Morgunblaðið - 28.03.2013, Blaðsíða 37
fjölskyldan flutti til Akureyrar í árs-
lok 1999 og hefur búið þar síðan.
Á Akureyri keyptu þau hjónin hús
við Mýrarveg sem Auður gerði upp
að mestu sjálf. Þau seldu síðan hús-
ið, bjuggu við Þórunnarstræti um
skeið, en festu síðan kaup á gömlu
iðnaðarhúsnæði við Gránufélags-
götu þar sem þau starfrækja fyr-
irtækið sitt á neðri hæð, en búa síðan
sjálf á efri hæðinni.
Fyrirtækið stofnuðu þau fyrir
nokkrum árum en hófu síðan að
framleiða gamaldags kalkmálingu
sem þau kalla Kalkliti. Málinguna
selja þau í Litalandi á Akureyri og í
Reykjavík, auk þess sem þau flytja
hana út í vaxandi mæli til Finnlands,
Noregs og Svíþjóðar. Kalklitirnir
sem má sjá á vefsíðunni Kalklit-
ir.com, gefa matta áferð og milda
móskuliti en þeir eru einkum notaðir
á veggi innanhúss.
Mömmur og möffins
Auður er upphafsmanneskjan að
uppákomunni Mömmur og möffins:
„Þetta byrjaði allt saman á því að
ég og dætur mínar ákváðum að baka
möffins og bjóða vinkonum okkar í
möffinspartí. Einhverra hluta vegna
spurðist þetta út og áður en varði
var kominn fjöldinn allur af konum
sem vildu endilega baka möffins,
gefa öðrum að smakka og fá að
smakka möffins hjá öðrum.
Við Margrét Jónsdóttir, leirlist-
arkona og nágranni minn, fórum að
velta því fyrir okkur hvort ekki yrði
sniðugt að halda svona möffinsupp-
ákomu í Lystigarðinum. Ég ræddi
við Margréti Blöndal þáttagerð-
arkonu sem þá var að skipuleggja
hátíðina Eina með öllu og möffins-
uppákoman varð þá eitt af dag-
skráratriðum hátíðarinnar. Frá
árinu 2010 hefur svo mikill fjöldi
kvenna bakað möffins fyrir uppá-
komuna í Lystigarðinum sem þar er
að finna hverja verslunarmanna-
helgi. Allur ágóðinn af möffinssöl-
unni hefur svo runnið til fæðing-
ardeildar FSA. Þetta er því alveg
ótrúlega skemmtileg uppákoma en í
leiðinni hið mesta þarfaþing fyrir
fæðingardeildina.“
Fjölskylda
Eiginmaður Auðar er Hjörtur
Fjeldsted, f. 18.10. 1960, útgerð-
artæknir og fyrrv. sölu- og markaðs-
stjóri hjá alþjóðlegum jurtaolíufyr-
irtækjum en er nú framleiðandi
Kalklita þeirra hjóna. Hann er sonur
Hjartar Fjeldsted sem er látinn,
framkvæmdastjóra Skipaþjónust-
unnar, og Guðrúnar Randheiðar Sig-
urðardóttur húsfreyju.
Börn Auðar og Hjartar eru Viktor
Helgi, f. 30.7. 1987, snjóbrettakenn-
ari og nemi á Akureyri; Fanný
Heiða, f. 25.1. 1990, lögfræðinemi við
HA og skiptinemi á Sikiley; Ágústa
Hrönn, f. 18.9. 1994, nemi við MA.
Alsystir Auðar er Agnes Heiða, f.
22.6. 1961, lífeindafræðingur.
Hálfsystur Auðar, samfeðra: Arna
Hrönn, f. 15.3. 1978, tækniteiknari
og starfsmaður hjá Höldi; Halla
Hrund, f. 7.10. 1979, að ljúka MA-
námi í tölvuverkfræði.
Hálfbróðir Auðar, sammæðra: Al-
mar Alfreðsson, f. 7.10. 1980, vöru-
hönnuður.
Foreldrar Auðar: Skúli Gunnar
Ágústsson, f. 23.2. 1943, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri hjá Höldi, og Helga
Haraldsdóttir, f. 19.3. 1943, fyrrv.
lífeindafræðingur.
Úr frændgarði Auðar Helgu Skúladóttur
Auður Helga
Skúladóttir
Guðný Helgadóttir
húsfr. í Haganesi á Húsavík
Sigurður Jón Flóventsson
verslunarmaður í Haganesi
á Húsavík
Sigríður Pálína Jónsdóttir
húsfr. á Akureyri
Haraldur Sigurgeirsson
verslunarm. og gjaldkeri
á Akureyri
Helga Haraldsdóttir
lífeindafræðingur á Akureyri
Júlíana Friðrika Tómasdóttir
húsfreyja á Stóruvöllum og
síðar á Akureyri
Sigurgeir Jónsson
b. á Stóruvöllum í Bárðardal og organisti
og söngkennari á Akureyri
Guðbjörg Alexandersdóttir
húsfr. á Ásgrímsstöðum
Ágúst Ásgrímsson
b. á Ásgrímsstöðum
í Hjaltastaðasókn
Helga Jóhanna Ágústsdóttir
húsfr. á Þórshöfn og á Akureyri
Ágúst Georg Steinsson
verslunarm. á Þórshöfn og Akureyri
Skúli Gunnar Ágústsson
framkvæmdastj. á Akureyri
Valgerður Jónasdóttir
húsfr. á Spena
Steinn Ásmundsson
b. á Spena í Fremri-Torfustaðahreppi
Afmælisbarnið Auður Helga.
ÍSLENDINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2013
Ólafur Ísberg Hannesson útskrifaðist
nýverið með doktorsgráðu í Evrópu-
rétti frá Evrópuháskólanum í Flórens
eftir að hafa varið doktorsritgerð sína
„Giving effect to EEA Law? Examining
and Rethinking the Role and Rela-
tionship between the EFTA Court and
the Icelandic National Courts in the
EEA Legal Order“ um samband EFTA-
dómstólsins og íslenskra dómstóla.
Ólafur rannsakaði stöðu og fram-
kæmd EES-samningsins í dómafram-
kvæmd EFTA-dómstólsins og í ís-
lenskri dómaframkvæmd. Auk dóma
EFTA-dómstólsins tók Ólafur m.a. til
skoðunar tæplega hundrað dóma ís-
lenskra dómstóla þar sem rétt-
arágreiningur snéri á einn eða annan
hátt að EES-rétti. Niðurstöður sýna
mörg dæmi þess að íslenskir dóm-
stólar haga réttarframkvæmd á þann
veg að þau réttindi sem samningurinn
mælir fyrir um eru ekki virt. Ástæða
þessa er m.a. sú að íslenskir dóm-
stólar hafa jafnan skýrt íslenskar regl-
ur sem upprunnar eru í tilskipunum
EES-réttar samkvæmt orðanna hljóð-
an án þess að litið sé til þess tilgangs
sem þær tilskipanir þjóna. Þá leiðir
rannsóknin einnig líkur að því að
ákveðinnar tregðu gæti hjá íslenskum
dómstólum við að bera álitamál undir
EFTA-dómstólinn.
Leiðbeinendur Ólafs við rannsókn-
irnar voru próf. Ernst-Ulrich Pet-
ersmann við Evrópuháskólann í Flór-
ens (aðalleiðbeinandi) og próf. Elvira
Mendez Pinedo við Háskóla Íslands
(meðleiðbeinandi). Auk þeirra voru
andmælendur við doktorsvörnina próf.
Miguel Poiares Maduro frá Evrópuhá-
skólanum í Flórens og próf. Páll
Hreinsson, dómari við EFTA-
dómstólinn.
Ólafur fæddist í Lundi 22. febrúar 1981. Foreldrar hans eru Hannes Ísberg
Ólafsson framhaldsskólakennari og Kristín Gunnarsdóttir sjóntækjafræðingur.
Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 2001, BA-prófi í
lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2005, meistaraprófi frá lagadeild Háskóla Ís-
lands árið 2008 og LL.M.-gráðu frá Evrópuháskólanum í Flórens árið 2009.
Meðan á doktorsnáminu stóð vann Ólafur í 7 mánuði við EFTA-dómstólinn í
Lúxemborg (2011-2012). Hann starfar nú hjá Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel.
Doktor
Doktor í lögfræði
28. mars
85 ára
Brynhildur J. Bjarnarson
Dóra Nordal
Einar Valmundsson
Eiríka Þórðardóttir
Gunnar M. Steinsen
Heiður Jóhannesdóttir
80 ára
Ásbjörg Jónsdóttir
Guðleif K. Jóhannesdóttir
Hreiðar Jósteinsson
Jóna Höskuldsdóttir
Kristín Jónsdóttir
75 ára
Fjóla Filippía Jónsdóttir
Guðmunda M.
Þorleifsdóttir
Hansína Ósk Lárusdóttir
Helga Þórdís Tryggvadóttir
Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Sigurður H. Hreiðarsson
70 ára
Ágústa Baldvinsdóttir
Jónas Helgi Guðjónsson
Lilja Ólafsdóttir
60 ára
Friðjóna Hilmarsdóttir
Katrín Lilja Haraldsdóttir
Kristinn Sófus Pálmason
Sigríður Þórhallsdóttir
Sigurður Ari Elíasson
Valgerður H. Valgeirsdóttir
50 ára
Anna Ingibergsdóttir
Baldur Þór Sveinsson
Finnur Loftsson
Hákon Viðar Sigmundsson
Hulda Einarsdóttir
Ingibjörg H. Baldursdóttir
Jóhanna Sigfúsdóttir
Katrín Ragna
Rögnvaldsdóttir
Kolfinna Snæbjörg
Magnúsdóttir
Kristjana S. Kristjánsdóttir
Krystyna Boryn
Mekkín Ísleifsdóttir
Ragnheiður A.
Haraldsdóttir
Sigríður Margrét
Hlöðversdóttir
Sigurður Þórir Hauksson
Sigurður Þórisson
40 ára
Bianca Elisabeth Treffer
Dagbjört Ásbjörnsdóttir
Dariusz Bielawski
Dejan Lazic
Helga Auðardóttir
Hólmfríður Árnadóttir
Lilja Brynja Skúladóttir
Ragnhildur Birna
Siggeirsdóttir
Robert Vincent Ryan
Silja Björg Jóhannsdóttir
Sveinbjörn Hjálmarsson
Valur Kristjánsson
Þórarinn Halldórsson
30 ára
Benjamín Berg Halldórsson
Dawid Henryk Jeka
Elvar Ægisson
Ewa Amelia Greczaniuk
Garðar Þormar Pálsson
Guðrún Linda
Guðmundsdóttir
Halldóra Kristinsdóttir
Hjörtur Már Reynisson
Inga Dís Sigurðardóttir
Íris Ósk Guðmundsdóttir
Marcin Juliusz Tchórzewski
Pawel Szymczak
Sigurður Emil Kjartansson
Steinar Örn Sturluson
Viktor Númason
Þórhildur Edda Ólafsdóttir
29. mars
90 ára
Eiríkur Guðmundsson
Guðrún Sveinsdóttir
80 ára
Ingvar Níelsson
Petra M.J. Guðbrandsson
Þórir E. Magnússon
Örbrún Halldórsdóttir
75 ára
Aðalsteinn Valdimarsson
Guðjón Haraldsson
70 ára
Andri Valur Hrólfsson
Guðrún G. Bergmann
Sveinn Henrik H.
Christensen
Unnur Tómasdóttir
Vignir Gísli Jónsson
60 ára
Baldur Jónsson
Björg Jónsdóttir
Brynjar Jakobsson
Edda Sigfríð Jónasdóttir
Halldór Njálsson
Haraldur Þór Þórarinsson
Herjólfur Bárðarson
Ingveldur M. Sveinsdóttir
Jóhann Skarphéðinsson
Kristín Sigurðardóttir
Magnús Sigmundur
Magnússon
Marta Pétursdóttir
Óskar Gunnar Óskarsson
Pálína Kristín Árnadóttir
Pálmi Rúnar Sveinsson
Pétur G. Kornelíusson
Þórdís Guðrún
Arthursdóttir
Örn Jónsson
50 ára
Dalia Sliaziene
Guðjón Þór Guðmundsson
Gunnar Viktorsson
Gunnlaugur Benóný
Sigurgeirsson
Hildur Kolbrún
Andrésdóttir
Ingibjörg H. Hjartardóttir
María Helga Kristjánsdóttir
Sigríður Heimisdóttir
Svala Ingvarsdóttir
Þórbergur Egilsson
Ægir Jónsson
40 ára
Björney Þórunn
Sigurlaugsdóttir
Egill Skúlason
Gísli Vigfús Sigurðsson
Guðmundur Ragnar
Sverrisson
Guðni Jón Árnason
Gunnar Már Sigfússon
Harpa Ósk Rafnsdóttir
Hilda Fairbairn
Hjalti Birgisson
Íris Pálsdóttir
Jón Ólafur Erlendsson
Rúnar Pálmason
Sigurður Ragnar Viðarsson
Vilborg Guðný
Valgeirsdóttir
Ævar Svan Sigurðsson
30 ára
Alda Rut Garðarsdóttir
Arnar Gauti Óskarsson
Dariusz Franciszek Myszk
Gunnar Þór Andrésson
Hrönn Ólafsdóttir
Ingunn Loftsdóttir
Jóna Margrét
Ragnarsdóttir
Katrín Amni Friðriksdóttir
Lukasz Przemyslaw
Lazarek
Rasmus Villemoes
Reynir Daði Hallgrímsson
Steinþór Arnarson
Til hamingju með daginn
Langtímaleiga
www.avis.is
52.100 kr. á mánuði og allt
innifalið nema bensín!*
Hafðu endilega samband við okkur í síma 591 4000 eða
kíktu á avis.is og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
*Hyundai l10, árgerð 2011, í 36 mánaða leigu.
Komdu í langtímaleigu Avisog láttu dæmið ganga upp!