Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Blaðsíða 10
Staðgreiðsla
Staðgreiðsla skatta 2014 er reiknuð í þremur þrepum.
Útreikningur fyrir mánaðartekjur er sem hér segir:
Af fyrstu 290.000 kr. ................................... 37,30%
Af næstu 494.619 kr. ................................... 39,74%
Af fjárhæð umfram784.619 kr. .................. 46,24%
Frádráttur vegna lífeyrisréttinda
Heimill frádráttur vegna greiðslu launþega til almennra
lífeyrisréttinda er 4% af iðgjaldsstofni. Frádráttur vegna
séreignarsparnaðar er 2% af iðgjaldsstofni en verður
4% frá 1. júlí.
Persónuafsláttur
Persónuafsláttur er 50.498 kr. á mánuði.
Skattlagning barna
Börn fædd 1999 og síðar greiða 6% af tekjum
yfir 180.000 kr.
Laun frá fleiri en einum launa-
greiðanda
Þeir sem hafa laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa
að gæta þess að rétt hlutfall sé notað við útreikning á stað-
greiðslu. Fari laun yfir 290.000 kr. hjá einum launagreiðanda
þarf að reikna 39,74% staðgreiðslu af launum hjá öðrum
launagreiðendum, eða eftir atvikum 46,24%.
Tryggingagjald
Tryggingagjald er 7,59%.
Fjársýsluskattur
Fjársýsluskattur er 5,5%.
Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur er 20%.
Framtal og álagning
Barnabætur
Barnabætur með fyrsta barni hjóna eru 167.564 kr. og með
hverju barni umfram eitt 199.455 kr. Bætur með fyrsta barni
einstæðs foreldris eru 279.087 kr. og með hverju barni
umfram eitt 286.288 kr.
Skerðingarmörk vegna tekna eru 4.800.000 kr. hjá hjónum
og 2.400.000 kr. hjá einstæðu foreldri. Bæturnar skerðast um
3% af tekjum umfram þessi mörk fyrir eitt barn, 5% fyrir tvö
börn og 7% ef börnin eru þrjú eða fleiri.
Viðbótargreiðsla með hverju barni yngra en 7 ára er 100.000
kr. og skerðist um 3% af tekjum umfram ofangreind mörk.
Vaxtabætur
Hámark vaxtabóta er 400.000 kr. fyrir einhleyping,
500.000 kr. fyrir einstætt foreldri og 600.000 kr.
fyrir hjón/sambúðarfólk.
Vaxtagjöld til útreiknings vaxtabóta geta ekki orðið hærri
en 7% af eftirstöðvum skulda vegna íbúðarkaupa og að
hámarki 800.000 kr. hjá einhleypingi, 1.000.000 kr. hjá
einstæðu foreldri og 1.200.000 kr. hjá hjónum og sambúðar-
fólki. Skerðing vegna tekna er 8,5% af tekjustofni.
Vaxtabætur einhleypinga og einstæðra foreldra byrja að
skerðast við nettóeign 4.000.000 kr. og falla niður þegar hún
nær 6.400.000 kr.
Vaxtabætur hjóna og sambúðarfólks byrja að skerðast
við nettóeign 6.500.000 kr. og falla niður þegar hún nær
10.400.000 kr.
Skattar, gjöld og b