Morgunblaðið - 28.03.2013, Side 22
22 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2013
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Skoðanakannanir benda til þess að
meirihluti Bandaríkjamanna sé
hlynntur því að hjónabönd para af
sama kyni verði heimiluð og samtök
samkynhneigðra og stuðnings-
manna þeirra vona að hæstiréttur
Bandaríkjanna kveði upp þann
tímamótaúrskurð síðar á árinu að
bann við slíkum hjónaböndum brjóti
í bága við stjórnarskrá landsins. Að
sögn bandarískra fjölmiðla telja þó
lögspekingar fátt benda til þess að
dómstóllinn komist að þeirri niður-
stöðu.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur
tekið fyrir tvö dómsmál sem hafa
verið höfðuð í tengslum við deiluna
um hjónabönd para af sama kyni.
Búist er við að dómstóllinn úrskurði
í málunum fyrir lok júnímánaðar.
Annað málið snýst um alríkislög
þar sem hjónabandið er skilgreint
sem samband karls og konu, svo-
nefnd DOMA-lög. Bill Clinton, þá-
verandi forseti, undirritaði lögin ár-
ið 1996 en síðan hafa fjórir
alríkisdómstólar og tveir áfrýjunar-
dómstólar hnekkt þeim. Barack
Obama forseti ákvað fyrir rúmum
tveimur árum að fyrirskipa dóms-
málaráðuneytinu að verja ekki lögin
fyrir rétti. Repúblikanar eru hins
vegar með meirihluta í fulltrúadeild-
inni og lögfræðingar á vegum þeirra
verja lögin fyrir hæstarétti í stað
dómsmálaráðuneytisins, auk lög-
fræðinga á vegum hreyfinga krist-
inna manna og íhaldsmanna.
Hjónabönd para af sama kyni
hafa verið heimiluð í níu sam-
bandsríkjum og í Washington-borg
en DOMA-lögin koma í veg fyrir að
samkynhneigð pör, sem gengið hafa
í hjónaband, njóti sömu réttinda og
gagnkynhneigð hjón. Edie Windsor,
83 ára lesbía, höfðaði málið vegna
þess að henni var gert að greiða
erfðaskatt að andvirði 363.000 doll-
ara (rúmra 20 milljóna króna) vegna
arfs sem hún fékk eftir sambýlis-
konu sína árið 2009. Þær bjuggu í
New York og gengu í hjónaband í
Kanada eftir að hafa búið saman í
rúm 40 ár. Ef Edie Windsor hefði
verið gift karlmanni hefði hún ekki
þurft að greiða erfðaskattinn.
Meirihluti styður hjónabönd
samkynhneigðra
Stjórn Obama var í fyrstu andvíg
því að Windsor höfðaði málið en
sneri við blaðinu og vill nú að
DOMA-lögin verði afnumin. Nokkr-
ir lögspekingar vestra hafa spáð því
að niðurstaða hæstaréttar Banda-
ríkjanna verði sú að DOMA-lögin
brjóti gegn rétti einstakra ríkja til
að setja hjúskaparlög sem heimila
hjónabönd para af sama kyni.
Hitt dómsmálið varðar bann við
hjónaböndum para af sama kyni í
Kaliforníu. Bannið var samþykkt í
allsherjaratkvæðagreiðslu í ríkinu
árið 2008 eftir að hjónabönd höfðu
verið leyfð þar.
Samkynhneigð pör, sem höfðu
gengið í hjónaband í Kaliforníu fyrir
bannið, höfðuðu málið og segja
bannið brot á stjórnarskrá Banda-
ríkjanna. Stuðningsmenn hjóna-
banda samkynhneigðra vona að
hæstirétturinn hnekki banninu og
úrskurði að ekkert sambandsríkj-
anna geti bannað hjónabönd para af
sama kyni. Ummæli dómara, sem
talið er að ráði úrslitum í málinu,
benda þó til þess að ólíklegt sé að
dómstóllinn kveði upp slíkan úr-
skurð, að sögn lögspekinga vestra.
Skoðanakannanir benda til þess
að stuðningurinn við hjónabönd
samkynhneigðra hafi stóraukist á
síðustu misserum og meirihluti
landsmanna sé hlynntur því að pör
af sama kyni geti gengið í hjóna-
band. Stuðningurinn er yfirgnæf-
andi meðal þeirra sem eru undir fer-
tugu.
Vonast eftir tímamótadómi
Hæstiréttur Bandaríkjanna tekur
fyrir tvö dómsmál í tengslum við deiluna
um hjónabönd para af sama kyni
*Lögleyfð árið 2009
1
2
8
Heimild: Mannréttindahreyfingin HRC
Níu ríki hafa leyft hjónabönd para af sama kyni
Lagalega staðan eins og hún er núna í Bandaríkjunum
Viðurkenna hjónabönd
samkynhneigðra para
sem giftast í öðrum ríkjum
Nýja-Mexíkó er eina
sambandsríkið sem
ekki er með nein sérstök
lög um hjónabönd
samkynhneigðra
Banni við hjónaböndum
samkynhneigðra hefur
verið skotið til hæstaréttar
KALIFORNÍA
Hjónabönd para af sama
kyni heimiluð
Massachusetts1 Massachusetts, 2004
Connecticut2 Co necticut, 2008
Iowa3 Iowa, 2009
4 Vermont, 2009
5 New Hampshire, 2010
NewYork6 NewYork, 2011
Heimila staðfesta samvist para
af sama kyni sem veitir þeim
sömu lagalegu réttindi og
hjónum
NewYork7 Maine, 2012
8 Maryland, 2012
9Washington, 2012
Hjónabönd para af sama kyni bönnuð
9
3
WASHINGTON DC*
6
4
7
5
AFP
Skiptar skoðanir Stuðningsmenn og andstæðingar hjónabanda samkyn-
hneigðra fyrir utan byggingu hæstaréttar Bandaríkjanna í Washington.
Unga fólkið frjálslyndara
» Viðhorfsbreyting almenn-
ings í Bandaríkjunum hefur
orðið til þess að margir for-
ystumenn demókrata hafa lýst
yfir stuðningi við hjónabönd
samkynhneigðra á síðustu
misserum, þ. á m. Obama í maí
á liðnu ári.
» Fáir af forystumönnum
repúblikana styðja hjónabönd
samkynhneigðra. Ný könnun
bendir til þess að 59% allra
repúblikana séu andvíg slíkum
hjónaböndum en stuðningur-
inn við þau sé að aukast meðal
ungra repúblikana.
Since 1921
Við höfum notað lífræna jurtaolíu í vörur okkar í meira en 90 ár. Þær hafa
marga frábæra eiginleika og næra húðina m.a. með vítamínum, andoxunar-
efnum og fitusýrum. Vörurnar okkar eru prófaðar af óháðum aðila* og eru
vottaðar NaTrue vörur. Olíurnar veita vellíðan styrkja og vernda þurra húð
- í samhljómi við mann og náttúru. www.weleda.is
Það er ekkert jafn
rakagefandi og olíurnar okkar
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland
*Derma Consult Concept GMBH
Útsölustaðir:
Apótek og Heilsuverslanir um allt land
Lögreglan í Króatíu, með aðstoð
Europol, hefur stöðvað starfsemi
peningaverksmiðju í Króatíu en þar
höfðu falsaðar evrur verið prent-
aðar í gríð og erg. Alls voru átján
menn handteknir en einn þeirra
hótaði lögreglumönnum með hand-
sprengju þegar þeir réðust til at-
lögu.
Glæpahópurinn sem stóð að pen-
ingafölsuninni hóf starfsemina í
október í fyrra en sérsvið þeirra
var prentun á 50 evru seðlum. Alls
tóku 150 lögreglumenn þátt í að-
gerðunum í fimm borgum Króatíu:
Bjelovar, Cakovec, Koprivnica, Va-
razdin og Zagreb. Sjálf prent-
smiðjan var til húsa í Bjelovar.
Glæpamaðurinn sem ógnaði lög-
reglunni var handtekinn í Zagreb.
Lögreglan yfirbugaði manninn áð-
ur en hann náði að henda sprengj-
unni og enginn særðist.
Talið er að allir þeir sem til-
heyrðu glæpahópnum hafi verið
handteknir í fyrradag. Hald var
lagt á prentbúnað, 3.600 eintök af
50 evru seðlum eða alls 180 þúsund
evrur. Auk 63 pakkninga af 50
punda seðlum sem átti eftir að
snyrta til, að því er fram kemur í
frétt á vef Europol.
KRÓATÍA
Prentuðu falsaðar evrur í gríð og erg
Lögreglan í bænum Strömstad í
Svíþjóð er við öllu búin vegna ár-
legrar „skírdagsinnrásar ölvaðra
Norðmanna“ og hefur tekið frá tíu
fangaklefa vegna þessa. Strömstad
er skammt frá landamærum Nor-
egs og Svíþjóðar og þangað fara
Norðmenn gjarnan til að kaupa
áfengi, sem er ódýrara í Svíþjóð.
Það er vinsæll siður meðal Norð-
manna að sækja bæinn heim á skír-
dag og gera þá vel við sig í drykk.
Ferðamálaskrifstofa bæjarins
segir að allt gistirými sé þegar þétt-
setið Norðmönnum og ákveðið hef-
ur verið að loka
áfengisversl-
uninni, System-
bolaget, í dag.
Spurður að því
af Aftenposten
hvort hann telji
að tíu fangaklef-
ar hýsi alla þá
Norðmenn sem
muni vera með
ólæti svarar lög-
reglumaður Henrik Rörberg því til
að fari svo að klefarnir fyllist, þá
þurfi fleiri að deila fleti.
SVÍÞJÓÐ
Búa sig undir innrás ölvaðra Norðmanna
Frá Strömstad í
Svíþjóð.