Morgunblaðið - 28.03.2013, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2013
Hvað getur NUTRILENK
Active gert fyrir þig?
Eva Dögg sem er 33 ára kona frá Dalvík
greindist með vefjagigt fyrir rúmum 3 árum
sem hefur m.a. valdið stirðleika í liðum. Fyrst
eftir að hún greindist fékk hún margskonar
lyf sem hjálpuðu lítið og handavinna og fleiri
létt verk urðu henni ofviða sökum verkja.
Svaf illa,var þung á morgnana, stirð
og átti erfitt með einföldustu verk.
„Ástandið var ömurlegt! Ég svaf illa vegna
verkja og það hafði áhrif á orkuna, ég var
leið, þung og stirðleiki hrjáði mig. Mér finnst
gaman að handavinnu og gat orðið ekkert
gert“
Hélt að NutriLenk væri bara
fyrir eldri konur
„Unnusti minn sem vinnur með eldra fólki,
sagði mér frá skemmtilegum eldri konum
sem höfðu fengið betri liðheilsu með
NutriLenk Gold. Í október 2011 ákvað ég að
prófa en mér var sagt þar sem ég væri í
yngri kantinum að ef til vill væri NutriLenk
Active betra fyrir mig í stað Gold sem eldri
konurnar voru að taka.
1 hylki á dag heldur mér góðri
Ég tók 2 hylki á dag í 15 daga og fann strax
gríðarlegan mun og tek nú 1 hylki á dag og
gleymi aldrei að taka það inn. Ég tók smá hlé
einu sinni og geri það ekki aftur!
Í dag líður mér mun betur, laus við stirðleika
og dásamlegast er að ég get prjónað og
heklað eins og ég vil. Ég þreytist ekki á að
segja vinum mínum frá NutriLenk Active
sem er náttúrlegt efni og hefur gefið mér
lífið aftur“
- Eva Dögg
NutriLenk Active er fáanlegt í flestum apótekum, heilsu-
búðum, Fræinu Fjarðarkaupum, Þín verslun Seljabraut
og Vöruvali Vestmanneyjum
Eva Dögg
• NUTRILENK Active inniheldur vatns-
meðhöndlaðan hanakamb sem
inniheldur hátt hlutfall af náttúrulegum
efnum svokallaðri Hýalúrónsýru sem
getur hjálpað við að endurbyggja og
viðhalda jafnvægi í liðum.
• NUTRILENK Active getur aukið liðleika
og liðheilbrigði og séð til þess að liðirnir
þínir séu heilbrigðari og vel smurðir, svo
þú getir æft að fullum krafti án hindrana.
• NUTRILENK Active getur auðveldað
liðunum að jafna sig eftir æfingar.
• NUTRILENK Active getur hentað ungu
fólki á hröðu vaxtarskeiði að lina vaxta-
verki.
NUTRILENKActive er unnið úr sérvöldum
hanakömbum og inniheldur því engin
fiskiprótein eða skelfisk, hvert hylki
inniheldur 28 gr. Hýalúrónsýru.
Þægilegt - aðeins eitt hylki á dag.
NUTRILENK
ACTIVE
Skráðu þig á facebook síðuna
Nutrilenk fyrir liðina
- því getur fylgt heppni!
NutriLenkActive er
undraefni fyrir liðina
Nánari upplýsingar áwww.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.IS
NÁTTÚRULEGT
FYRIR LIÐINA
Flugfélagið easyJet kynnti vetr-
aráætlun félagsins fyrir veturinn
2013-2014 í gær en á því tímabili
hyggst það meira en tvöfalda starf-
semi sína hérlendis.
Ár er síðan easyJet hóf flug til og
frá Íslandi og eru áfangastaðir þess
héðan þrír; Lundúnir, Manchester
og Edinborg. Ákveðið hefur verið
að fljúga til borganna þriggja árið
um kring en frá og með febrúar á
næsta ári verður vikulegum ferðum
félagsins til Lundúna fjölgað úr
fjórum í sex og ferðum til Man-
chester úr tveimur í þrjár.
„Við erum í skýjunum með þessa
ákvörðun easyJet. Það er stór
áfangi í sögu flugvallarins þegar
stórt alþjóðlegt flugfélag er farið
að halda úti þremur flugleiðum til
og frá landinu árið um kring. Þessi
aukna starfsemi easyJet mun án efa
hafa jákvæð áhrif á ferðaiðnaðinn
hér á landi, þar sem félagið er í að-
stöðu til að ná til alveg nýrra mark-
hópa ferðamanna,“ segir Hlynur
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, í til-
kynningu frá easyJet.
Þar kemur einnig fram að gest-
um frá Bretlandseyjum hefur fjölg-
að um 35% það sem af er ári, sam-
anborið við sama tímabil í fyrra.
Tvöfalda
starfsemina
á Íslandi
Þrír áfangastaðir
árið um kring
Flug Sala er hafin á miðum í allt
flug félagsins næstu 12 mánuði.
Fjarskiptafyrirtækið Vodafone tekur yfir rekstur
allra núverandi dreifikerfa Ríkisútvarpsins, bæði
fyrir sjónvarp og útvarp, samkvæmt samningi sem
forsvarsmenn RÚV og Vodafone undirrituðu í gær.
Samkvæmt samningnum mun Vodafone annast staf-
ræna sjónvarpsdreifingu fyrir RÚV næstu 15 árin.
„Rekstur á FM- og langbylgjusendingum Rík-
isútvarpsins verður viðvarandi á samningstímanum
en gert er ráð fyrir að rekstur á hliðrænu sjón-
varpsdreifikerfi Ríkisútvarpsins leggist af í árslok
2014. Fyrir þann tíma mun Vodafone tryggja að
stafrænar útsendingar á tveimur háskerpurásum
fyrir Ríkisútvarpið standi 99,8% heimila til boða,“
segir í fréttatilkynningu frá Fjarskiptum hf.
„Ég fagna þessum merku tímamótum, sem eru í
raun þríþætt: Úr hliðrænni dreifingu í stafræna; úr
venjulegri sjónvarpsmynd í háskerpu og loks úr
einni rás í tvær,“ segir Páll Magnússon útvarps-
stjóri í sameiginlegri tilkynningu RÚV og Voda-
fone.
Samningurinn var gerður að undangengnu útboði
á evrópska efnahagssvæðinu og munu stafrænar út-
sendingar RÚV í háskerpu hefjast innan fárra
vikna.
Ríkissjónvarpið í háskerpu
Morgunblaðið/Eggert
Samningur Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone, og Páll Magnússon.
Ríkisútvarpið og Vodafone undirrita samning um stafræna
sjónvarpsdreifingu næstu 15 árin Hliðræna kerfið af 2014
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu
þurfti að sinna þremur útköllum
vegna sinubruna í gær. Í öllum til-
vikum hafði eldurinn slokknað af
sjálfu sér er slökkvilið kom á staðinn
og ekkert tjón hlaust af.
Tilkynnt var um fyrsta eldinn í
Hafnarfirði í gærmorgun, sá næsti
var við Skeifuna um hádegisbilið og
sá þriðji var við Kaldárselsveg um
klukkan 17.
Þrjú útköll
vegna sinu-
bruna
mbl.is
alltaf - allstaðar