Morgunblaðið - 28.03.2013, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2013
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is
Ertu að taka til í …
…garðinum
… geymslunni
Komdu spilliefnunum og raftækjunum
á söfnunarstöðina næst þér …
… við sjáum um framhaldið!
HYGEA Kringlunni og Smáralind
Full búð
af nýjum
vörum
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Við búumst við mörgu hressu fólki á hátíð-
ina og veðurspáin er góð. Gámaþjónusta
Vestfjarða hefur tæmt húsnæðið sitt og við
erum að koma sviðinu upp. Þetta er allt
eins og það á að vera,“ segir Jón Þór Þor-
leifsson, smali og rokkstjóri hátíðarinnar
„Aldrei fór ég suður, rokkhátíðar alþýð-
unnar“, sem haldin er í tíunda sinn á Ísa-
firði um helgina.
Búist er við að töluverður fjöldi fólks
leggi leið sína vestur um páskahelgina en
skíðavika er einnig haldin á Ísafirði um
helgina, og hún býr yfir sínu aðdráttarafli.
Rokkstjóri kveður
„Það er spurning hvort það verður ekki
brúðkaup þetta árið,“ segir Jón Þór spurður
hvort og hvernig hægt verði að toppa fyrri
hátíðir. Í því sambandi má nefna að eitt
rokkaðasta bónorð sögunnar var borið upp
á hátíðinni í fyrra, uppi á sviði, þegar tveir
Ísfirðingar trúlofuðu sig við góðar und-
irtektir viðstaddra.
Þetta verður í síðasta skiptið sem Jón
Þór ber titilinn rokkstjóri. Hann stýrir há-
tíðinni í þriðja og síðasta sinn í ár.
„Það er gott að fá inn nýtt blóð. Mögu-
legur kandídat er kominn en ekki verður
upplýst hver hann er fyrr en eftir hátíðina
um helgina. Það er til nóg af kraftmiklu
fólki hér á svæðinu til að taka við kefl-
inu,“ sagði Jón Þór en gaf þó í skyn að
rokkstýra gæti allt eins tekið við á næsta
ári.
Hann sagði að stefnan hefði alltaf verið
að stjórna hátíðinni í þrjú ár og þetta
hefðu verið mjög skemmtileg og gefandi
ár. Það kæmi honum samt alltaf jafn mik-
ið á óvart hversu margir listamenn væru
tilbúnir að gefa vinnuna sína og hve auð-
velt væri að fá styrktaraðila til að fjár-
magna hátíðina. Það sem tekur við næst
hjá Jóni Þór er seta í nefndinni „fyrrver-
andi rokkstjórar Aldrei fór ég suður“ sem
er víst ekki amalegur félagsskapur.
Allir jafnir í sviðsljósinu
Allar sveitir fá að vera í sviðsljósinu í
20 mínútur, hvort sem um er að ræða
Mugison eða nýliða.
Jón Þór segir það mikilvægt að öllum
sé gert jafn hátt undir höfði. Hann segist
ekki geta nefnt eina uppáhaldshljómsveit
og líkir því við að gera upp á milli
barnanna sinna, eitt er víst að það verður
mikið rokkað á Ísafirði um helgina.
Rokkhátíðin hefst á föstudagskvöld og
heldur áfram á laugardagskvöld en fjöldi
atburða verður í tengslum við hátíðina.
Hægt er að sjá dagskrána á vefnum
aldrei.is.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Rokkstjóri Jón Þór Þorleifsson smali stýrir hátíðinni Aldrei fór ég suður í þriðja og síðasta sinn.
„Spurning hvort það verði brúðkaup“
Aldrei fór ég suður í
tíunda sinn Mögulega
rokkstýra á næsta ári
„Til að fjölga störfum á Íslandi þarf
að auka umsvif í atvinnulífinu og
fjárfesta í aukinni framleiðslu- og
þjónustugetu.“ Þetta kemur fram í
umfjöllun hagdeildar Samtaka at-
vinnulífsins á vefsvæði SA.
„Undanfarin fjögur ár hafa fjár-
festingar í heild og fjárfestingar at-
vinnulífsins verið í sögulegu lág-
marki. Litlar fjárfestingar
undanfarin ár valda því að störfum
fjölgar hægt, það dregur hægt úr
atvinnuleysi og fólk heldur áfram
að leita betri afkomu með því að
flytja úr landi. Tækifærin til að
snúa við blaðinu blasa hins vegar
við,“ segir í umfjölluninni.
Mikil uppsöfnuð fjárfesting-
arþörf í byggingariðnaði
Þar segir einnig: „Það er ánægju-
legt að sjá hagfelld rekstrarskilyrði
endurspeglast í auknum fjárfest-
ingaráformum í ferðaþjónustu eins
og fram kemur í nýlegri könnun
Capacent fyrir SA og Seðlabank-
ann sem gerð var í mars meðal
stjórnenda 400 stærstu fyrirtækj-
anna. Í byggingariðnaði, þar sem
mikil uppsöfnuð fjárfestingarþörf
er til staðar, er líka útlit fyrir aukn-
ar fjárfestingar en almennt er gert
ráð fyrir minni fjárfestingum á
árinu 2013 en 2012,“ segir enn-
fremur í umfjölluninni.
Hagdeildin segir að þrátt fyrir
þetta sé fjárfesting í öllum atvinnu-
greinum í lágmarki og horfur
slæmar ef ekki verði breytt um
stefnu. Ennfremur að á síðasta ári
hefðu fjárfestingar þurft að vera
allt að 150 milljörðum króna meiri
til að vera í samræmi við meðaltal
fjárfestinga á Íslandi síðustu 67 ár-
in eða um 24% af landsframleiðslu.
Heildarfjárfestingar á Íslandi árið
2012 hefðu þurft að vera yfir 400
milljarðar króna í stað 250 millj-
arða eins og raun hafi orðið.
Þörf á 150 milljarða
meiri fjárfestingu
Fjárfestingar undir 67 ára meðaltali
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Framkvæmdir SA benda á að litlar
fjárfestingar undanfarinna ára
valda því að störfum fjölgar hægt.