Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Blaðsíða 9
Árni Ingi Pjetursson er ístuttu stoppi á Íslandi þeg-ar fundum okkar bera sam- an að morgni föstudags. Kvöldið áð- ur kom hann heim frá Hollandi, þar sem hann var að setja sig inn í nýtt starf hjá íþróttavörurisanum Nike og á mánudaginn flýgur hann utan til Leeds á Englandi til að taka formlega við téðu starfi. „Strategic executive in football“ er starfsheitið sem ekki er auðvelt að snara yfir á hið ástkæra ylhýra. „Mitt hlutverk verður að fylgja eftir stefnu Nike í sölu- og mark- aðsmálum,“ útskýrir hann. „Það er að réttar vörur komi á réttum tíma og í réttu magni. Ég kem til með að verða í nánum samskiptum við alla helstu viðskiptavini fyrirtækisins í Bretlandi og rækta þau sambönd.“ Markaðssvæðið sem Árni Ingi kemur til með að halda utan um er Bretland. „Fótbolti er hlutfallslega langstærsti vöruflokkurinn hjá Nike í Bretlandi og raunar í Vestur- Evrópu allri og ég verð ábyrgur fyrir einum stærsta fótboltavöru- reikningi í heimi. Þess utan mun ég koma að stefnumótun hjá fyrirtæk- inu og hafa þannig áhrif á Bret- landsmarkað.“ Vildu útlending í starfið Árni Ingi segir húsbændur hjá Nike líta á Vestur-Evrópu sem eina heild, nánast eitt land, og fyrir vikið komi hann til með að verða á faraldsfæti. Ekki bara innanlands í Bretlandi, heldur um alla vestanverða álfuna. „Ég kem til með að verða mjög hreyfanlegur. Ætli ég verði nema 50-60% af tímanum á skrifstofunni í Leeds.“ Einmitt vegna þessara alþjóðlegu tengsla vildi Nike ráða útlending í starfið en ekki Breta. Heimamaður væri líklegri til að horfa bara inn á við. Árni Ingi metur það svo að þjóðerni sitt hafi alls ekki spillt fyr- ir. „Við Íslendingar erum upp til hópa ótrúlega alþjóðlega þenkjandi. Mun meira en hinn almenni Evr- ópubúi, hugsa ég. Við ferðumst mik- ið og vegna smæðar landsins og markaðarins lærum við snemma að hugsa út fyrir landsteinana.“ Annar Íslendingur vinnur hjá Nike, Vala Steinsdóttir hönnuður, sem er í Hollandi. „Ég hitti hana einmitt úti í vikunni. Hún hannar fótboltatreyjur og er að gera mjög góða hluti,“ segir Árni Ingi. Næsti yfirmaður Árna Inga verð- ur framkvæmdastjóri Nike í Vest- ur-Evrópu með aðsetur í Hollandi. Hann hefur líka stuðning af yfir- manni fyrirtækisins í Bretlandi. „Stuðningskerfið er mjög gott og þó ég sé ábyrgur fyrir mínu verkefni fæ ég gott aðhald. Þarf til dæmis að gefa skýrslu vikulega um stöðuna, næstu skref og hvort einhver vandamál séu á sjóndeildarhringn- um. Það eru miklir peningar í húfi.“ Manchester United langstærst Sem dæmi um verkefni Árna Inga má nefna að stór hluti allra fótboltatreyja í landinu mun fara í gegnum hann en meistarar tveggja síðustu ára í ensku úrvalsdeildinni, Manchester City og Manchester United, leika báðir í búningum frá Nike. Eins enska landsliðið. Þess utan hefur Arsenal leikið í Nike- búningum undanfarin ár en sá samningur rennur út í sumar. „Af þessu er Manchester United lang- stærst – enda besta liðið,“ segir Árni Ingi sem er sjálfur grjótharður stuðningsmaður Rauðu djöflanna. Spurður hvort það séu ekki vond tíðindi fyrir City skellir Árni Ingi upp úr. „Jú, blessaður vertu. Ég mun segja öllum sem vilja kaupa treyjurnar þeirra að þær séu upp- seldar!“ Árni Ingi þekkir vel til hjá Nike en eftir háskólanám í Bandaríkj- unum réði hann sig til starfa í höf- uðstöðvum fyrirtækisins í Beaver- ton, Oregon. Vann þar í eitt ár, frá 2005 til 2006. Eftir að hann sneri heim vann Árni Ingi áfram fyrir Nike og stýrði dreifingu á vörum fyrirtækisins á Íslandi frá 2007 til 2012. „Ég bý fyrir vikið að mikilli reynslu og þekkingu og veit hvernig fyrirtækið hugsar. Það kemur til með að nýtast mér í þessu nýja starfi.“ Ölgerðin þjóðargersemi Undanfarið ár hefur Árni Ingi unn- ið hjá Ölgerðinni Agli Skallagríms- syni, meðal annars við það að flytja út íslenskt brennivín og bjór. „Þetta hefur verið mjög skemmtilegur tími og ég kveð Ölgerðina með miklum söknuði. Ölgerðin er eitt flottasta fyrirtæki sem ég hef kynnst, algjör þjóðargersemi. Ég var alls ekki á leiðinni þaðan en þegar Nike hafði samband við mig í haust og bauð mér þetta starf stóðst ég ekki mát- ið.“ Hann segir margt líkt með Öl- gerðinni og Nike enda þótt varan sé ekki beinlínis af sama meiði. „Þessi tvö fyrirtæki vinna og hugsa með svipuðum hætti og liðsandinn hjá þeim báðum er einstakur. Það er eiginlega eins og maður sé kominn í fótboltann aftur,“ segir Árni Ingi en fyrir þá sem ekki þekkja til lék hann knattspyrnu um árabil, með KR, Fram og fleiri félögum. Bæði eiga þau líka höfuðandstæð- ing, sem brýnir þau áfram. „Það er alveg rétt. Ölgerðin hefur umboð fyrir Pepsi og þar á bæ er hinn Cola-drykkurinn aldrei nefndur á nafn. Eins með Nike, höfuðand- stæðingurinn er aldrei nefndur fullu nafni, en það er allt í lagi að segja Adi,“ segir hann sposkur. Berlín fallin Gríðarleg samkeppni er milli Nike og Adi(das) á heimsvísu og und- anfarið hefur fyrrnefnda merkið haft betur. Árni Ingi er ekki með nýjustu tölur fyrir framan sig en minnir að Nike sé með um 45% markaðshlutdeild og Adi(das) 40%. Aðrir mun minna. „Þetta hefur ver- ið mikill slagur og það var stór dag- ur þegar Berlín féll fyrir fáeinum misserum. Heimavöllur Adi,“ segir Árni Ingi hróðugur. „Annars er stríðinu hvergi nærri lokið. Menn mega ekki slá slöku við.“ Spurður hvers vegna hann komi til með að búa í Leeds er Árni Ingi fljótur til svars. „Það er ekki út af liðinu!“ Hann hlær. „Ég valdi Leeds vegna þess að gott orð fer af borginni. Konan mín, Edda Blumenstein, og þrjú börn flytja með mér utan og frúin reikn- ar með að fara í framhaldsnám í há- skóla borgarinnar. Það spilar líka inn í þessa ákvörðun,“ segir Árni Ingi. Lundúnir og Sheffield hefðu einn- ig komið til greina, en Nike er líka með bækistöðvar þar, og þess vegna Reykjavík. Þannig bjó forveri Árna Inga í starfi, sem er Belgi, heima í Belgíu meðan hann gegndi starfinu. Flaug bara á milli. Til Bretlands í byrjun viku og heim í lok hennar. Börnin eru þrjú, ellefu ára tvíburastrákar og þriggja ára stelpa. „Strákarnir eru mjög spenntir enda miklir áhugamenn um fótbolta og nóg er víst af honum í Bretlandi. Stelpan veit ekki alveg hvað er á seyði og það verður erfitt að setja hana á leikskóla þar sem hún skilur ekki nokkurn mann. En mér skilst að börn séu fljót að læra ný tungumál.“ Kann vel við Bretana Sjálfur hefur Árni Ingi búið áður í Bretlandi, var sem unglingur á mála hjá knattspyrnufélaginu Reading í einn vetur. „Mér leið vel í Reading og veit fyrir vikið nokkurn veginn að hverju ég geng. Ég hef mjög gaman af Bretunum. Þeir eru léttir og skemmtilegir og hafa húmor fyr- ir sjálfum sér. Það er góður kostur. Að mínu mati eru þeir mun líkari okkur Íslendingum en til dæmis Norðurlandabúar.“ Hann kvíðir mest umferðinni. Það verði viðbrigði að aka á vinstri helmingi. „Það er búið að útvega mér sjálfskiptan bíl sem bíður eftir mér á flugvellinum. Ég verð bara að henda mér út í djúpu laugina.“ Hann hlær. Árni Ingi segir alltof snemmt að velta fyrir sér hversu lengi fjöl- skyldan verði í Bretlandi. „Við erum að selja bílana og flytja út með bú- slóðina, þannig að við erum farin til að vera. Alla vega í einhvern tíma. Ætli maður taki ekki stöðuna eftir svona tvö ár. Hvort manni líkar ennþá vel eða langar að prófa eitt- hvað nýtt. Hvort það yrði heima eða erlendis er ómögulegt að segja. Við erum opin fyrir öllu.“ Árni Ingi Pjetursson hlakkar til að takast á við ný og spennandi verkefni í Bretlandi. Englandsmeistarar Manchester United leika í búningum frá Nike – sem seljast vel. EPA Úr ölinu í sparkið ÁRNI INGI PJETURSSON TEKUR VIÐ LYKILSTÖÐU HJÁ FÓTBOLTAGEIRA ÍÞRÓTTAVÖRURISANS NIKE Í BRETLANDI Á MÁNUDAGINN. HANN VAR ÁÐ- UR Í GÓÐU STARFI HJÁ ÖLGERÐINNI EN STÓÐST EKKI MÁTIÐ ÞEGAR HÚS- BÆNDUR HJÁ NIKE HÖFÐU SAMBAND VIÐ HANN OG BUÐU HONUM STARFIÐ EN ÁRNI INGI VANN ÁÐUR FYRIR FYRIRTÆKIÐ Í BANDARÍKJ- UNUM OG HÉR HEIMA. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is SÖÐLAR UM OG FLYTUR ÚR LANDI * Við Íslendingarerum upp tilhópa ótrúlega al- þjóðlega þenkjandi. Morgunblaðið/RAX 19.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.