Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 57
2.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Esther Gerritsen er ein fremsta
skáldkona Hollendinga af yngri
kynslóð og hefur hlotið ýmis
verðlaun og viðurkenningar fyr-
ir bækur sínar. Nú er komin út
eftir hana í íslenskri þýðingu
Rögnu Sigurðardóttur skáldsag-
an Þorsti.
Mæðgurnar Coco og Elisa-
beth hittast sjaldan en þegar
þær einn góðan veðurdag rek-
ast hvor á aðra segir Elisabeth
dóttur sinni að hún eigi ekki
langt eftir ólifað. Coco finnur til
ábyrgðar og ákveður að flytja
inn til móður sinnar. Þá reynir
vitanlega mjög á sambandið.
Bókin hefur fengið afar góða
dóma í heimalandi höfundar, en
þar kom hún út árið 2012.
Mæðgur og
dauðinn
Morgunengill eftir Árna Þór-
arinsson hefur gert það gott í
Frakklandi undanfarin misseri og
var í keppni um efstu sætin á met-
sölulista þar í landi nú fyrir jólin en
bókin náði þar efst 6. sæti og situr
enn á lista. Síðustu þrjá mánuðina
fyrir jól seldist bókin, sem í franskri
þýðingu heitir L’ange du Matin, í
hátt í 30 þúsund eintökum. Árni
gerir sig nú líklegan til þess að
fylgja þessari velgengni eftir en nú
hefur útgáfurétturinn á nýrri skáld-
sögu hans Glæpurinn - Ást-
arsaga, sem gefin var út hér á
landi fyrir jól, verið seldur til
Frakklands, en bókin fékk afar góð-
ar viðtökur hér á landi. Verk Árna
virðast eiga greiða leið inn í franska
þjóðarsál en nýlega var einnig geng-
ið frá samningi um útgáfu Árs
kattarins sem kemur út í Frakk-
landi á þessu ári.
Árni Þórarinsson á góðu gengi að fagna í Frakklandi
og Glæpurinn er á leið þangað.
Morgunblaðið/Golli
GLÆPURINN TIL
FRAKKLANDS
Barnabókin Amma glæpon
eftir David Walliams sló
rækilega í gegn hjá ungu kyn-
slóðinni um síðustu jól. Walli-
ams slær ekki bara í gegn hjá
almennum lesendum því
hann fær ætíð afar góða
dóma gagnrýnenda fyrir líf-
legar og bráðskemmtilegar
bækur sínar. Ungir íslenskir
aðdáendur Walliams geta glaðst því von
er á annarri bók eftir hann fyrir næstu jól.
Sú nefnist í íslenskri þýðingu Rottu-
borgarinn. Bókin var valin barnabók
ársins í Bretlandi 2012 af samtökum bók-
sala og bókaútgefenda. Það er Bóka-
félagið sem gefur bókina út og í apríl
kemur út hjá sama forlagi, undir merkjum
Almenna bókafélagsins, þýðing á verð-
launabókinni The Rational Optimist
eftir Matt Ridley en höfundurinn kom
hingað til lands árið 2012 og flutti fyr-
irlestur undir heitinu Hvers vegna ég er
bjartsýnn af skynsemisástæðum.
ROTTUBORGARI OG BJARTSÝNI
Matt Ridley er einn af kunnustu rithöfundum Breta
og bækur hans hafa selst í 900 þúsund eintökum.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
HHhH er stórkostleg bók eftir
Laurent Binet. Höfundurinn
fékk Goncourt-verðlaunin fyrir
þessa frumraun sína sem hefur
vakið gríðarlega athygli og
hlotið einróma lof. Binet segir
sanna sögu á magnaðan hátt og
tekur skýra afstöðu. Árið er
1942 í Prag og tveir ungir menn
hafa það verkefni að drepa
Reinhard Heydrich, hættuleg-
asta mann Þriðja ríkisins. Þýð-
ing Sigurðar Pálssonar er stór-
góð.
Stórkostleg
bók um sanna
atburði
Frönsk verð-
launabók og
saga kvenna
NÝJAR OG NÝLEGAR BÆKUR
HELSTU TÍÐINDIN Í BÓKAÚTGÁFU ÞESSA DAG-
ANA ER ÞÝÐING SIGURÐAR PÁLSSONAR Á
HHHH, FRANSKRI VERÐLAUNABÓK SEM HITTIR
SANNARLEGA Í MARK. EKKI MISSA AF HENNI.
ÞÝÐING Á SKÁLDSÖGU EFTIR HOLLENSKA
SKÁLDKONU ER EINNIG NÝ OG ÞROSKASAGA
BLAÐAKONU ER SVO NÝLEG BÓK.
Tónlistarblaðakonan Caitlin Moran
er höfundur bókarinnar Að vera
kona. Þar rekur hún eigin þroska-
sögu og eldfim baráttumál kvenrétt-
indahreyfingarinnar. Hún fjallar
meðal annars um strippbúllur,
fóstureyðingar, kynlífshegðun og
starfsframa. Bókin sló í gegn í
heimalandinu Englandi og vakti mik-
ið umtal. Anna Margrét Björns-
dóttir þýddi bókina.
Vandinn að
vera kona
5:2 mataræðið með Lukku í Happi er ný bók um
sérlega vinsælan matarkúr. Lukka, Unnur Guðrún
Pálsdóttir, leiðbeinir lesendum um 5:2 mataræðið,
gefur ráð, upplýsingar og uppskriftir. Kúrinn geng-
ur út á það að tvo daga vikunnar er hitaeininga-
innihaldi fæðunnar haldið í 500-600 kaloríum en
aðra daga heldur fólk sig við hefðbundið mat-
aræði. Handhæg bók fyrir þá sem hafa áhuga á
kúrnum.
Bók um vinsælan matarkúr
* Það er hægt að lifa á tvennan hátt; ann-ars vegar eins og engin kraftaverk séutil, hins vegar eins og allt sé kraftaverk.
Albert Einstein
BÓKSALA 23.-29. JANÚAR
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 5:2 MataræðiðUnnur Guðrún Pálsdóttir
2 SandmaðurinnLars Kepler
3 HHhHLaurent Binet
4 Árleysi aldaBjarki Karlsson
5 Mótorhjól í máli og myndumÖrn Sigurðsson
6 Megas textar 1966-2011Magnús Þór Jónsson
7 Vísindabók VillaVilhelm Anton Jónsson
8 Rangstæður í ReykjavíkGunnar Helgason
9 Fiskarnir hafa enga fæturJón Kalman Stefánsson
10 Hvar er Valli ? HollywoodMartin Handford
Vasabrotsbækur - skáldverk
1 SandmaðurinnLars Kepler
2 HHhHLaurent Binet
3 ÓlæsinginnJonas Jonasson
4 VeiðihundarnirJørn Lier Horst
5 Maður sem heitir OveFredrik Backman
6 InfernoDan Brown
7 Hún er horfinGillian Flynn
8 Kaffi og ránCatharina Ingelman-Sundberg
9 SnjókarlinnJo Nesbø
10 Gröfin á fjallinuHjørt & Rosenfeldt
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Drjúg eru morgunverkin.