Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Blaðsíða 13
19.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
mun sá hópur sækja í það efni. Við
verðum aldrei stærsta sjónvarps-
stöðin á Íslandi en við erum ákveð-
inn valkostur fyrir stóran markhóp
sem getur gengið að því vísu að við
erum ekki að fjalla um undirheima
Íslands, pólitíska ólgu og deilumál.
Við munum koma með nýjan og
ferskan andblæ inn í sjónvarpsflór-
una. Það gerum við með Bravó og
Miklagarði.
Á Miklagarði munum við fjalla
um vöru og þjónustu. Upplýsingar
um málefni eru mjög áberandi í fjöl-
miðlum, í fréttum ákveða menn til
dæmis hvað þeir telja eiga erindi
við þjóðina og hvað ekki. Sýn okkar
sem stöndum að þessum tveimur
sjónvarpsstöðvum er: Vörur og
þjónusta eru dægurmál. Ég þekki
það sjálfur sem fjölmiðlamaður að
dagskrárgerðarmenn eru alltaf að
reyna að finna einhverja fleti á því
að fjalla um vörur og þjónustu.
Á RÚV er þáttur um bók-
menntir, sem örvar sölu á bókum
og ýtir undir áhuga á bókmenntum.
Það getur skipt höfuðmáli fyrir höf-
und að fá kynningu og gagnrýni á
bók sína í þeim þætti. Er þetta
auglýsing? Já. Er hún áhuga-
„Ég fæ mikið út úr því að
gefa ungu fólki sama tæki-
færi og ég fékk á sínum
tíma,“ segir Sigmar Vil-
hjálmsson, Simmi.
Morgunblaðið/Ómar
Hugi Halldórsson er stofn-andi framleiðslufyrirtæk-isins Stórveldisins sem
hefur víða komið við á síðustu ár-
um og hefur meðal annars fram-
leitt síðasta Áramótaskaup á RÚV,
Andraland og Andra á flandri og
Áhöfnina á Húna. Stórveldið vinn-
ur nú að eftirvinnslu á tveimur
þáttum fyrir RÚV, Ferðastiklum
með Ómari Ragnarssyni og Láru
Ómarsdóttur sem er þáttur sem
verður sýndur í byrjun mars á
RÚV og Andra á Færeyjaflandri.
„Árið 2011 stofnaði ég lítið fyr-
irtæki sem ég nefndi í gríni Stór-
veldið. Upphaflega var þessi rekst-
ur í kringum mig persónulega því
ég starfaði sem verktaki um tíma.
Ég fékk mikla reynslu á þessum ár-
um við sjónvarpsþátta- og auglýs-
ingagerð. Þegar ég ákvað að segja
þetta gott hjá Sagafilm, þar sem
ég hafði starfað sem framleiðandi
í auglýsingadeild í fjögur ár, þá
stóð ekki til að fara í eigin rekstur.
Ég hafði komist að samkomulagi
við fiskútflutningsfyrirtæki um að
hefja þar störf um haustið 2011
því ég og konan mín, Ástrós Sig-
nýjardóttir, sem hefur verið mín
stoð og stytta í gengum allt þetta
ferli, áttum von á barni um sum-
arið. Örlagavaldurinn í þessu öllu
var síðan Kristófer Dignus sem
hafði samband við mig og bað mig
um að aðstoða sig við að fram-
leiða tvær sjónvarpsþáttaraðir
sem hann hafði í bígerð. Ég sá það
ekki fara saman við nýja starfið og
ákvað því að taka stökkið til fulls
og hefja rekstur. Ég hafði hugsað
mér að fara hægt af stað en það
var strax nóg af verkefnum. Ég
áttaði mig snemma á því að ég
gæti ekki staðið einn í þessu
brölti. Margir í þessum bransa
hafa hætt í sinni vinnu og farið út í
eigin rekstur og kannski ekki náð
þeim hæðum sem þeir ætluðust
til, það kom ekki til greina hjá
mér. Ég ætlaði mér að ná árangri
með þetta fyrirtæki. Ég þekkti
Simma vel frá Popptíví-árunum
og fékk hann með mér í þetta. Ég
hafði leitað til hans árinu áður
með mögulegt samstarf í huga en
þá voru þeir Simmi og Jói of upp-
teknir við að koma Hamborg-
arafabrikkunni á koppinn. Simmi
lét svo heyra í sér einn daginn og
sagðist vera til í slaginn og Jói væri
spenntur fyrir þessu líka. Ég tók
þeim vitaskuld báðum fagnandi.
Ég leitaði til þeirra bæði vegna
þess að ég þekki þá vel og vildi fá
menn með mér í reksturinn sem
væru markaðslega þenkjandi og
sæju framleiðsluheiminn í öðru
ljósi en hinn hefðbundni framleið-
andi. Samstarfið fór rólega af stað
en hefur vaxið jafnt og þétt.
Simmi kom í fullt starf seint á
árinu 2012 þegar reksturinn var
orðinn þannig að það þurfti að
fara að reka þetta sem alvöru fyr-
irtæki. Árið 2013 var algjört met
ár hjá okkur og framleiddum við
tólf sjónvarpsþáttaraðir. Það er
ekki hægt að segja annað en ég sé
ánægður með árangurinn.
Það sem dregur mann áfram í
þessu er að maður vill alltaf gera
betur því það getur verið stutt á
milli hláturs og gráts. Ég, Simmi
og Jói og Þór Freysson erum hlut-
hafar í Stórveldinu. Stórveldið
framleiðir allt efni fyrir Miklagarð
og Bravó en er eftir sem áður
sjálfstætt framleiðslufyrirtæki
sem mun áfram framleiða efni fyr-
ir innlendar sjónvarpsstöðvar, auk
þess sem við munum hefja fram-
leiðslu á auglýsingum. Stórveldið
og Konunglega kvikmyndafélagið
eru tvö aðskilin félög. Ég átti
reyndar hugmyndina að nafninu á
Konunglega kvikmyndafélaginu,
en það er með það eins og Stór-
veldið að ég setti nafnið fram í
gríni enda engin heimsyfirráð í
plönunum næstu árin allavega.“
HUGI HALLDÓRSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI STÓRVELDISINS
„Maður vill alltaf
gera betur því það
getur verið stutt á
milli hláturs og
gráts,“ segir Hugi
Halldórsson.
Morgunblaðið/Ómar
Metár í fyrra
Bókamarkaður
2014
Árlegur bókamarkaður
Félags íslenskra bókaútgefenda
verður 21. febrúar til
9. mars næstkomandi.
Útgefendur sem vilja bjóða
bækur sínar á markaðinum
er bent á að hafa samband við
Félag íslenskra bókaútgefenda sem
fyrst, eða eigi síðar en 6. febrúar
n.k., í síma 511 8020 eða á
netfangið fibut@fibut.is