Morgunblaðið - 28.03.2013, Síða 48
FIMMTUDAGUR 28. MARS 87. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Lést í slysi á Skeiðavegi
2. Tveir brutu gegn Erlu í fangelsinu
3. Samhugur meðal vina Davíðs
4. Myndbandið verður ekki birt
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Sigur Rós lék í fyrsta
skipti í hinum kunna tónleikasal
Madison Square Garden á mánudags-
kvöld, fyrir rúmlega 15.000 manns.
Að sögn gagnrýnenda The New York
Times voru áhrifamikil ný lög á efnis-
skránni og fannst honum hljóm-
sveitin reyna að eyða hugmyndum
gesta um innkomu og brottför af
sviðinu, með því að skapa „fljótandi
og afslappandi nálægð“. Bræðurnir
Georg og Kjartan Hólm segja í viðtali
sögur af tónleikaferðinni. 42
Morgunblaðið/hag
Sigur Rós flutti
áhrifamikil ný lög
Á föstudag (föstudaginn langa) Hægviðri og víða léttskýjað en
austangola og smáskúrir syðra. Norðaustan 8-15 og snjókoma eða
él á Vestfjörðum og með norðurströndinni undir kvöld. Hiti 1 til 6
stig, en um frostmark A-til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG (skírdag) Hæg suðaustanátt, skýjað með
köflum N-lands en annars víða skúrir eða él. Heldur hlýnandi.
VEÐUR
Skautafélag Akureyrar varð Ís-
landsmeistari í íshokkíi karla í
sextánda sinn í gærkvöld þeg-
ar SA Víkingar lögðu Björninn
að velli, 4:0, í oddaleik liðanna
á Akureyri. Daninn Lars Foder
tryggði sigurinn með þremur
mörkum á lokasprettinum.
„Ég er gríðarlega stoltur af
strákunum. Þeir gáfu sig allir í
þetta og uppskera eftir því,“
sagði Ingvar Þór Jónsson, leik-
maður og spilandi þjálfari SA.
»2-3
Gríðarlega stoltur
af strákunum
Guðbjörg glímir enn
við heilahimnubólgu
Óvissa er með línumennina í íslenska
landsliðshópnum í handknattleik fyrir
leikina tvo gegn Slóvenum í und-
ankeppni Evrópumótsins. Róbert
Gunnarsson missir allavega af fyrri
leiknum, Kári Kristján Kristjánsson
hefur ekki spilað undanfarnar vikur og
Vignir Svavarsson er úr leik. Atli Ævar
Ingólfsson og Jón Þorbjörn Jóhanns-
son eru hinsvegar í hópnum. »4
Óvissa með línumenn
fyrir Slóveníuleikina
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Flugið er ef til vill skýringin á því
hvers vegna ég held góðri heilsu. Mér
finnst þetta alltaf jafn skemmtilegt
og áhuginn er ekkert minni en þegar
ég hóf flugnám árið 1945. Og nú er
kominn vorhugur í menn. Ég ætla því
að komast í flug um páskana – og nú
þegar Hekla minnir á sig er freist-
andi að fara austur á bóginn,“ segir
Dagfinnur Stefánsson flugstjóri.
Tók flugpróf 1946
Dagfinnur er stórt nafn í íslenskri
flugsögu. Hann er fæddur árið 1925,
lauk flugnámi í Bandaríkjunum 1946,
kom þá heim og réð sig til starfa hjá
Loftleiðum. Starfaði hjá því félagi og
síðar Flugleiðum allt til starfsloka ár-
ið 1988. Eftir það sinnti hann flugi á
vegum hjálparsamtaka víða um ver-
öld.
„Ég er í fínu formi, kemst alltaf í
gegnum læknisskoðun og fæ skír-
teinið frá Flugmálastjórn endurnýj-
að,“ segir Dagfinnur sem er 87 ára að
aldri. Aldurinn bítur lítið á hann,
okkar maður er kvikur í hreyfingum,
er í rifnum gallabuxum, leðurjakka
og með derhúfu. Hann er meðal liðs-
manna flugklúbbsins Þyts á
Reykjavíkurflugvelli. Innan vébanda
hans eru m.a. flugmenn sem eru
hættir störfum en hafa flugáhugann
enn ólgandi í blóðinu og fljúga á
einkavélunum sem klúbburinn á og
leigir til sinna félaga sem skipta tug-
um.
„Þetta er draumavél fyrir gamla
karla eins og mig,“ segir Dagfinnur
um flugvélina nýju sem hann keypti
og fékk fyrr í þessum mánuði. Vélin
sem ber skráningarstafina TF-XXL
er af gerðinni Piper X-Large Cub; er
með 190 hestafla mótor og hentar vel
til lendinga á túnum, vegum og við
sambærilegar aðstæður. Þorsteinn
Kristleifsson, flugstjóri hjá Ice-
landair, smíðaði vélina og var henni
fyrst flogið fyrir tveimur árum.
„Þessi vél er í grunninn eins og Pi-
per Cup-vélarnar sem ég lærði á;
léttur dúkur er strengdur á grind,
pinnastýri og stélhjól. Stjórntækin
eru að vísu allt önnur en var og full-
komnari og ég þekki varla inn á þau.
Flugið er þó eins í grunninn sem og
vélin nýja, sem er eins og hugur
manns. Hún hefur níu tíma flugþol
sem er kostur. Með félaga mínum á
ég hús við Miklavatn í Fljótum og
þar skammt frá er tún sem hægt er
að lenda á,“ segir Dagfinnur sem í
loggbókina er með skráða 31 þúsund
flugtíma. Er óhætt að fullyrða að fá-
ir eigi slíka reynslu að baki – hvað þá
að fljúga komnir fast að níræðu og
vera ekki á leið til lendingar.
Nálgast nírætt á nýrri flugvél
Dagfinnur
Stefánsson í loftinu
síðan árið 1945
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugkappi Dagfinnur Stefánsson við TF-XXL, sem er um margt sambærileg vélunum sem hann lærði á fyrir tæpum
70 árum. Honum líkar þessi nýja vél afar vel og stefnir á flugferð austur að Heklu nú um páskahelgina.
Á flugferli sínum hefur Dagfinnur Stefánsson reynt margt. Hann var í
áhöfn Geysis sem brotlenti á Vatnajökli árið 1950, en fjórir sólarhringar
liðu frá því vélin fórst uns hún fannst – og allir í sex manna áhöfn henn-
ar á lífi. Þá var Dagfinnur á vettvangi þegar þota Flugleiða fórst á Srí
Lanka árið 1978 og með henni 188 manns, þar af átta Íslendingar.
„Í því máli var ég með góða og samstillta áhöfn sem vann gott starf
við erfiðar aðstæður, svo sem að hlúa að slösuðum félögum og leysa úr
ýmsum vandamálum. Það var erfiðasta verkefni mitt um dagana og þá
þurfti ég að beita þrákelkninni sem svo oft hefur fleytt mér áfram. Ég er
annars heppinn að hafa sloppið heill frá þessu og minni óhöpp voru til
þess eins að herða mig,“ segir Dagfinnur.
Var heppinn að sleppa heill
GEYSISSLYS OG SRÍ LANKA
Morgunblaðið kemur næst út
laugardaginn 30. mars. Frétta-
þjónusta verður að venju um
páskahelgina á fréttavef Morg-
unblaðsins, mbl.is. Hægt er að
koma ábendingum um fréttir á
netfangið netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskrifta er opið á
skírdag frá 08-13 en lokað
verður föstudaginn langa.
Laugardaginn 30. mars er opið
frá 8-13. Sími þjónustuvers er
569 1122 og netfangið er
askrift@mbl.is. Blaðberaþjón-
usta er opin á skírdag og laug-
ardag frá 05-11. Hægt er að
bóka dánartilkynningar á
mbl.is. Símanúmer Morg-
unblaðsins er 569 1100.
Fréttaþjónusta
mbl.is um
páskana
Guðbjörg Gunnarsdóttir, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, þarf að
taka sér hvíld enn um sinn í kjölfar
þess að hún fékk heilahimnubólgu
fyrr í vetur. „Höfuðið þolir ekki neitt.
Um leið og ég skutla mér í grasið finn
ég fyrir miklum þrýstingi í höfðinu og
það tekur mig nokkrar sekúndur að
jafna mig þegar ég stend
upp aftur,“ segir Guð-
björg. »4