Morgunblaðið - 28.03.2013, Page 11
Kósí Það er notalegt í Heita pottinum þar sem fást töskur, fatnaður, keramík, skart, kerti og margt fleira.
eru í hestamennsku hérna hafa marg-
ar pantað lopapeysur hjá mér. Ég
sendi líka lopa til fólks í Noregi sem
býr ekki í nágrenni við mig.“ Og að
sjálfsögðu dettur inn einn og einn Ís-
lendingur, sem finnst gaman að
kaupa íslenskar gjafir fyrir norska
vini.
Norræn samvinna varð ást
Jófríður hefir búið í Noregi und-
anfarin tuttugu ár. Hún flutti til Nor-
egs strax eftir að hún hafði skilað BA-
ritgerð sinni í íslensku við Háskólann
hér heima. „Ég hélt áfram að mennta
mig í Noregi, fór í fjölmiðlafræði og
líka í sérkennslufræði og vann við
kennslu í mörg ár, eða allt þar til ég
opnaði verslunina,“ segir Jófríður
sem á norskan mann og með honum
þrjá syni. „Við kynntumst í Nordjobb
sumarið 1990. Norræna samvinnan
vakti heldur betur ástina á milli okk-
ar.“ Jessheim er um tuttugu þúsund
manna bær í nágrenni Óslóar. „Hér
eru nokkur sveitaþorp í kring, þetta
er afar notalegt umhverfi. Mér finnst
voða gaman að vasast í þessum versl-
unarrekstri, mér finnst ég færast
nær föðurlandinu og það er gott að
þurfa að skreppa reglulega heim til
að skoða nýjar vöru og annað tengt
rekstrinum. Mér finnst allt best á Ís-
landi, sem kemur kannski til af þess-
ari sjálfskipuðu útlegð sem ég er í.“
Þegar Jófríður hafði aðeins rek-
ið verslunina í rúmlega hálft ár,
greindist hún með brjóstakrabba-
mein. „Ég varð 25 ára stúdent frá
MA í fyrra og skellti mér heim í júbi-
leringuna og druslaðist til læknis upp
úr því. Því miður hefur meinið dreift
sér hjá mér og ég veit því ekki hversu
lengi ég get staðið vaktina í Heita
pottinum, en ég er í meðferð og við
vonum það besta. Vissulega hefur
það haldið mér gangandi að hafa búð-
ina til að hugsa um, ég er svo mikill
Íslendingur að ég get ekki setið
heima og gert ekki neitt.“
Lopi Norðmenn þekkja íslenskan lopa vel og sækja mikið í hann.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2013
Í dag, skírdag, opnar listamaðurinn
Ísak Óli einkasýningu á verkum sín-
um í Rögnvaldarsal Edinborgar-
hússins á Ísafirði kl. 17.
Ísak Óli Sævarsson er fæddur í
Reykjavík 15. desember 1989. Hann
býr í Álfheimum hjá foreldrum og
tveimur systkinum. Um fjögurra ára
aldur var hann greindur með dæmi-
gerða einhverfu og hefur alla tíð síð-
an fengið ákaflega vandaða kennslu
og þjálfun við hans hæfi. Fyrst í leik-
skólanum Gullborg og svo í sérdeild
fyrir einhverfa í Langholtsskóla. Eftir
grunnskóla lá leiðin í Fjölbrautaskól-
ann í Garðabæ þar sem Ísak útskrif-
aðist vorið 2009.
Eftir menntaskóla stundaði Ísak
m.a. nám í Myndlistaskólanum í
Reykjavík en vinnur núna í Gylfaflöt
og á vinnustofunni Ási í Brautarholti.
Ísak hefur lengi verið ákafur og
ástríðufullur teiknari. Hann teiknar
mikið persónur sem hann þekkir úr
sögum sem lesnar hafa verið fyrir
hann. Afköstin eru mikil og liggur
gríðarlegt magn af teikningum og
verkum eftir hann. Áberandi er
hversu lunkinn hann er í litanotkun
því hann blandar liti alveg sjálfur.
Ísak er ákaflega fylginn sér og
skipulagður og segir kannski:
„Fimmta febrúar ætla ég að mála
Strumpana í snjónum,“ og svo bara
einfaldlega gerir hann það.
Ísak hefur haldið margar einkasýn-
ingar og einnig tekið þátt í nokkrum
samsýningum. Þar má nefna samsýn-
ingu í Norræna húsinu í fyrra, Fólk í
mynd, og einnig á samsýningunni
List án landamæra í Ráðhúsi Reykja-
víkur 2009. Hann hélt einkasýningu í
ágúst í fyrra á Gamla-Rifi á Snæfells-
nesi sem hét Kríur og fleira fólk,
einnig einkasýningu í fyrrahaust í
Langholtskirkju sem hét Prestar, krí-
ur og söguhetjur. Árið 2011 hélt hann
einkasýninguna Tinni&félagar í Efla
verkfræðistofu og hann tók þátt í
samsýningunni Ástríðulist í Gerðu-
bergi árið 2010. Hægt er að skoða
verk Ísaks á heimasíðu: isakoli.com
Myndlistarsýning Ísafirði
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ísak Óli Hér við nokkrar mynda sinna á samsýningu í Norræna húsinu 2012.
Ísak Óli og vinir hans
BROT AF HEIMINUM
Í FERMINGARGJÖF
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A.
IS
IC
E
62
89
0
03
/1
3
Gjafabréf Icelandair gildir sem greiðsla upp í flugfar
til allra áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku.
Þú velur upphæðina.
Gjafabréf Icelandair gildir í tvö ár frá útgáfudegi.
Vertu með okkur
+ Pantaðu fermingargjöfina á www.icelandair.is
Nú þegar Frónbúar eru farnir að finna
lyktina af vorinu, þá komast þeir
gjarnan í ferðahug. Ekki einasta byrja
þeir að skipuleggja flakk um heima-
landið fagra, og víst er að af nógu er
að taka þegar ferðast skal um Ís-
landið góða, heldur leitar fólk líka út
fyrir landsteinana. Af nógu er að taka
þegar velja skal áfangastaði en marg-
ir skreppa til Lundúnaborgar, því
þangað er tiltölulega stutt að fara, og
þá getur verið gott að skipuleggja sig
vel fyrir ferðina, til að fá sem mest út
úr henni. Þá er gott að hafa aðgang
að ferðabókum og á tækniöld þar
sem fólk hefur allt í símum sínum og
tölvum ætti það að vera fagnaðarefni
fyrir íslenska ferðalanga að fyrr í
þessum mánuði kom út handbók í
rafbókarformi sem heitir: Lykillinn að
London. Höfundur bókarinnar er Mar-
grét Gunnarsdóttir og er rafbók þessi
stútfull af góðum ábendingum.
Þar er hægt að finna góða gistingu
og vera með allt á hreinu um það sem
í boði er í Lundúnum. Ekki amalegt að
láta benda sér á gistimöguleika sem
fólk hefur kannski bara alls ekki látið
sér detta í hug. Í bókinni er einnig allt
um flug og flugvelli, samgöngur í
jarðlestum, venjulegum lestum,
strætisvögnum, nú eða með bátum!
Fyrir þá sem eru sólgnir í að versla,
þá er enginn hörgull á slíkum upplýs-
ingum í rafbókinni, og upplýsingar
um markaði geta skipt sköpum þegar
kemur að því að spara eyrinn. Menn-
ingarvitarnir geta flett upp í öllu því
sem viðkemur þeim ótal söfnum sem
finna má í London. Fyrir þá sem vilja
fara í gönguferðir þá er líka þarna allt
um slíkt, og fyrir matgæðingana er
allt um veitingastaðina. Einnig eru
upplýsingar um hvernig hægt er að
bjarga sér sjálfur í dagsferð á sem
hagkvæmastan hátt. Fyrir þá sem eru
að fara í fyrsta sinn er gott að fá
ábendingar um hverju má alls ekki
missa af í borginni sem er full af
áhugaverðum mótsögnum.
Bókina er hægt að lesa bæði í
venjulegum tölvum (pdf), les-
brettum/tækjum, t.d. Kindle og fleir-
um, sem og snjallsímum.
Allt um veitingastaði, söfn, markaði, gistingu
Fyrir flökkukindur: Lykill að
London í formi rafbókar