Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Blaðsíða 41
BOBBI BROWN
7.500 KR.
Bronzing powder,
matt sólarpúður í
Golden Light, er
frábært til skygg-
ingar. Púðrið er ein-
staklega létt og mjúkt
og auðveldar þér að
byggja upp litinn fyrir eðlilega
áferð og skugga.
19.1. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
www.gilbert.is
FRISLAND CLASSIC
TÍMALAUS HÖNNUN
VIÐ KYNNUM
A
ndlitsskygging eða „contouring“ er gríðarlega
vinsæl í heimi förðunar. Skyggingin er einföld
leið til þess að móta andlitið og grenna og
draga fram þínar bestu hliðar.
Nota skal matt sólarpúður til að mynda skugga á móti
ljóma eða „highlighter“, sem dregur fram aðrar áherslur
í andlitinu.
Til að ná sem bestri útkomu er nauðsynlegt að byrja
létt og blanda púðrinu vel með förðunarbursta á andlitið
svo áferðin verði sem eðlilegust.
Byrjaðu á að staðsetja kinnbeinið með því að taka
púðurburstann og rúlla honum upp frá kjálkabeini og
upp. Með því finnurðu hvar hann stoppar eðlilega þar
sem kinnbeinið endar. Einnig er sniðugt að sjúga inn
kinnarnar til að sjá hvar kinnbeinið er.
Berðu matt, grátónað sólarpúður undir kinnbeinið
með hringlaga hreyfingum svo skyggingin verði sem
eðlilegust. Skyggðu frá eyra að munnviki. Hafðu mestan
lit við eyrað og leyfðu litnum að deyja út í átt að munn-
viki.
Ef þér finnst þú hafa ofgert línunni má einfaldlega
nudda yfir með farðaburstanum svo að sólarpúðrið
blandist betur við húðlit þinn. Púðrið er þá borið á ennið
við hárlínu en yfir það er síðan gott að fara með farða-
burstanum.
Að skyggja nef er vandaverk og þarf að fara gætilega
að því. Farðu varlega í að púðra með möttu sólarpúðri
niður eftir nefinu frá augabrún. Notaðu lítinn bursta til
að móta litinn og síðan breiðari augnskuggabursta til að
jafna áferðina svo liturinn blandist vel. Þetta hentar
bæði til þess að grenna nefið og láta það virka beinna.
Augun er fallegt að móta með því að setja sólarpúður
undir augnbeinið með augnskuggabursta. Þetta gefur
augunum samstundis fallegra yfirbragð og meiri dýpt og
hentar vel í stað augnskugga.
Ljómi eða „highlighter“ er borinn á andlitið á þá staði
sem þú vilt draga fram svo sem kinnbein, auga-
brúnabein, fremst á nefi og við efrivör. Þannig leggur
þú áherslu á þá staði og „lyftir þeim upp“.
Einnig getur verið fallegt að setja ljóma á mitt ennið,
en gættu þess þó að setja ekki of mikið og dúppaðu létt
yfir með farðabursta.
BOBBI BROWN
7.599 KR.
Face Highlighting pen.
Handhægur ljómapenni með áföstum bursta. Formúlan,
sem er einstaklega létt, kemur í fljótandi formi með örlitlu
glimmeri og hentar ákaflega vel fyrir fólk á ferðinni. Burst-
inn gerir manni kleift að stjórna magni og áferð og er full-
kominn í nákvæmnisvinnu.
LJÓS OG SKUGGI Í FÖRÐUN
Mótaðu andlitið
GOTT ER AÐ NÁ SKYGGINGU Í FÖRÐUN MEÐ MÖTTU SÓLARPÚÐRI TIL
ÞESS AÐ RAMMA ANDLITIÐ INN OG DRAGA FRAM ÞÍNAR BESTU HLIÐAR.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
1
YVES SAINT-LAURENT
5.999 KR.
Touche Éclat er mest selda förðunarvara
Yves Saint-Laurents. Þessi einstaki hylj-
arapenni er fullkominn til þess að fá ljóma
undir augun og lýsa þau svæði sem fólk kýs.
DIOR
7.499 KR.
Instant illuminating powder er hið fullkomna ljómapúður eða „high-
lighter“ sem gefur húðinni gylltan ljóma. Varan kemur í púðurformi og
það er mjög erfitt að ofgera ljómanum. Ljóminn er laus við glimmer og
áferðin því einstaklega eðlileg.
DIOR
8.799 KR.
Diorskin Nude Tan Healthy
Glow Enhancing Powder.
Þetta einstaka púður úr Nude-
línu Dior er í fjórum mismun-
andi litatónum; tveimur bleik-
um sem gefa ferskleika og gljáa
og tveimur brúnum tónum til
skyggingar. Einnig er fallegt að
blanda öllum litunum saman
fyrir frísklegt yfirbragð. Kab-
uki-bursti fylgir með.
AFP
Áberandi fal-
leg skygging
á sýningu
Barböru Bui.
Hér er sýnt
hvaða svæði
má skyggja
og lýsa til
þess að fá
sem besta
útkomu.
Teikning/Auður Ýr
Kim Kardashian er þekkt fyrir að nota aðferðina til þess að móta andlit sitt.
En eins og svo margt annað í lífi Kim er skyggingin mjög ýkt.