Morgunblaðið - 28.03.2013, Page 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2013
New York. AFP. | Hún er blind, en
þegar bandaríska konan Barbara
Appel rennir fingrunum yfir andlit
á skúlptúr eftir Picasso í Nútíma-
listasafninu (MoMA) í New York
andvarpar hún af sælu.
Flestir listunnendur fara á söfn
til að horfa á listaverkin en í augum
sumra gestanna í MoMA er ástin á
listinni blind. Í hverjum mánuði er
hópi blindra listunnenda hjálpað að
njóta listaverkanna undir leiðsögn
listfræðinga.
„Með þessu finnst mér ég tengj-
ast listinni sem ég hef alltaf unnað,“
segir Appel, sem er fyrrverandi
skartgripahönnuður.
Blindu gestirnir fá að snerta
skúlptúra í listasafninu en ekki
málverk eða teikningar. Þeir þurfa
að reiða sig á leiðsögumennina sem
beita öllum ráðum til að hjálpa
gestunum að sjá listaverkin fyrir
sér og höfða til allra skynfæranna.
Deborah Goldberg, einn listfræð-
inganna sem taka þátt í þessu verk-
efni, segir að vinnan með blinda
fólkinu hafi að nokkru leyti opnað
augu hennar fyrir listinni. „Það
hjálpar mér að sjá og skilja lista-
verkin betur, vegna þess að ég þarf
að lýsa þeim og gera þau skynj-
anleg,“ segir Goldberg.
AFP
Ástin á listinni er blind Barbara Appel, 62 ára bandarísk kona sem missti sjónina fyrir tíu árum, snertir brons-
skúlptúr eftir Picasso í Nútímalistasafninu í New York. Eiginmaður hennar, Barry, fylgist með.
Blindum hjálpað að njóta listarinnar
David Miliband,
fyrrverandi
utanríkis-
ráðherra Bret-
lands, tilkynnti í
gær að hann
hefði ákveðið að
hætta í stjórn-
málunum. Mili-
band hyggst láta
af þingmennsku
og hefja störf
sem framkvæmdastjóri hjálp-
arsamtakanna International
Rescue Committee (IRC) sem eru
með höfuðstöðvar í New York.
Miliband var álitinn líklegur til
að verða eftirmaður Gordons
Browns sem leiðtogi Verkamanna-
flokksins eftir ósigur hans í þing-
kosningum árið 2010. Svo fór hins
vegar að hann beið ósigur fyrir
yngri bróður sínum, Ed, sem naut
stuðnings verkalýðsforingja.
Breskir fjölmiðlar segja að leið-
togaslagurinn hafi valdið spennu í
fjölskyldunni og ekki sé enn gróið
um heilt. Ed Miliband sagði brott-
hvarf bróður síns mikinn missi fyrir
bresk stjórnmál.
BRETLAND
David Miliband
segir skilið við
stjórnmálin
David
Miliband
Um 1.500 manns tóku þátt í mótmæl-
um í Nikosíu í gær gegn skilmálum
neyðarláns sem Kýpur verður veitt
til að bjarga bönkum landsins.
Kommúnistaflokkurinn Akel stóð
fyrir mótmælunum og þátttakend-
urnir hrópuðu vígorð gegn „þríeyk-
inu“ sem setti skilmálana, þ.e. Evr-
ópusambandinu, Seðlabanka Evrópu
og Alþjóðagjaleyrissjóðnum.
Stefnt var að því að bankar yrðu
opnaðir í dag eftir að hafa verið lok-
aðir í tólf daga. Fjölmiðlar sögðu að
stjórnvöld hygðust grípa til ýmissa
ráðstafana, m.a. gjaldeyrishafta, til
að koma í veg fyrir áhlaup á bankana
þegar þeir hæfu starfsemi að nýju.
Að sögn fjölmiðlanna verður
ferðamönnum bannað að fara með
meira en 3.000 evrur út úr landinu og
tollvörðum verður heimilað að leita
að peningum í farangri. Notkun kýp-
verskra kreditkorta erlendis verður
takmörkuð við 5.000 evrur á mánuði.
Kýpurmenn geta lagt ávísanir inn á
bankareikninga en ekki skipt þeim í
reiðufé.
Samkvæmt skilmálum neyðar-
lánsins á einnig að endurskipuleggja
Kýpurbanka, stærsta banka lands-
ins, og draga úr umsvifum næst-
stærsta bankans, Laiki. Bankastjóri
Kýpurbanka sagði af sér í gær og
kýpverskir ríkisfjölmiðlar sögðu að
seðlabankastjóri landsins hefði knú-
ið hann til afsagnar að fyrirmælum
Evrópusambandsins og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins.
Fjármálaráðherra Kýpur, Michal-
is Sarris, sagði að þeir sem ættu
meira en 100.000 evrur á reikningum
hjá Laiki-bankanum gætu tapað allt
að 80% af innistæðunum. Áður hafði
verið skýrt frá því að viðskiptavinir
Kýpurbanka gætu tapað allt að 40%
af innistæðum sínum. bogi@mbl.is
Skilmálum ESB
og AGS mótmælt
Komið á gjaldeyrishöftum á Kýpur
AFP
Reiði Skilmálum neyðarlánsins var
mótmælt í Nikosíu í gær.
Einstök gæði á góðu verði
og vaxtalaus greiðsludreifing í 12 mánuði
Eldhúsinnréttingar
Þín veröld
X
E
IN
N
IX
13
02
00
2
Innréttingar
Skrifstofuhúsgögn
BoConcept
Íslensk hönnun
Sendum fermingargjafirnar
frítt innanlands!
www.jens.is
www.uppsteyt.is
Síðumúla 35
Kringlunni og
11.900.-
10.800.-
Fermingar 2013
12.900.-
12.300.-
7.600.-
11.400.-
7.900.-
9.900.-
7.900.-
8.200.-