Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 27
D
agný Björg segir heimilisstílinn einkennast
mikið af svörtu og hvítu í bland við gömul
húsgögn, þar leynast síðan litir inn á
milli. „Hrím og Ikea eru verslanir sem ég
versla mest við, Epal er einnig ofanlega á lista en
einnig hafa læðst inn á heimilið nokkrir skemmtilegir
hlutir og stólar úr Góða hirðinum,“ segir Dagný sem
telur mikilvægt að huga að skipulagi við innréttingu
heimilisins. „Ég vil geta lokað af óþarfa dót og ég
geymi kertastjaka og vasa gjarnan inni í skáp og
skipti frekar hlutum út eftir árstíðum, tilefni eða
skapi. Óreiðan skemmir dálítið heildarmynd heimilis-
ins þannig að ég reyni að lágmarka hana.“
Dagný Björg er höfundur heimilisbloggsins feel-
inspiredblog.com þar sem hún deilir skemmtilegum
hugmyndum með lesendum. „Ég er ótrúlega forvitin
um hvernig aðrir búa og þaðan fæ ég oft innblástur,
hvernig þau búa og innrétta heimilin sín,“ segir
Dagný sem sækir einnig innblástur í blogg, tímarit
og bækur. Á heimilinu hefur hún síðan útbúið sér lít-
ið skrifstofuhorn sem er hennar griðastaður á heim-
ilinu. „Þar sit ég og blogga, læri og vinn að skemmti-
legum verkefnum tengdum skólanum. Alveg minn
staður.“
Blanda af gömlu og nýju
DAGNÝ BJÖRG STEFÁNSDÓTTIR, NEMI Á HÖNNUNARBRAUT Í TÆKNISKÓLANUM,
OG SIGURJÓN ARASON BÁTASMIÐUR BÚA ÁSAMT ÞRIGGJA ÁRA SYNI SÍNUM Í
SKEMMTILEGA INNRÉTTAÐRI ÍBÚÐ Í GARÐABÆ.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
REYNIR AÐ LÁGMARKA ÓREIÐU
Morgunblaðið/Þórður
Dagný hannaði þessa fallegu
kolla úr birkikrossviðarplötu
koma þeir í hvítu, svörtu og í
náttúrulegum lit.
Falleg tekk-
húsgögn í
forstofunni.
Dagatalið hannaði
Dagný sjálf en það er
fáanlegt á vefsíðunni
feelinspiredblog.com.
Dagný Björg sækir
meðal annars inn-
blástur í blogg, tíma-
rit og bækur.
2.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
AFSLÁTTUR
%A60
ALLTAÐ
Reykjavík - Akureyri
G D a l s b r a u t 1 • A k u r e y r i OP I Ð V i r k a d a g a k l 1 0 – 1 8 o g l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6 E I T T S Í M ANÚME R 5 5 8 1 1 0 0