Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 15
„soundið“, sem er dálítið eins og þegar menn tapa sér í því að velja dekk undir bíla. Ef ég mun leggja fyrir mig hljómsveitarstjórn, þá verður mitt metnaðarmál músíkölsk fram- sögn og það að láta tónana tala.“ Stefnirðu meðvitað hátt í tónlistinni? „Um tíma langaði mig til að verða þekktur og að baki þeirri þrá var draumurinn um að geta helgað mig tónlistinni sem er ekki auð- velt og fáum hlotnast. Þegar ég fór að þrosk- ast áttaði ég mig á því að hugur minn stefndi ekki til frægðar. Mér finnst framagirnd hafa elst af mér og það stendur mér kannski dálít- ið fyrir þrifum þegar kemur að hljómsveitar- stjórn. Samnemendur mínir í Berlín eru margir reknir áfram af framagirnd, eru stefnufastir og nískir á tíma sinn og einblína á framann. Ég er sjaldnast þannig sjálfur, nema kannski stuttan tíma í senn, þegar stór verkefni standa fyrir dyrum.“ Hvar heldurðu að framtíð þín í tónlist muni liggja, muntu einbeita þér að hljóm- sveitarstjórn, því að spila eða semja tónlist eða muntu gera allt þetta? „Ég get hugsað mér að gera hvað sem er. Ég sé ekki endilega fyrir mér að sitja og skrifa nákvæm sinfónísk verk. Ég er maður augnabliksins. Þótt ég sé ekki flinkur í því að spila djass þá er ég góður í því að spila eftir eyranu og spuni á betur við mig en það að skipuleggja eitthvað í þaula. Eins er með lífið sjálft. Mér finnst skemmtilegast að taka þátt í tónlist þar sem fólk nýtur augnabliksins og hefur ekki of miklar áhyggjur af framhald- inu. Ég er ekki gefinn fyrir fólk sem tekur sig of hátíðlega. Mér er hinsvegar stundum legið á hálsi fyrir að taka mig ekki nægilega alvarlega, sem er allt annar hlutur og kannski engu skárri. Ég veit að jafnvel þótt ég geti ekki haft lifibrauð af því að spila tón- list þá mun ég spila og fást við tónlist meðan mér endist aldur.“ Bjarni Frímann. „Mér finnst framagirnd hafa elst af mér og það stendur mér kannski dálítið fyrir þrifum þegar kemur að hljómsveitarstjórn.“ Morgunblaðið/Golli 2.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is – hágæða ítölsk hönnun NATUZZI endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna ítalskrar hönnunar. Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í NATUZZI umhverfi. Staður þar sem fólki líður vel. 100%made in Italy www.natuzzi.com Natuzzi Hvítur leðursófi Model 2497, Ct.15, lengd 226cm rafmagn í sætum kr. 739.000 Natuzzi Bacco motta 240x170 verð kr. 99.000 – 270x190 verð kr. 129.000 NatuzziWisdom lampi verð kr. 179.000 Natuzzi Hvítur vasi á borði verð kr. 7.490 Natuzzi Base vasi á borði verð kr. 9.900 Komið og upplifið NATUZZI gallerýið okkar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.