Morgunblaðið - 05.10.2013, Síða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 2013
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný
með bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir
taka fagnandi á móti þér.
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Styrkjum
starfsemi
Krabbameins-
félagsins
Hreyfill/Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekniátaks
Krabbameinsfélagsins í október og nóvember
Út á lífið í bleikum bíl!
Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!
Fyrsta skóflustunga að viðbygg-
ingu nýrra íþróttamannvirkja í
Grindavík var tekin í vikunni.
Lægstbjóðandi var Grindin ehf. en
tilboðið hljóðaði upp á rúmar 596
milljónir króna eða 94,6% af
kostnaðaráætlun
Nemendur í 1.-3. bekk Grunn-
skóla Grindavíkur fengu það hlut-
verk að taka fyrstu skóflustunguna
í sameiningu á lóðinni þar sem
fyrsti áfangi mun rísa. Fram-
kvæmdir hefjast strax í næstu viku.
Þetta er fyrsti áfangi í framtíðar-
uppbyggingu á íþróttasvæði
Grindavíkur. Í þessum áfanga verð-
ur að finna aðstöðu sem tengir sam-
an nokkrar núverandi byggingar
og verður miðstöð bygginganna.
„Með endurskipulagningu og ný-
byggingum á íþróttasvæði Grinda-
víkur er áætlað að bæta verulega
aðstöðu til íþróttaiðkunar, keppn-
ishalds og félagsstarfs í Grinda-
vík,“ segir í tilkynningu frá
Grindavíkurbæ.
Ný íþrótta-
mannvirki
munu rísa
Börnin tóku fyrstu
skóflustunguna
Skóflustungan Nemendur í 1.-3.
bekk grunnskólans hófu verkið.
Verslunin Bónus í Borgarnesi var
oftast með lægsta verðið þegar verð-
lagseftirlit ASÍ kannaði verð í lág-
vöruverðsverslunum, stórmörkuð-
um og klukkubúðum víðsvegar um
landið mánudaginn 30. september.
Hæsta verðið var oftast að finna í
verslun 10/11 Laugavegi eða í meira
en helmingi tilvika. Mestur verð-
munur í könnuninni var 187%.
Flestar vörurnar sem skoðaðar
voru í könnuninni voru fáanlegar hjá
Fjarðarkaupum Hafnarfirði eða 119
af 127, Nóatún í Grafarholti átti til
118 og Krónan Akranesi og Hag-
kaup Seltjarnarnesi áttu 116 vörur.
Fæstar vörur voru fáanlegar hjá
Samkaupum-Strax eða 81 af 127, 10/
11 átti til 87 og Kjarval Hellu átti 89
vörur.
Af þeim 127 tegundum sem skoð-
aðar voru, var munur á hæsta og
lægsta verði sjaldnast undir 25% og í
þriðjungi tilvika var hann yfir 75%.
Minnstur verðmunur var á Goða
kindakæfu, sem var ódýrust á 1.693
kr./kg hjá Krónunni en dýrust á
1.840 kr./kg hjá Nettó, Samkaupum-
Úrvali og Kaskó, verðmunurinn var
147 kr. eða 9%. Mestur verðmunur
var á ávaxtaperu, sem var dýrust á
799 kr. hjá 10/11 en ódýrust á 278 kr.
hjá Iceland sem gerir 521 kr. verð-
mun eða 187%. Oftast var yfir 100%
munur á hæsta og lægsta verði
ávöxtum og grænmeti.
Lægsta verðið í Borgarnesi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verðkönnun Yfir 100% verðmunur var oftast á ávöxtum og grænmeti.
Bónus oftast með lægsta verðið en 10/11 oftast með hæsta
verðið í verðkönnun ASÍ Mesti verðmunur var 187%
Mikil mildi þykir
að ekki fór verr
en raun bar vitni
þegar rúmlega
tvítugur karl-
maður kastaði sér
fyrir bifreið í
Reykjanesbæ í
fyrrakvöld. Lenti
annar fótur hans
undir framhjóli bifreiðarinnar, en
ekki var talið að hann hefði brotnað.
Maðurinn var greinilega undir mikl-
um áhrifum fíkniefna og talaði sam-
hengislaust, þegar lögreglumenn á
Suðurnesjum ræddu við hann eftir
atvikið, en gat þó tjáð þeim að hann
hefði borðað töluvert magn af of-
skynjunarsveppum fyrr um kvöldið.
Ökumaður bifreiðarinnar tjáði
lögreglu á vettvangi að maðurinn
hefði komið stökkvandi frá skemmti-
stað, ber að ofan, og kastað sér fyrir
bifreiðina, með ofangreindum afleið-
ingum.
Kastaði sér
fyrir bíl eftir
sveppaát