun og að fyrirbyggja
þjófnað á lyfjum.“
ðarþröskuldinn
Mið-Afríkulýðveldið
Tungumál: Sangó (opinbert),
franska, og ýmis frumbyggjamál
Höfuðborg: Bangví
Forseti: François Bozizé
Forsætisráðherra: Elie Doté
Flatarmál: 622.984 km²
Mannfjöldi: 3.683.538 (2003)
Þjóðarlén: .cf
Bangví
Tsjad
Súdan
Lýðveldið
Kongó
Kamerún
V-Kongó
Angóla
Namibía
Tansanía
Líbýa
Níger
Nígera
Alsír Egyptaland Sádí-
Arabía
Eþíópía
Kenía
Sambía
Mósamb.
MadagaskarBotsv.
Simb.
S-Afríka
Fólk sem starfar á vegum Lækna
án landamæra er ráðið til
þriggja, sex, níu eða tólf mánaða
í senn. Segist Gunnhildur nú í
biðstöðu eftir næsta verkefni.
„Eftir því hefur verið leitað að ég
fari aftur út og sinni þá neyðar-
aðstoð í höfuðborginni Bangui.
Skjótt skipast þó veður í lofti í
þessum störfum og gæti allt
eins verið að ég færi eitthvað allt
annað. Það verður spennandi að
sjá. Og lífssýn manns breytist í
svona verkefnum. Maður verður
að átta sig á raunheiminum.
Gæta þess að bera aðstæðurnar
ekki saman við þann veruleika
sem maður þekkir heima á
örugga Íslandi. Sú neyð og öm-
urleiki sem er áberandi í þessum
löndum er áminning um ástæð-
una fyrir starfinu. Við erum
þarna til að bæta aðstæður fólks
sem ekki býr við sömu lífsgæði
og við. Íslendingar vita ekki hvað
þeir búa í góðu samfélagi og
hafa það í raun gott,“ segir
Gunnhildur.
Áminning
um ástæðu
starfsins
AFTUR TIL STARFA Í AFRÍKU
Hjálp Læknar án landamæra eru
sendir til starfa um allan heim.
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands.
Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust
og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur
heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar