Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 39
2.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 Þ ótt það sé ekki sérlega sumarlegt um að litast þá eru allar alvöru tískupæjur farnar að pródúsera hvernig þær ætla að taka á móti vorinu – og það með stæl. Til þess að undirbúa sig er ágætt að fara að setja sumarfötin aðeins framar í fataskáp- inn, strauja það sem þarf að strauja og stagla í það sem þarf að stagla … kannski ekki alveg stagla í en samt (hér varð náttúrlega hrun – við skulum alls ekki gleyma því). Eins og með öll alvöruverk- efni sem við tökum okkur fyrir hendur skiptir máli að vera al- veg tilbúnar þegar þetta brestur á. Ég var til dæmis næstum því viss um að þetta væri komið þegar ég hjólaði í gegnum miðbæinn og út á Seltjarnarnes fyrr í vikunni seinni part dags – úti var ennþá bjart og vor í lofti. Daginn eftir fokkaðist þetta aðeins upp þeg- ar það byrjaði að snjóa af fullum krafti … Það er akkúrat á þessum árstíma sem við þráum liti, léttari efni og það að geta verið berfættar í skónum. Það má pródúsera þessi þrjú atriði heima hjá sér enda er ekkert sem bannar okkur að vera berfættar í skóm inn- andyra. Það er þó eitt sem verður sér- staklega áberandi í vor- og sumartískunni og það eru samfestingar og smekkbuxur. Þú þarft ekkert að óttast að þú verðir eins og fullorðið barn í sam- festingnum. Þetta snýst um að velja rétta skó, vera með hárið blásið og slegið og í rétta jakkanum yfir. Samfestingar geta nefnilega verið ferlega klæðilegir því þeir klippa okkur ekki í sundur – eins og buxur og skyrta gera. Þegar stykkið er í sama lit og einni heild þá virkum við hávaxnari (sumar þurfa meira á því að halda en aðrar). Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að þetta samfestinga-mál er ekki fyrir allar. Ég mæli þó með því að þið gefið samfestingnum séns og prófið að máta næst þegar þið farið í búð. Auðvitað fylgja fjölda- framleiddum samfestingum ótalmörg vandamál og getur verið flókið að finna samfesting sem passar bæði að ofan og neðan. Við erum nefnilega fæstar eins og dúkkur í laginu og stundum virðist genalot- teríið eitthvað vera að stríða okkur … Það framkallar dálitla ónotatilfinningu að klæðast samfestingi sem smellpassar að ofan en er dálítið of þröngur að neðan. Það getur ver- ið oggulítið heftandi að geta ekki sest niður – en í kokkteilboðum þarf það ekki að vera vandamál. Nú ef samfestingurinn passar að neðan en er aðeins of þröngur að ofan má alltaf sleppa því að renna honum upp og fara í jakka yfir. En þú skalt ekki nota þetta trix þegar þú hittir hressu vini þína sem gætu tekið upp á því að breyta þorrablótinu í danskeppni. Þegar þú færir að rifja upp gömlu taktana úr freestyle-keppninni í Tónabæ er hætt við að þér færi að hitna of mikið sem gerði það að verk- um að þú yrðir að fara úr jakkanum. Þótt samfestingar séu töff varð mér ljóst á dögunum að það voru ekki bara íslenskir bankamenn sem voru í rugl- inu 2007. Fatalína Madonnu fyrir sænska móðurskipið H&M það herr- ans ár gefur til kynna að ruglið hafi verið alþjóðlegt. Ykkar ástkæra á einmitt samfesting úr fyrrnefndri línu og er ekki eini íslendingurinn því Sóley Tómasdóttir átti eins samfesting. Ef mig misminnir ekki komst hún inn í borg- arstjórn í honum 2007. martamaria@mbl.is Sóley Tómasdóttir var í þessum samfestingi í sjónvarpssal fyrir borgar- stjórnarkosningarnar 2007. Samfestingur frá DKNY. Ekki breyta þorrablótinu í danskeppni GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Frá okkur færðu skyrturnar þínar tandurhreinar og nýstraujaðar Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380 ÞVOTTAHÚS EFNALAUG DÚKALEIGA SJÓNARHÓLL Frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á Íslandi Reykjavíkurvegur 22 | S. 565 5970 | sjonarholl.is Þar sem gæðagleraugu kosta minna! Kynnið ykkur „Intuitiv“ Nýjustu margskiptu glerin frá BBGR Frakklandi hlutu gullbikarinn sem bestu margskiptu glerin á alþjóðlegri gleraugnasýningu í Paris nú í september. Verðlaunin voru veitt fyrir mun stærra fókussvæði í les-, tölvu- og akstursfjarlægðum. Aðeins á Sjónarhóli *Les eða göngugleraugu Sph+/-4 cyl -2 fylgja Gleraugu fyrir alla 2 fyri r1 * Komdu með sjónmælinguna með þér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.