Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 4
N íu manns hafa gegnt embætti útvarps- stjóra frá því Rík- isútvarpið tók til starfa árið 1930. Aðeins tveir hafa tekið við starfinu án þess að hafa starfað áður hjá stofnuninni og við fjölmiðlun yfir höfuð, séra Heimir Steinsson og Magnús Geir Þórðarson. Þá er fyrsti útvarpsstjórinn, Jónas Þor- bergsson, að sjálfsögðu undanskil- inn. Sigurður Þórðarson, Vilhjálmur Þ. Gíslason, Andrés Björnsson, Markús Örn Antonsson, Pétur Guð- finnsson og Páll Magnússon höfðu allir unnið hjá Ríkisútvarpinu í lengri eða skemmri tíma. Páll og Jónas eru þeir einu sem höfðu um- talsverða reynslu af öðrum fjöl- miðlum. Fyrsti útvarpsstjórinn var Jónas Þorbergsson frá Helgastöðum í Reykjadal sem gegndi embættinu í tæpan aldarfjórðung, 1930-53. Jónas var gagnfræðingur frá Akureyri, kenndi í einn vetur í Reykjadal og sinnti síðan ýmsum störfum í Kan- ada í sex ár. Hann var ritstjóri Dags á Akureyri 1920-27 og ritstjóri Tímans í Reykjavík 1927-29. Jónas sat á þingi fyrir Framsóknarflokk- inn 1931-33 meðfram starfi sínu sem útvarpsstjóri. Hann samdi líka bækur ýmislegs efnis og fjölda greina sem birtust í blöðum og tímaritum, einnig samdi hann söng- lög. Sonur Jónasar, Jónas Jónasson, varð síðar einn ástsælasti útvarps- maður þjóðarinnar. Sigurður Þórðarson, tónskáld og skrifstofustjóri Ríkisútvarpsins frá upphafi, leysti Jónas Þorbergsson tímabundið af sem útvarpsstjóri, 1950-52. Reyndur útvarpsmaður Vilhjálmur Þ. Gíslason tók við starfi útvarpsstjóra 1953 og gegndi því til 1967. Hann var með meistaragráðu í norrænum fræðum, var afkasta- mikill rithöfundur, skólastjóri Versl- unarskóla Íslands í rúma tvo ára- tugi og starfsmaður Ríkisútvarpsins frá því það hóf göngu sína. Vann þar sem fréttamaður, bókmennta- ráðunautur og fleira. Réttnefndur innanbúðarmaður. Vilhjálmur var útvarpsstjóri þegar sjónvarp hóf göngu sína á Íslandi, 1966. Andrés Björnsson var útvarps- stjóri frá 1968 til 1984. Hann var cand. mag. í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands, starfaði í breska upplýsingaráðinu um tíma og sótti námskeið í útvarps- og sjónvarps- fræðum við Boston-háskóla í Banda- ríkjunum. Hann var skrifstofustjóri útvarpsráðs 1951-52, skipaður dag- skrárstjóri 1958-67 og skipaður út- varpsstjóri frá 1. janúar 1968. Andr- és var lektor í íslenskri bókmenntasögu við Háskóla Íslands 1965 til 1968. Andrés lagði jafnframt stund á ritstörf og þýðingar og birtust rit- smíðar hans m.a. í Skírni og afmæl- isritum, ásamt því að hann þýddi skáldverk og leikrit, sögur og grein- ar eftir marga virta höfunda, þar á meðal Knut Hamsun og Somerset Maugham, og ritaði formála ljóða- safna. Þá flutti hann í starfi sínu sem útvarpsstjóri ávörp á gamlárs- kvöld frá árinu 1968 til 1984, en þau voru gefin út í heild sinni í bókinni Töluð orð árið 1985. Markús Örn Antonsson tók við af Andrési, í ársbyrjun 1985. Bak- grunnur hans var í fjölmiðlum. Með menntaskólanámi vann hann sem blaðamaður og ljósmyndari á Morg- unblaðinu en eftir stúdentspróf frá MR lagði hann stund á nám í fréttamennsku og framleiðslu sjón- varpsefnis í Bretlandi og Svíþjóð. Markús Örn var einn af fyrstu fréttamönnum sjónvarps, auk þess sem hann sinnti dagskrárgerð. Hann var borgarfulltrúi á árunum 1970 til 1985. Markús Örn tók aftur við starfi útvarpsstjóra 1998 og gegndi því til 2005. Í millitíðinni var hann meðal annars borgarstjóri í Reykjavík 1991-94. Prestur varð útvarpsstjóri Þegar Markús Örn lét af embætti í fyrra skiptið, í október 1991, var séra Heimir Steinsson ráðinn út- varpsstjóri. Hann stundaði nám í fornleifafræði við Kaupmannahafn- arháskóla og íslenskum fræðum við Háskóla Íslands. Sr. Heimir lauk guðfræðiprófi frá Háskólanum og stundaði framhaldsnám í trúfræði og almennri kirkjusögu við háskól- ann í Edinborg. Þá sótti hann nám- skeið í norskum, dönskum og sænskum lýðháskólum og kenndi jafnframt við lýðháskóla í Noregi og Danmörku. Sr. Heimir stundaði ýmis störf meðfram námi og rak m.a. forskóla fyrir börn í Laugarneshverfi. Hann var sóknarprestur í Seyðisfjarð- arprestakalli árin 1966-68 og var jafnframt stundakennari við Barna- og unglingaskólann þar. Hann var rektor Lýðháskólans í Skálholti, síð- ar Skálholtsskóla, frá stofnun haust- ið 1972 til ársins 1982. Þá var hann sóknarprestur í Þingvallaprestakalli og jafnframt þjóðgarðsvörður og gegndi hann því embætti til ársins 1991. Sr. Heimir lét af starfi út- varpsstjóra í desember 1996 en þá var hann skipaður í embætti sókn- arprests og staðarhaldara á Þing- völlum. Pétur Guðfinnsson var settur út- varpsstjóri 1996 en lét af störfum ári síðar fyrir aldurs sakir. Pétur var framkvæmdastjóri Sjónvarpsins frá stofnun þess árið 1966 og stað- gengill útvarpsstjóra í fjarveru hans allt þar til hann tók við starfi út- varpsstjóra. Páll Magnússon leysti Markús Örn af hólmi 2005. Hann er með próf í stjórnmálsögu og hagsögu frá Háskólanum í Lundi. Páll hafði að mestu unnið á fjölmiðlum áður en hann tók við starfinu. Kenndi að vísu í tvo vetur og var um tíma framkvæmdastjóri Samskipta- og upplýsingasviðs Íslenskrar erfða- greiningar. Páll var blaðamaður á Vísi, frétta- stjóri á Tímanum og sjónvarps- fréttamaður hjá RÚV, auk þess að gegna ýmsum yfirmannastöðum hjá fyrirtækinu sem nú heitir 365. Var meðal annars forstjóri Íslenska út- varpsfélagsins, fréttastjóri Stöðvar 2 og Bylgjunnar og sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Morgunblaðið/Þórður Oftast innanbúðarmaður MAGNÚS GEIR ÞÓRÐARSON, LEIKSTJÓRI OG LEIKHÚSFRÆÐINGUR, ER AÐEINS ANNAR MAÐURINN SEM RÁÐINN ER Í STARF ÚT- VARPSSTJÓRA ÁN ÞESS AÐ HAFA STARFAÐ HJÁ STOFNUNINNI ÁÐUR. HINN ER SÉRA HEIMIR STEINSSON. HVORUGUR HAFÐI REYNSLU ÚR FJÖLMIÐLUM. HINIR ÚTVARPSSTJÓRARNIR HÖFÐU UNNIÐ MISJAFNLEGA LENGI HJÁ RÍKISÚTVARPINU. Andrés Björnsson Páll Magnússon Markús Örn Antonsson Heimir Steinsson Pétur Guðfinnsson Jónas Þorbergsson Sigurður Þórðarson Vilhjálmur Þ. Gíslason * Fjölmiðlaefnið skal hið minnsta vera fréttir og fréttaskýringar,fræðsluþættir, íþróttaþættir, afþreying af ýmsum toga, lista- ogmenningarþættir og sérstakt efni fyrir börn og ungmenni. Úr lögum um Ríkisútvarpið. Þjóðmál ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is Magnús Geir Þórð- arson er yngsti maðurinn til að taka við starfi útvarps- stjóra. Hann er fer- tugur að aldri, fæddur 7. október 1973. Hann veltir Mark- úsi Erni Antonssyni úr sessi en hann var 41 árs þegar hann var ráðinn í fyrra skiptið og Jónas Þorbergsson 45 ára. Andrés Björns- son var fimmtugur, Páll Magnússon 51 árs, séra Heimir Steinsson 54 ára, Sigurður Þórðarson 55 ára og Vilhjálmur Þ. Gíslason 56 ára. Elsti maðurinn til að taka við embætti útvarpsstjóra er Pétur Guðfinnsson. Hann var 67 ára ár- ið 1996. MAGNÚS GEIR YNGSTUR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.2. 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.