Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.01.2014, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 19. JANÚAR 2014
Árleg umræða um listamannalaun hófst þegar tilkynnt var um út-
hlutun þeirra fyrir árið 2014. Margir sem eru virkir í athugasemd-
um á netmiðlunum sögðu sína skoðun umbúðalaust og ofbauð
nokkrum orðbragðið. Svavar Knútur listamaður svaraði nokkrum
og fór yfir það í hvað launin fara. Átti Svavar í vök að verjast gegn
netverjum og ákvað í staðinn að bjóða virkum í athugasemdum
heim í kaffi. „Ég á kaffivél sem gerir gott togarakaffi. Það hefur
ennþá enginn þegið boð mitt en ég veit af einum sem hefur hugsað
sér að koma. Annars eru allir velkomnir á heimili mitt í spjall. Ég
tek á móti þeim með bros á vör,“ sagði Svavar sem sjálfur er ekki á
listamannalaunum. „Mér fannst umræðan alltof neikvæð og fór því
að blanda mér í hana. Það sem sagt er á netinu er um alvörufólk
sem á fjölskyldur. Fólk verður að gera sér grein fyrir því.“
Morgunblaðið/Rósa Braga
LISTAMAÐURINN SVAVAR KNÚTUR
Listamannalaun eru 0,083% af íslenskum fjár-
lögum. Sitt sýnist hverjum um ágæti þeirra.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Svavar Knútur vakti at-
hygli þegar hann bauð öll-
um þeim sem vilja ræða
listamannalaun heim í kaffi.
Bauð virkum í athuga-
semdum í kaffi
Skíðakeppni gæludýra í San-
menxia í Norður-Kína fór fram í
byrjun janúar og vakti töluverða
athygli enda kepptu hundar, kett-
ir, skjaldbökur og endur, svo fá-
einar tegundir keppenda séu tald-
ar upp, á skíðum. Gullfiskur, sem
skráður var til leiks, fékk ekki
keppnisleyfi því skipuleggjendur
töldu skálina hans ekki nógu þétta
og óttuðust að hún myndi brotna.
Skjaldbökur liggja yfirleitt í
dvala á þessum tíma árs enda var
það svo að skjaldbakan sem
keppti kom ekkert út úr sinni
skel. Kettirnir öttu kappi við
hundana og ótrúlegt en satt fóru
þeir yfirleitt í öfuga átt við
hundana. Vildu ekki koma nálægt
þeim.
Þrátt fyrir öflug mótmæli bæði
fyrir og eftir keppnina mætti
aragrúi af fólki til að horfa á
þessa undarlegu keppni. Skjald-
bakan varð í þriðja sæti, vann
hérann eftir að hafa verið sett á
snjóbretti. Önd varð í fyrsta sæti
en hún flaug af stað og rústaði
öðrum keppendum, enda fljúg-
andi. Fjörutíu gæludýraeigendur
skráðu dýrin sín í það sem skipu-
leggjendur kalla skemmtilega
keppni og er stefnt á aðra keppni
að ári.
FURÐUR VERALDAR
Skíðakeppni
gæludýra
Eins og í bókinni Hérinn og skjaldbakan var það skjaldbakan sem bar sigur úr
býtum í einvíginu við hérann og náði öðru sæti á eftir önd sem flaug í mark.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Guðjón Davíð Karlsson
sem ungur leikari.
Vector
úr Aulinn ég.
Hörður Arnarson
forstjóri Landsvirkjunar.
4.990.- á mánuði
(12 mán. binditími)
eða
49.900.- staðgreitt
(gildir til 31.janúar 2014)
Allir árskortshafar í Veggsport
eru í fríðindaklúbbi hans.
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555
veggsport.is
TVEIR heppnir ve
rða dregnir út
og geta boðið m
aka/vini með sér
í
ræktina í HEILT Á
R.
EINN heppinn ár
skortshafi
verður dreginn ú
t í apríl og
fær hann Trek rei
ðhjól.
Allir sem kaupa
árskort í Veggsp
ort
fara í vinningsp
ott
ÁRSKORT í
Fríðindaklúbburinn veitir þér:
• Handklæði eftir ræktina.
• Fæðubótapakki frá EAS.
• Tveir tímar með einkaþjálfara í
fitumælingu, markmiðasetningu
og persónulegt æfingarprógram.
• Fimm skipta Boost kort.