Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.2. 2014
„Hér eru engir hommar,“
sagði borgarstjóri Sotsjí, Ana-
tolí Patsjomov, í viðtali við
BBC. Margir furðuðu sig á
þessum ummælum borgar-
stjórans því að Sotsjí hefur
verið vinsæll viðkomustaður
samkynhneigðra allt frá tímum
Sovétríkjanna. Þar er bar fyrir
klæðskiptinga og skemmti-
staðir fyrir samkynhneigða.
Í Rússlandi voru samþykkt
lög í fyrrasumar, sem gera
„áróður“ samkynhneigðra í
viðurvist einstaklinga undir
lögaldri refsiverðan.
Pútín sagði nýlega að sam-
kynhneigðir gestir á Vetraról-
ympíuleikunum þyrftu ekki að
hafa áhyggjur, en bætti við að
þeir ættu „að láta börnin í
friði“.
Mannréttindasamtök
hafa gagnrýnt afstöðu rúss-
neskra stjórnvalda til
samkynhneigðra
harðlega og ráða-
menn víða eru undir
þrýstingi um að snið-
ganga Ólympíuleikana.
V
etrarólympíuleikarnir,
sem haldnir verða í
Sotsjí 7. til 23. febrúar,
eiga að verða rós í
hnappagat Vladimírs
Pútíns forseta. Ekkert hefur verið
til sparað og talið er að þetta verði
dýrustu Ólympíuleikar frá upphafi
og keppa þó færri á Vetrar- en
Sumarólympíuleikum.
Pútín hefur notað leikana í Sotsjí
til að treysta völd sín. Í kapphlaup-
inu um milljarðana, sem fara í fram-
kvæmdirnar, trónir Vladimír Jak-
únín, yfirmaður rússnesku járn-
brautanna, á toppnum. Hann fékk
sex stór verkefni og 6,6 milljarða
evra til að ljúka þeim, þar á meðal
að reisa lestarstöð, sem annar jafn
mörgum farþegum og aðallestar-
stöðin í Berlín, þar sem eru tíu
sinnum fleiri íbúar en í Sotsjí.
Medvedev í kuldanum
Jakúnín ver Pútín með kjafti og
klóm og hefur fengið stuðning á
móti. Ekkert mark hefur verið tekið
á ásökunum Alexeis Navalnís, leið-
toga stjórnarandstöðunnar, á hend-
ur Jakúnín um spillingu og tilraunir
Dmítrís Medvedevs forsætisráð-
herra til að ýta Jakúnín til hliðar
strönduðu á forsetanum.
Medvedev hefur hins vegar verið
skákað til hliðar og er sagður nán-
ast valdalaus. Stuðningsmenn hans
hafa lítið komist að í Sotsjí.
Einn þeirra er Ahmed Bílalov.
Hann var meðal þeirra, sem höfðu
tryggt sér hlutdeild í smíði skíða-
stökkpalla í Sotsjí. Kostnaðurinn fór
upp úr öllu valdi og sagði Pútín upp
samningnum við Bílalov fyrir fram-
an myndvélar í skíðabrekkunum
fyrir ofan Sotsjí. Skömmu síðar
missti hann stöðu sína í rússnesku
ólympíunefndinni og aðra bitlinga
og mun nú vera horfinn til London.
Á sama tíma ákærðu yfirvöld hann
fyrir að misnota opinbert fé.
Pútín mun hafa gert auðmönnum
landsins heyrinkunnugt að ætlast
væri til þess að þeir legðu sitt af
mörkum í Sotsjí. Sumir munu hafa
gert það nauðbeygðir. Ekki fá allir
opinbert fé til framkvæmda og
hafa því mátt fara í eigin
vasa. Einn þeirra er álkóng-
urinn Oleg Deripaska, gam-
all skjólstæðingur Borís
Jeltsíns heitins, annar Vla-
dimír Pótanín, sem var vara-
forsætisráðherra í tíð Jeltsíns.
Sá fyrrnefndi tók að sér að
reisa ólympíuþorpið, sá síðar-
nefndi lúxushótel meðal annars.
Þeir sjá ekki að Sotsjí verði sú
ferðamannaparadís, sem spáð er, og
óttast að sitja uppi með tóm hótel-
herbergi að leikunum loknum. Þeir
hafa án árangurs beðið um styrk frá
yfirvöldum.
Þriðjungur fjárins horfinn?
Því hefur verið haldið fram að mikið
fé hafi farið til spillis við fram-
kvæmdirnar. Fyrirtækið Olimpstroi
var stofnað utan um framkvæmd-
irnar á íþróttamannvirkjunum. Í
samanburði á kostnaðinum við sam-
bærileg íþróttamannvirki annars
staðar kom í ljós að ólympíu-
mannvirkin í Sotsjí voru að jafnaði
57% dýrari en í öðrum löndum. Gi-
an-Franco Kasper, forseti Alþjóða-
skíðasambandsins, hélt því fram að
þriðjungur framkvæmdafjárins hefði
horfið. Járnbrautakóngurinn Jak-
únín sakaði Kasper um róg og
spurði hvernig hann vissi: „Tók
hann sjálfur þátt í spillingunni?“
Framkvæmdirnar í Sotsjí hafa
orðið mörgum að féþúfu, en lítið
virðist þó hafa runnið í vasa iðn-
aðarmannanna, sem hafa reist
mannvirkin. Semejon Simonov,
fulltrúi mannréttindasamtakanna
Memorial, segir að þeir hafi verið
hýrudregnir kerfisbundið. „90%
allra verkamanna við ólympíu-
byggingarnar í Sotsjí hafa annað
hvort engin laun fengið eða aðeins
hluta þeirra. Þeirra vinna gerði Ól-
ympíuleikana mögulega, en þeir
fengu ekki borgað fyrir.“
Þýskir fjölmiðlar hafa rætt við
verkamenn, sem tala um nútíma-
þrælahald, þeir hafi ekkert frí feng-
ið og enga heilbrigðisþjónustu.
Alþjóðaólympíunefndin hefur
fengið rússnesk stjórnvöld til að
bæta úr og lofuðu þau að sjá til
þess að borga sex milljónir evra í
vangoldin laun. Hvernig eigi að
koma peningunum til ólöglegra
verkamanna, sem ekki eru með
bankareikninga, var látið ósvarað.
Í desember voru framin tvö
hryðjuverk í Volgograd og á mynd-
bandi, þar sem tveir menn lýstu yfir
ábyrgð á verknaðinum, var varað
við því að Sotsjí yrði næst.
Þúsundir sérsveitarmanna verða
á götum Sotsjí að gæta öryggis og
30 þúsund hermenn gæta nærliggj-
andi landamæra. Sex varnarkerfum
til að granda sprengiflaugum hefur
verið komið fyrir auk þess sem orr-
ustuþotur og ómönnuð loftför verða
á eftirlitsflugi. Undan ströndinni
verða eftirlitsbátar á siglingu. Í
Sotsjí er meira í húfi en medalíur.
Í Sotsjí er
meira í húfi
en medalíur
RÚSSAR HAFA LAGT ALLT KAPP Á AÐ
VETRARÓLYMPÍULEIKARNIR, SEM HEFJAST Í SOTSJÍ EFTIR
TÆPA VIKU, VERÐI SEM GLÆSILEGASTIR, EN Í AÐDRAG-
ANDANUM HEFUR UMRÆÐAN SNÚIST UM FORDÓMA
GEGN SAMKYNHNEIGÐUM, SPILLINGU, HÝRUDREGNA
VERKAMENN OG HÆTTUNA Á HRYÐJUVERKUM.
ENGIR HOMMAR HÉR
AFP
Ólympíueldurinn logaði glatt í Sotsjí
þegar kveikt var á honum til reynslu á
mánudag. Í baksýn er Bolsjoí-skauta-
höllin þar sem keppt verður í íshokkíi.
Vetrarólympíuleikarnir í Sotsjí við
Svartahafið hefjast 7. febrúar.
*Maður tekur eftir að alltaf þegar Pútín er í bænum er sól-skin og gott veður. Alltaf þegar hann fer í burtu rignir.Larisa Nukhalova, fasteignasali í Sotsjí. Undanfarnar tvær vikur hefur rignt
án afláts í bænum þar sem Vetrarólympíuleikarnir hefjast 7. febrúar.
Alþjóðamál
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is
HEIMURINN
NARÍKIBAND
HING-WAS
TON arackB
Obama anda-
ríkjafors
stefnuræ
á þingi þ
h
ðsta
gmis
KKL
Gayet na,
inn, fyrir leik sinnalla mætti franska óskar s Taverni-
hún aðstoðarmann utanríkisráðhQuai d‘Orsay. Þar leikur ra sem
okkann sér til framdráttar. Gayet komhikar ekki við að nota kynþ st í fréttir
ancois Hollande, forseta Frakklands.vegna sambands síns við Fr Sambandið
sleit sambandinu við maka svarð til þess að Hollande Trierweiler,
af henni fjarlægðar af vefsíðí vikunni og voru myndir o seta
höfundurinn ykirþ
gninnikki með birtingu greinar undir fyrirsö
k. Samky
neigð
eirra
rirnni f
ó
n var
ims,
arð-
tralíu
ingi
ann
ensku heitirva The Greater
pterus roseus) og var
Stóri flæmingi hafði
m síðan 1933, var orðinnð í
gt og elli og var því ekkiram
en binda enda á líf hans,m a
a dýragarðsins.