Morgunblaðið - 28.03.2013, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2013
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við erum að þreyta frumraun okkar
á erlendum vettvangi. Það eru miklir
kostir fyrir okkur að fara sem und-
irverktakar hjá Ístaki sem hefur
mikla reynslu í Noregi svo segja má
að við förum í fylgd með fullorðn-
um,“ segir Eysteinn J. Dofrason,
verkefnastjóri hjá Suðurverki.
Suðurverk fer með fimmtán
vinnuvélar og um þrjátíu starfsmenn
út til Noregs til að vinna við lagningu
vegar vegna fyrirhugaðrar Háloga-
landsbrúar við Narvik. Ístak er að-
alverktaki norsku vegagerðarinnar
við vega- og jarðgangagerð vegna
brúarinnar. Þetta er stórt verkefni á
íslenskan mælikvarða, samnings-
upphæðin svarar til um 8 milljarða
íslenskra króna.
ÍAV bjóða best
Enn stærra er jarðgangaverkefni
í Noregi sem ÍAV átti lægsta tilboð í
ásamt móðurfélaginu, Marti frá
Sviss. Tilboðið svarar til um 30 millj-
arða króna, að því er fram kom hjá
Karli Þráinssyni, framkvæmda-
stjóra ÍAV, á mbl.is í gær.
Ekki liggur fyrir hvenær fram-
kvæmdir hefjast en fyrirtækið þarf
að bæta við sig starfsfólki vegna
þeirra. Verkið felst í að gera tvenn
samhliða göng undir sjó, samtals um
15 km. Þau nefnast Solbakkentunne-
len og eru nálægt Stavanger.
Ráða mannskap
Verkefni Suðurverks í Narvik
felst í að leggja tæplega 5 kílómetra
veg og grafa þrenn göng. Undirbún-
ingsframkvæmdir eru hafnar á veg-
um undirverktaka en Ístak hyggst
hefja gangagerðina í júní.
Suðurverk tók að sér vegagerðina.
Fyrsti hluti tækjanna, sem notuð
verða við verkið, er kominn í skip og
Eysteinn segir að vinna við vega-
gerðina hefjist í maí. Hann segir að
verkið eigi að taka þrjú ár. Suður-
verk ætlar að vera með 30 starfs-
menn og reyna að ljúka því á rúm-
lega tveimur árum. Suðurverk er
með önnur verk í gangi, til dæmis við
Búðarhálsvirkjun og vegagerð í
Múlasveit á Vestfjörðum. Þá er verið
að bjóða í fleiri verk sem þeir hafa
augastað á. Eysteinn segir að vel
hafi gengið við vegfyllingarnar fyrir
vestan og hægt að hægja á þar í sum-
ar. Þó þurfi að bæta við starfsmönn-
um vegna verkefnisins í Noregi og
annars staðar, alls 20 til 30 mönnum.
Það hafi gengið ágætlega.
Förum í fylgd
með fullorðnum
ÍAV og Suðurverk taka að sér verkefni í Noregi
Hálogalandsbrú Unnið er að undirbúningi Hálogalandsbrúar við Narvik. Myndin er af einni tillögu. Samið verður
um smíði brúarinnar á þessu ári en Ístak er aðalverktaki að vega- og gangagerð að brúnni beggja vegna.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al-
þingis leggur til að leitað verði sam-
komulags um að færa Þorláksbúð.
Ríkisendurskoðun er gagnrýnd fyrir
að hafa ekki lokið rannsókn á því
hvernig skattfé sem rann til hússins
hafi verið varið.
Ríkisendurskoðun segir m.a. í
bréfi til forseta Alþingis í júní í fyrra
að Félag áhugafólks um uppbygg-
ingu Þorláksbúðar hafi á árunum
2008–2011 fengið úthlutað samtals
9,4 millj. kr. úr ríkissjóði og að auki
þremur millj. kr. frá kirkjuráði. Rík-
isendurskoðun hafi tvisvar þurft að
ítreka beiðni til styrkþega um upp-
lýsingar um fjárreiður félagsins.
Tekjur þess væru 1,5 millj. kr. sem
væri framlag frá kirkjuráði fyrir árið
2012, en það hefði verið notað til
greiðslu á yfirdráttarláni auk reikn-
ings vegna færslu á árinu 2012.
„Ekki verður horft fram hjá því að
úr því sem komið er verður bygg-
ingin ekki fjarlægð nema kveðið
verði á um það með dómi eða með
samkomulagi þeirra sem hlut eiga að
máli, þ.e. kirkjunnar og Þorláksbúð-
arfélagsins,“ segir í skýrslu þing-
nefndarinnar. „Nefndin hvetur til
þess að samkomulags verði leitað um
að færa bygginguna.“
Árni Johnsen, alþingismaður og
formaður Þorláksbúðarfélagsins,
segir kostnað við húsið hafa verið
tugi milljóna króna. Hann var spurð-
ur hvort samkomulag gæti náðst um
að færa það.
„Þetta er bara rugl, svo vitlaust að
það er ekki hægt að tala um það,“
svarar Árni. „Fólkið veit ekki hvað
það er að tala um. Þetta er handverk,
hver einasti fersentimetri í húsinu er
handunninn, þetta er klæðskera-
sniðið frá a til ö og það myndi kosta
100 milljónir að flytja það. Menn
hefðu getað rætt þetta á einhverjum
fyrri stigum en verkinu er lokið.
Þetta er eins og að mæta á fæðing-
ardeild, barnið er fætt en þá vill ein-
hver troða því inn aftur!“
Þingnefnd vill
að Þorláksbúð
verði færð
Árni Johnsen segir tillöguna „rugl“
Morgunblaðið/RAX
Sögustaður Kirkjan í Skálholti, Þorláksbúð hin nýja er til vinstri.
Hópur skrifar bréf
» Tilefni skýrslunnar er bréf til
nefndarinnar í sept. sl. frá hópi
er nefndi sig áhugamenn um
velferð Skálholtsstaðar.
» Bréfið undirrituðu Eiður
Guðnason, Jón Hákon Magn-
ússon, Vilhjálmur Bjarnason og
Ormar Þór Guðmundsson.
» Vakin var athygli á bréfi Rík-
isendurskoðunar til Alþingis
um styrki til Þorláksbúðar.
Íslensk verktakafyrirtæki og
verkfræðistofur hafa unnið mik-
ið erlendis á síðustu árum, frá
því markaðurinn hér heima
brást í bankahruninu. Ístak hef-
ur náð góðri fótfestu í Noregi og
er einnig með stór verkefni víð-
ar á erlendri grund.
Tilkynnt var í ársbyrjun að Ís-
tak tæki að sér tvö verkefni fyr-
ir norsku vegagerðina, fyrir alls
um 11 milljarða íslenskra króna.
Þá kom fram að áætlað væri að
60-70% af heildarveltu fyr-
irtækisins á þessu ári yrðu í
Noregi. Fyrirtækið hefur verið
með um 200 starfsmenn við
verkefnin í Noregi, mest Íslend-
inga.
Ístak hefur unnið að gerð
mikillar virkjunar á Grænlandi
en því verkefni lýkur á þessu
ári.
Náð fótfestu
í Noregi
60-70% AF VELTU ÍSTAKS
„Við óskum eftir ábendingum um konur af er-
lendum uppruna, sem eru búsettar hvar sem er á
landinu, sem mögulega viðmælendur fyrir bók-
ina sem er í bígerð,“ segir Kristín Viðarsdóttir,
ein fjögurra höfunda viðtalsbókarinnar; Heims-
ins konur á Íslandi. Meðhöfundar Kristínar eru:
Ania Wozniczka, Kristín R. Vilhjálmsdóttir og
Letetia B. Jónsson.
Í bókinni verður dregin upp mynd af fjölda
kvenna af erlendum uppruna og framlagi þeirra
til íslenskrar menningar og samfélags. Samhliða
útgáfunni verður sett upp ljósmyndasýning og
vefur.
„Okkur finnst þarft að safna saman sögum
kvenna sem hingað hafa flutt af ýmsum ástæð-
um og sýna hversu fjölbreyttar þessar sögur eru
og hver áhrif þessara kvenna eru á íslenskt sam-
félag. Þær hafa auðgað það ríkulega. Þetta er
líka ákveðin leið fyrir okkur að sjá samfélagið á
nýjan og ferskan hátt frá sjónarhorni þeirra sem
hafa ólíkan bakgrunn. Glöggt er gests augað
eins og þar stendur,“ segir Kristín og bindur
vonir við að verkefnið komi til með að styrkja
fjölmenningu á Íslandi. Hugmyndina má meðal
annars rekja til Söguhrings kvenna sem starf-
ræktur hefur verið í Borgarbókasafninu í Gróf-
arhúsinu. Þar hefur skapast vettvangur fyrir
konur að tala og vinna saman. thorunn@mbl.is
Bók um konur af erlendum uppruna
Óska eftir ábendingum um konur af erlendu bergi brotnar sem mögulega viðmælendur
Safna sögum í bókina Heimsins konur á Íslandi Hugmyndin kviknaði í söguhring kvenna
Viðtalsbók Hugmyndin kviknaði í Söguhring kvenna þar sem konur af erlendum uppruna hittast.
Heimsins konur á Íslandi
» Bók um framlag kvenna
af erlendum uppruna á Ís-
landi.
»Safna sögum kvenna.
» Þeir sem vilja leggja verk-
efninu lið geta fyllt út eyðu-
blað á vef Borgarbókasafns-
ins fyrir 26. apríl með
ábendingu.
»Ljósmyndasýning og vefur
sett upp í kjölfarið.
» Fjórar konur vinna að
verkefninu: Ania Wozniczka,
Kristín R. Vilhjálmsdóttir,
Kristín Viðarsdóttir og Le-
tetia B. Jónsson.