Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 34
*Græjur og tækniApple er verðmætasta fyrirtæki heims en fyrsta tölva þess leit dagsins ljós fyrir þrjátíu árum »36
und. Það bættist bara eitt núll ofan á það,“ segir Börkur og glottir við
tönn.
Börkur segir að stafræna formið opni margar dyr sem áður voru
lokaðar. Nú viti þeir nánast upp á hár hvar vinsældir þeirra liggja því
Deezer sér hvar í heiminum menn klikka á tónlist Mono Town. IP töl-
ur tölva sjá til þess. „Kosturinn við að gera þetta eins og við erum að
gera er að eftir einn eða tvo mánuði geta Deezer-menn gefið okkur
skýrslu um hvar hlustendurnir eru, hvar platan er að skora stig. Við
förum bara á túra þar sem við í raun vitum að platan er heit í staðinn
fyrir að dröslast um allt þar sem enginn nennir að hlusta á okkur eða
menn vita ekkert af okkur. Við erum að fá aðdáendapósta frá stöðum
sem maður hélt einhvern veginn að tónlist sem væri búin til á Íslandi
myndi ekki rata til. En heimurinn er alltaf að minnka og það er auð-
velt að hlusta á tónlist hvaðan sem er úr heiminum.“
Óumflýjanleg staðreynd er að allt er að breytast með internetinu
og streymisveitunum í kvikmynda- og tónlistargeiranum. Tæknibylt-
ingin er svo sannarlega komin í tónlistina og í raun hafa tónlist-
armenn verið að spá í hvernig væri hægt að fá greitt fyrir vinnu sína
síðan Napster var og hét. „Það eru auðvitað einhverjir vaxtarverkir í
þessu og menn vita ekki alveg hvar þetta endar en það sem er líkleg-
ast er að þessar streymisveitur verði einhverskonar miðpunktur í
þessu. Þær eru líka að þreifa sig áfram og þær borga ennþá frekar
illa en samt – þetta er allt að koma.“
Hljómsveitin Mono Town er
skipuð þeim Daða, Bjarka og
Berki. Þeir félagar sömdu við
streymisveituna Deezer sem
gefur út plötuna þeirra.
Nú þegar hafa milljón manns
hlustað á tvö lög frá bandinu.
Morgunblaðið/Þórður
Með streymisveitunum Deezer og Spotify er
hægt að hlusta hvar og hvenær sem er.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslensk tónlist hljómar nú víða heim, meðal
annars í Suður-Ameríku svo dæmi séu tekin.
AFP
Deezer streymisveitan er með
10 milljón skráða notendur.
HLJÓMSVEITIN MONO TOWN
Tilraunadýr tónlistar
á veraldarvefnum
HLJÓMSVEIT ER STOFNUÐ, HÚN VEKUR ATHYGLI, GEFUR ÚT PLÖTU, HENNI ER LEKIÐ Á NETIÐ
ÞAR SEM HÆGT ER AÐ HLUSTA Á HANA. ÞANNIG HLJÓMAR SAGA FLESTRA HLJÓMSVEITA.
MONO TOWN BYRJAÐI HINSVEGAR Á HINUM ENDANUM.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
P
latan In The Eye Of The Storm, með íslensku hljómsveitinni
Mono Town kom út í vikunni á frönsku streymisnetsíðunni
deezer.com. Þetta er í fyrsta skiptið sem Deezer markaðsetur
plötu með hljómsveit sem ekki er gefin út hjá hefðbundnu út-
gáfufyrirtæki. „Það mætti því segja að við séum að byrja á öfugum
enda og kannski er þetta svolítið skrýtin röð að gera hlutina. Geisla-
diskur, vínylplata eða eitthvað álíka veraldlegir hlutir koma svo í kjöl-
farið,“ segir gítarleikari Mono Town, Börkur Hrafn Birgisson, en
bandið hefur vakið mikla athygli – enda hálfgert tilraunadýr tónlistar
á veraldarvefnum. Ásamt Berki Hrafni eru þeir Daði bróðir hans og
Bjarki Sigurðsson í bandinu. „Þetta er samt mjög spennandi þó mað-
ur viti ekkert hvar þessi internetbylting endar en þetta byrjar alla-
vega vel.
Við kaupum sjálfir vínyl og diskar eru enn góðir og gildir en þetta
er hinsvegar að breytast hratt,“ bætir Börkur við.
Milljón manns búnir að hlusta
Franska streymisveitan Deezer gefur hljómsveitina út á vefnum sín-
um deezer.com þar sem 10 milljónir manna víða um heim eru skráðir
notendur, flestir frá meginlandi Evrópu og Suður-Ameríku. „Þeir
settu lögin Peacemaker og Jackie O í spilun fyrir 2 mánuðum og
milljón manns eru búnir að hlusta á lögin. Við erum í skýjunum með
það og þeir hjá Deezer líka því væntingarnar voru í kringum 100 þús-