Morgunblaðið - 28.03.2013, Side 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2013
Elsku amma Lóa, loks
fékkstu hvíldarsvefninn lang-
þráða.
Mig langar að kveðja þig með
nokkrum orðum og þakka þér
fyrir allt og allt. Mér verður
hugsað til þess hvernig þú alla
tíð og fram á síðustu stundu
passaðir upp á að allir fengju af-
mælis- og jólagjafir, alltaf svo
rausnarleg. Merkilegt þótti mér
hvernig þú náðir að fylgjast með
barnahópnum sem fór ört
stækkandi.
Alltaf þótti mér gaman að
hitta þig amma, fannst þú
skemmtilega stjórnsöm og hafði
ég gaman af því að hlusta á
spjall ykkar pabba, sá þá hvað
margt er líkt með skyldum. Það
var líka eins gott að koma ekki
saddur í þín hús því þaðan fór
maður ekki án þess að hafa þeg-
ið veitingar. Þú bakaðir líka
heimsins bestu pönnukökur og
sem krakki tengdi ég pönnukök-
ur alltaf við Lóu ömmu, sem
bakaði á tveim pönnum. Já þér
var ýmislegt til lista lagt og held
Helga Guðfríður
Guðmundsdóttir
✝ Helga Guð-fríður Guð-
mundsdóttir fædd-
ist á Litlu-Brekku,
Borgarhreppi, 28.
október 1916. Hún
lést í Brákarhlíð,
dvalarheimili aldr-
aðra í Borgarnesi,
14. mars 2013.
Útför Helgu
Guðfríðar fór fram
frá Borgarnes-
kirkju 20. mars 2013.
ég mikið upp á það
sem þú föndraðir
og gafst mér, eins
og „postulíns“-jóla-
tréð með rauðu
ljósunum sem ég
hlakka til að setja
upp á hverjum jól-
um, svo fallegt. Þú
hafðir líka dásam-
lega söngrödd og
virtist kunna öll lög
og er mér minnis-
stætt þegar þú varst að syngja
með Birnu minni lagið Ljúfa
Anna, það minnir alltaf á þig.
Ef eitthvað er sem lýsir þér
betur en annað þá er það glæsi-
leikinn sem þú bjóst yfir og
reisnin, já reisnin, þú hafðir
mikla reisn alveg til síðasta dags
er ég hitti þig. Alltaf varstu svo
smekkleg og vel til höfð og
skipti þá engu hvort þú varst á
hestbaki eða hvað.
Þú ert góð fyrirmynd, amma
mín, og mér hefur alltaf þótt
mikið til þín koma. Ég ætla ekki
að draga þessa kveðju á langinn,
þú varst heldur ekkert fyrir það.
Minning þín mun lifa alla tíð og
ljós þitt mun skína áfram.
Ég veit að vorið kemur
og veturinn líður senn.
Kvæðið er um konu,
en hvorki um guð né menn.
Hún minnti á kvæði og kossa
og kvöldin björt og löng
og hvíta, fleyga fugla
og fjaðraþyt og söng.
Og svipur hennar sýndi,
hvað sál hennar var góð.
Það hló af ást og æsku,
hið unga villiblóð.
Ég bý að brosum hennar
og blessa hennar spor,
því hún var mild og máttug
og minnti á – jarðneskt vor.
(Davíð Stefánsson)
Elsku Pabbi, Steini, Gúffa,
Billó og aðrir aðstandendur,
ykkur votta ég samúð mína.
Hvíl í Guðs friði, elsku amma.
Helga Nanna
Guðmundsdóttir
„Alltaf er hann bestur blái
borðinn betri en nokkurt
smjör.“
Með þessum orðum fylgdi
hlýr faðmur og kærleikur ávallt
þegar ég kom hlaupandi inn í
eldhús til Lóu ömmu í Borg-
arnesi.
Elskuleg amma mín, Helga
Guðfríður Guðmundsdóttir eða
Lóa eins og hún var jafnan köll-
uð, var jarðsungin frá Borgar-
neskirkju 20. mars sl. Bjartur
og fallegur dagur vorjafndægur
þegar birtan tekur völdin og
jörðin klæðist litum.
Ég var svo heppin í uppvexti
mínum að alast upp hjá ömmu
Lóu og afa Sigursteini fram að
skólaskyldu og síðar sumarvist
þar til hún flutti til Reykjavíkur
á Fornhagann. Heima á Bröttu-
götu 2 voru líka foreldrar henn-
ar langamma Guðfríður og
langafi Guðmundur svo það má
segja að alltaf var einhver til
staðar fyrir mig hnátuna þegar
ég þurfti á að halda.
Það var gestkvæmt á Bröttu-
götunni fólki þótti gott að heim-
sækja ömmu og afa og sveit-
ungar áttu þar jafnan viðkomu
að loknu erindi í kaupstaðinn.
Gestrisni einkenndi Lóu
ömmu alla tíð og eins gott að
koma til hennar á fastandi maga
því annars gat maður átt í vanda
með kræsingarnar er áttu það
til að koma að því er virtist
endalaust á borðið.
Búrið hennar ömmu var jafn-
an stútfullt af kræsingum og var
höndlað í kassavís í þá daga,
eins og tómatar og epli og þótti
mér gott að gleyma mér þar inni
í allsnægtum
Amma var mjög félagslynd,
tók þátt í ýmsum störfum, s.s.
kórsöng og félagsstörfum í
hestamannfélaginu Faxa. Man
ég eftir mér undir pylsupott-
inum í sölutjaldi á Hvítárbökk-
um á hestamannamóti Faxa og
við vígslu dvalarheimilis aldraða
í Borgarnesi þar sem kórinn tók
lagið heyrði barnseyrað hæst í
ömmu sinni eða þegar spilað var
bridds heima í stofu og hún
sagði þrjú grönd. Já, þetta eru
mér dýrmætar minningar ávallt
ys og þys – glatt á hjalla í bland
við alvöru hvunndagsins.
Hestar áttu líka hug hennar
allan og var ég svo heppin að fá
hann Grána að láni einn vetur
1992 sem markaði upphaf minn-
ar hestamennsku. Gráni var
skrýtin skrúfa og kenndi mér
allt um hvernig hestar eiga ekki
að vera og skildi leiðir eftir þann
vetur. Ekki hefur henni fundist
ég með öllu glataður reiðmaður
því hún fékk mér Ljúfling til af-
nota en hann var hennar uppá-
haldsreiðhestur og hlustaði ég á
margar fræknar sögur af þess-
um stólpagæðingi sem hann var
henni.
Sittu fastar í hnakkinn stelpa!
og mundu svo að keipa við
tauminn.
Já, elsku amma mín, hafðu
ávallt þökk fyrir ástúð og kær-
leiksstundir í lífsins ólgusjó.
Guð blessi þig og varðveiti.
Helga
Olgeirsdóttir.
✝ Sigurvaldi ÓliIngvarsson
fæddist á Kárastöð-
um í Svínavatns-
hreppi 8. mars
1935. Hann lést í
Reykjavík 15. októ-
ber 2012.
Foreldrar hans
voru hjónin Ingvar
Friðrik Ágústsson
1906-1996 og Sig-
urlaug Jósefína
Sigurvaldadóttir 1914-1986.
Faðirinn Ingvar var sonur
Ágústs Sigfússonar hagyrðings
sem oft var kenndur við Selland
í Blöndudal og konu hans Sig-
urlaugar Bjarnadóttur. Móðir
Sigurvalda, Sigurlaug, var dótt-
ir Sigurvalda Óla Jósefssonar
sem lengi var bóndi á Eldjárns-
stöðum í Blöndudal og konu
hans Guðlaugar Hallgríms-
dóttur. Þau Ingvar og Sigurlaug
hófu búskap á Kárastöðum en
fluttust síðan á næsta bæ, Ása,
og bjuggu þar í áratugi. Kára-
staðir og Ásar eru á Bakásum
norðan Sólheimaháls við Blöndu,
báðir bæir nú í eyði. Sigurvaldi
var elsta barn foreldra sinna en
alls urðu þau ellefu og lifa systk-
inin tíu bróður sinn: Sigmar,
Erla, Guðlaug, Hreinn, Hannes,
Reykjavíkur, vann ýmis tilfall-
andi störf og lauk stúdentsprófi
utanskóla. Hann hlaut afreks-
bikar á sjómannadeginum á Ísa-
firði 1959 fyrir djarflega björg-
un í sjávarháska. Sigurvaldi var
við nám við Komsomolskólann í
Moskvu veturinn 1961-1962.
Fljótlega eftir það hélt hann aft-
ur utan og dvaldist erlendis, að-
allega í Danmörku og Svíþjóð, í
vel hálfan annan áratug og
stundaði margvíslega vinnu,
mest við málmsmíði, en sótti
einnig háskólanám í Odense. Ár-
ið 1979 fluttist hann til Íslands
með son sinn Hjálmar barn-
ungan, vann verkamannavinnu á
Akureyri og Ísafirði, kenndi á
Höfn í Hornafirði og síðan við
Reykholtsskóla í Borgarfirði
1985-1987. Eftir það lá leiðin aft-
ur til Svíþjóðar þar sem feðg-
arnir bjuggu í grennd við Gauta-
borg í rúman áratug. Þeir
Hjálmar fluttust síðan heim til
Íslands og áttu síðustu árin
heima á Gullengi við Grafarvog.
Sigurvaldi kvæntist ekki en var
fyrr á árum í sambúð oftar en
um sinn. Hann eignaðist þrjú
börn: Helgu 1957 með Aðal-
björgu Guðmundsdóttur, Helga
á dæturnar Hönnu Líbu og
Naomi Leu; Sævar 1957 með
Erlu Gunnarsdóttur, Sævar á
synina Sævar og Sindra. Hjálm-
ar Hrafn fæddist erlendis 1973,
móðir Margrét Sveinsdóttir.
Sigurvaldi var jarðsunginn í
kyrrþey frá Grafarvogskirkju
24. október 2012.
Erlingur Bjartmar,
Hörður Viðar, Guð-
mundur, Sigurlaug,
Bára. Sigurvaldi
var snemma settur
til verka eins og
þau systkin og varð
góður verkmaður,
snarpur og fylginn
sér. Hann varð vel
að manni svo sem
verið höfðu ýmsir í
frændgarði hans.
Ungur gerði hann sér að leik að
synda yfir Blöndu fram og aftur.
Þegar í barnaskóla var ljóst að
hann var góðum gáfum gæddur,
allt lá opið fyrir honum. Með ár-
unum gerðist Sigurvaldi fjöl-
fróður maður og þótti skemmti-
legur viðræðu. Á stundum lifði
Sigurvaldi lausungarlífi og var
þá ölkær og örlátur. Verald-
legar eigur íþyngdu honum
ekki. Á fullorðinsárum sóttu
geðveilur ítrekað að Sigurvalda
sem að lokum varð til þess að
hann missti starfsgetu fyrir ald-
ur fram. Sigurvaldi var tvo heila
vetur við nám á Laugarvatni,
fyrst í 2. bekk héraðsskólans,
síðan í fyrsta bekk mennta-
skólanáms jafnframt því sem
hann lauk landsprófi með láði
vorið 1952. Hélt nokkru síðar til
Ég kem ekki alltaf auga á
þig, bróðir, segir í kvæði eftir
Nordahl Grieg, og þeim orðum
er nú snúið að Sigurvalda Ingv-
arssyni, samferðamanni okkar
sem við vissum oftast færra af
en fleira. Var hann þó eftir-
minnilegur og örlög hans nær-
göngul við okkur á minninga-
vegum.
Við skólabræður hans á
Laugarvatni vissum ekki af and-
láti hans 15. október síðastliðinn
fyrr en allnokkru síðar – því eru
ekki fyrr en nú sett saman
nokkur fátækleg minningarorð
um gamlan félaga okkar.
Hann kom á Laugarvatn úr
húnvetnskri sveit, fríður sýnum,
hlédrægur, námsgáfur frábærar
og kappið svo mikið að hann
gerði tvennt í senn: ljúka lands-
prófi með afbragðseinkunn og
taka fyrstabekkjarpróf í
Menntaskólanum. Kannski var
þetta of stór skammtur erfiðis á
einum vetri, hver veit? Nema
hvað: einhverjir þræðir byrja að
rakna í sundur, Sigurvaldi
hverfur úr augsýn, fer til
Reykjavíkur, vinnur í banka og
á sjó, eignast tvö börn, tekur
stúdentspróf utanskóla. Fáir
vissu meir og flestir minna.
Haustið 1961 er hann kominn
til Moskvu og lærði þar sov-
étmarxisma sem fór ekki vel í
hann, enda var í honum sterkur
anarkískur strengur. Þar sagði
hann mér frá stórtíðindum.
Í ársbyrjun 1959 var hann á
togara á Nýfundnalandsmiðum.
Hann er kallaður á vakt og um
leið og hann kemur upp á dekk
heyrir hann hrópað: maður fyrir
borð – og snarar sér umsvifa-
laust á eftir skipsfélaga sínum
út í ískaldan ólgusjóinn og nær
honum og kom honum um borð.
Ég veit ekki hvers vegna ég
gerði þetta, sagði Sigurvaldi –
en rétt áður lá ég uppi í koju og
las skáldsöguna „Hið rauða
merki hugrekkisins“ eftir Steph-
en Crane. Atburðurinn lýsir Sig-
urvalda vel: viðbrögð hans í
háska eru í senn fífldjörf og hik-
laus. Ég hefi líka heyrt að síðar
hafi hann bjargað manni úr
brennandi húsi.
Svo hverfur Sigurvaldi mér
og öðrum, hann er lengst af í
Danmörku og Svíþjóð, við
margskonar vinnu og nám og el-
ur upp son sinn Hjálmar, sem
var honum sú taug sem best
batt hann við lífið. Síðustu árin
bjuggu þeir feðgar í Reykjavík
og þá heimsóttu þeir mig alloft.
Við drukkum mikið kaffi og Sig-
urvaldi talaði margt um þá hluti
sem mestu varða. Ég varð
hvorki var við áfengisvanda,
sem bar mikið á í Moskvu, né
það myrka þunglyndi með geð-
hvörfum sem mér er tjáð að oft
hafi spillt samskiptum hans við
aðra. Sigurvaldi var stóryrtur
við að úthúða höfðingjum,
skemmtilega ósanngjarn við
„ykkur kratana“, skarpur í nið-
urrifi, víðlesinn, rótttækur í allri
kröfugerð og fannst að liðleskj-
ur og smáborgarar hefðu með
hálfvelgju og dáðleysi svikið
bæði Karl Marx og Jesúm frá
Nasaret, en þeir voru hans
menn, hvor á sinn hátt.
Þegar Sigurvaldi hringdi í
mig í síðasta sinn var ég vant
við látinn og heyrði að auki illa
til hans. Ég bað hann hringja
seinna – en af því varð ekki. Það
kveðjusamtal reyndist með
nokkrum hætti í anda alls hans
lífs: maður horfir til þess með
eftirsjá, þar er svo margt sem
hefði getað orðið. En eftir
stendur minning um hreinskipt-
inn, stríðlyndan og greindan
mann sem þekkti margar borgir
en átti því miður hvergi heima.
Árni Bergmann.
Sigurvaldi Óli
Ingvarsson
Elsku besta amma mín,
Nú er tími þinn hér hjá okkur
liðinn og margar minningar
koma upp í hugann.
Lillý amma, þú varst einstök
amma. Bauðst okkur systkinun-
um ætíð upp á eitthvað sem þú
vissir að við fengjum ekki heima
fyrir eins og Cocoa Puffs og
karmellusúrmjólk svo ekki sé
minnst á bíóferðirnar á nýjustu
spennumyndirnar. Fyrir stelpu
utan af landi eins og mig var
þetta hin mesta upplifun og er
mér enn þann dag í dag svo
minnisstætt.
Ég er óendanlega stolt af því
Málfríður
Jónsdóttir
✝ MálfríðurJónsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 26. febrúar
1930. Hún lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Sunnuhlíð í
Kópavogi 17. mars
2013.
Útför Málfríðar
var gerð frá
Digraneskirkju í
Kópavogi 22. mars
2013.
að vera nafna þín
og ég verð bara
stoltari með árun-
um, þá sérstaklega
þegar einhver
bendir á að við
séum nú svolítið
líkar í máli og hátt-
um. Þú varst
hörkukona og strax
frá barnæsku byrj-
aði ég að líta upp til
þín. Þú hafðir
nefnilega alltaf svör við öllu og
leyndir svo sannarlega aldrei
skoðunum þínum á hlutunum.
Ég er mjög þakklát fyrir að
stelpurnar mínar fengu að kynn-
ast þér og fyrir að eiga af ykkur
myndir saman.
Elsku amma, ég kveð þig með
söknuði, hlýju í hjarta og þakk-
læti fyrir allar þær yndislegu
stundir sem við áttum saman.
Aldrei fellur á þig ryk
fyrir innri sjónum mínum.
Átt hef ég sælust augnablik
í örmunum sterku þínum.
(Þura í Garði.)
Þín nafna,
Málfríður (Lillý).
Elsku afi.
Þótt aldursmunurinn á okkur
hafi verið 70 ár þá náðum við vel
saman. Ég er elstur af barna-
börnunum og naut þeirra for-
réttinda að fá að kynnast þér í
fullu fjöri og liprum á fæti.
Við áttum margar góðar
stundir saman og fyrir þær er ég
þakklátur. Ég man eftir því þeg-
ar þú sóttir mig á leikskólann
eftir hádegi á hverjum degi í
heilan vetur. Alltaf færðir þú
mér eina karamellu og á henni
smjattaði ég á leið okkar í
Mjóddina þar sem við tókum
strætó niður á Laugarnesveg-
inn.
Ég á líka margar góðar minn-
ingar frá Laugarnesveginum
þar sem þið amma bjugguð. Þú
varst mikill útivistarmaður og
því fórum við oft út á Laugar-
nestanga, kíktum í fjöruna og
enduðum yfirleitt ferðina á að
skylmast með njólum á hólnum.
Þú varst líka duglegur að taka
mig með í Ferðafélagið og þar
fékk ég að dunda mér á meðan
þú varst að vinna. Þetta voru
góðar stundir.
Steingrímur
Ingólfsson
✝ SteingrímurIngólfsson
fæddist á Tjörn í
Aðaldal, Suður-
Þingeyjarsýslu, 9.
nóvember 1920.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skógarbæ í Reykja-
vík 12. mars 2013.
Útför Steingríms
Ingólfssonar var
gerð frá Laug-
arneskirkju í Reykjavík 22.
mars 2013.
Þú kenndir mér
líka margt. Ég var
flugsyndur þegar
ég byrjaði í skóla og
það er þér og þol-
inmæði þinni að
þakka. Þú varst
miklu duglegri að
fara með mig í sund
en foreldrar mínir
og notaðir hverja
sundferð til að
kenna mér listina
að synda og stinga mér. Mamma
sendi mig líka reglulega til þín
þegar ég átti landafræðipróf fyr-
ir höndum því það var ekki
hennar sterkasta hlið en hún
vissi að þar varst þú á heima-
velli. Ég gleymi aldrei þegar við
eyddum heilum degi í að skoða
landakort í staðinn fyrir að lesa í
bókinni. Um kvöldið las ég svo
bókina og daginn eftir tók ég
próf upp á 11 – aukaspurning-
arnar snerust nefnilega um að
merkja staði inn á landakort og
ég raðaði þeim inn eins og ekk-
ert væri og fékk marga plúsa að
launum. Ég man líka hvað þú
varst stoltur þegar ég hringdi í
þig og las fyrir þig einkunnirnar
mínar í öllum annarlokum í
grunnskóla, þér fannst greini-
lega mikið til þess koma að okk-
ur systkinunum gengi vel í skóla.
Á stundum sem þessum er
gott að eiga minningar um
skemmtilegar stundir. Það var
alltaf gott að koma til ykkar
ömmu og finna hve ykkur þótti
vænt um mig. Ég er þakklátur
fyrir margt og veit að þín bíða á
nýjum stað falleg fjöll til að dást
að og klífa yfir.
Þinn,
Þórhallur Dan.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is
má finna upplýsingar um inn-
sendingarmáta og skilafrest.
Einnig má smella á Morg-
unblaðslógóið efst í hægra horn-
inu og velja viðeigandi lið
Minningargreinar
Blóm eru okkar fag
Útfaraskreytingar
Samúðarblóm
REYKJAVÍKURBLÓM
BORGARTÚNI 23 S: 561-1300
www.reykjavikurblom.is