Morgunblaðið - 28.03.2013, Page 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MARS 2013
Vor og sumar 2013
Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 551 6646 Laura Ashley á Íslandi • Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-15
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis.asgeirsdottir@gmail.com
Bræðurnir Georg og Kjartan Holm
eiga stund milli stríða á hinu litla Ís-
landi. Í kjallara á Laugavegi í nota-
legu kaffihúsi er gott að sötra heitt
te og spjalla. Á veggjunum hanga
gamlar útsaumaðar myndir og í
gluggum eru kaffikönnur sem til-
heyrðu annarri öld. Fáir eru á ferli
þennan morguninn fyrir utan
nokkra ferðalanga sem skilja ekki
ylhýra móðurmálið. Bræðurnir eru
búnir að vera á tónleikaferðalagi
með Sigur Rós síðan í maí síðast-
liðnum og eru að hefja Ameríkureisu
sem endar í Asíu með viðkomu í Suð-
ur-Ameríku. Þeir eru búnir að koma
við í Asíu, Ástralíu og Evrópu og
hafa ekki tölu á tónleikunum sem
þeir hafa haldið. Ný plata hljóm-
sveitarinnar, Kveikur, kemur út 18.
júní næstkomandi.
Tónlistin í blóð borin
Þeir bræður segjast vera góðir
vinir en þrettán ár skilja þá að. Tón-
listaráhuginn hefur fylgt þeim frá
æsku og byrjuðu þeir báðir snemma
að gutla á hljóðfæri. „Það var alltaf
gítar á heimilinu sem enginn spilaði
á, en ég var alltaf að glamra á hann
þó ég kynni ekkert að spila,“ segir
Georg. „Ég held ég hafi verið orðinn
fimmtán, sextán þegar ég byrjaði að
læra eitthvað.“ Georg er eins og
margir vita bassaleikari Sigur Rósar
og semur auk þess öll lög ásamt
þeim Jónsa og Orra Páli. Hann byrj-
aði hins vegar að læra á gítarinn, en
færði sig mjög fljótt yfir í bassann.
„Þetta er eiginlega öfugt með mig,“
segir Kjartan, „ég byrjaði á bassa en
var svo hent af honum vegna frekju
annars hljómsveitarmeðlims,“ segir
hann og hlær, en hann var þá aðeins
tólf ára í sínu fyrsta bílskúrsbandi.
Hann spilar á gítar í hljómsveitinni
For a Minor Reflection en greip
tækifærið þegar stóri bróðir bauð
honum með í eins og hálfs árs Sigur
Rósar heimsferð. „Það var geggjað,
ég sagði já á stundinni! Stuttu
seinna hófust æfingar og þá var of
seint að hætta við,“ segir hann og
hlær.
Kjartan dreymdi ekki um að kom-
ast í Sigur Rós, en viðurkennir fús-
lega að Georg hafi verið hans fyrir-
mynd og ástæðan fyrir því að hann
fór að læra á bassa. „Og svo var það
líka bassaleikarinn í Blink 182,"
segir Kjartan.
Sjóræningjalíf
Sigur Rós fagnar 20 ára starfs-
afmæli í janúar næstkomandi. „Og
ég er 23 ára!“ skýtur Kjartan inn í.
Georg rifjar upp að markmiðið í
upphafi hafi verið að geta lifað af
tónlist. „En þetta er kannski orðið
aðeins ýktara en það, sem er bara
frábært,“ segir hann. Hann segir
starfið að mörgu leyti vera drauma-
starfið, en því fylgja margir van-
kantar eins og erfið ferðalög og fjar-
vera frá konu og börnum. „Það er oft
talað um að þetta sé eins og sjóaralíf,
en við erum búnir að breyta því og
köllum þetta frekar sjóræningjalíf.
Við erum bara sjóræningjar, siglum
um á sex dekkjum og rænum og
ruplum,“ segir Georg.
Fíla sig sem rokkstjörnur
Ferðalög og stanslaust tónleika-
hald getur tekið á. Kjartan segir
þetta ábyggilega meira spennandi
fyrir sig, því Georg er sjóaður og
vanur. Þeir spila oft fjóra tónleika í
röð og tónleikarnir eru alltaf í tvo
tíma. Þeir ferðast mikið með flugi
milli landa en eru svo nánast dögum
saman í rútu, allt upp í fjórtán tíma
suma daganna. Alls eru 45 manns
sem ferðast saman á þremur stórum
rútum og með fjóra stóra trukka á
eftir sér fulla af tækjum og tólum.
Allt upp í 15 þúsund manns sækja
hverja tónleika. Þegar blaðamaður
spyr hvort þeir „fíli sig eins og rokk-
stjörnur,“ eru þeir fljótir til svars.
„Já! Verður maður ekki að gera
það?“
Drifkrafturinn að skapa
Það sem drífur þá áfram er að-
allega sköpunin. Þeim finnst báðum
mjög skemmtilegt að koma fram, en
eyða löngum stundum í að semja.
Georg, Jónsi og Orri semja allt sam-
an og hafa alltaf gert. „Það er með
því skemmtilegra sem ég geri og
gengur vel að semja saman. Þetta er
oft þannig að við stingum bara hljóð-
færunum í samband og byrjum að
spila, og endum oft með fullt af lög-
um en mörg þeirra enda í ruslaföt-
unni. Oft eru þetta bara litlir bútar
sem við setjum svo saman seinna í
tölvunni,“ segir Georg.
Ný byrjun
Georg segir að Sigur Rós eigi nóg
eftir, þrátt fyrir að hafa starfað
þetta lengi. „Við vorum að leggja
lokahönd á nýja plötu, vorum bara
reyndar að klára hana í gærkvöldi!
Þessi „process“ að semja þessa plötu
var svo rosa skemmtilegur, það var
eins og að byrja upp á nýtt,“ segir
Georg, en viðurkennir að hann sjái
ekki fyrir sér eins stífar tónleika-
ferðir í framtíðinni. „Þetta er svolítið
brjálæðislegt, en við eigum alveg
eftir að spila áfram, en ég nenni
kannski ekki að vera burtu átta
mánuði af tólf,“ segir hann.
Öskrandi stelpur í búrkum
Þeir eru byrjaðir að spila fjögur af
nýju lögunum en eru að spara hin
þar til platan kemur út, en hún er sú
Fagmannlega gubbað á miðjum tónle
Ferðast um all-
an heiminn í eitt
og hálft ár Sig-
ur Rós gefur út
nýja plötu í júní
Búa í rútum og
flugvélum
Morgunblaðið/Ásdís
Draumastarf „Það er oft talað um að þetta sé eins og sjóaralíf, en við erum búnir að breyta því og köllum þetta frekar sjóræningjalíf,“ segir Georg Holm,
sem er hér með Kjartani bróður sínum í stuttu hléi á tónleikaferðinni. Þeir segja tónleikaferðir frábært tækifæri til að sjá sig um í heiminum.
Sigur Rós Hljómsveitin er nú stödd í Bandaríkjunum og hóf tónleikaferð
um landið með tónleikum í Madison Square Garden í New York.
Listahátíð Westfjord ArtFest verð-
ur haldin í þriðja skiptið á Ísafirði
dagana 29. og 30. mars, sömu daga
og tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suð-
ur. Því er óhætt að segja að listalífið
sé í blóma fyrir vestan þessa daga.
Í ár taka sextán listamenn víðs-
vegar af landinu þátt í hátíðinni og
eiga það sameiginlegt að vera allir
hluti af Muses-hópnum. Hafa þeir
unnið hörðum höndum undanfarið
við að skapa verk fyrir hátíðina.
Rétt eins og í fyrra verður sýnt í
Norska bakaríinu og er þemað lista-
mannanna frjálst. Á föstudaginn
langa vinna listamennirnir sem eru á
staðnum eitt verk saman, 80 x 80 cm
að stærð, og hefur það hlotið heitið
„Sóltúnsverkið“ og er unnið í þakk-
lætisskyni fyrir gistirými sem Ísfirð-
ingafélagið lánar listamönnum á
meðan sýningin stendur yfir. „Sól-
túnsverkið“ verður síðan boðið upp á
Westfjord
ArtFest um
helgina