Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 53
2.2. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Hinn kunni japanski hljóð-
listarmaður Ryoji Ikeda
heldur tónleika í Hörpu á
laugardagskvöld og má bú-
ast við miklu sjónarspili. Húsið mun
iða af lífi og tónum um helgina, með
Myrka músíkdaga og Visual Music
Festival í fullum gangi.
2
Sýning Leikfélags Akureyrar
á Gullna hliðinu eftir Dav-
íð Stefánsson hefur hlotið
mikið lof og þykir uppsetn-
ing Egils Heiðars Antons Pálssonar
leikstjóra á verkinu vera einkar lífleg
og leikarar standa sig vel. Fimmta
sýning er á laugardagskvöldið.
4
Kvikmyndaklúbburinn Svartir
sunnudagar í Bíó Paradís blæs
til kvikmyndaveislu um
helgina og hyllir leikstjórann
Brian de Palma. Á laugardag er hin
blóðuga Scarface sýnd kl. 20 en
Blow Out á sunnudagskvöld.
5
Eiríksína Ásgrímsdóttir
opnar á sunnudag klukkan
12 athyglisverða sýningu í
forsal Grensáskirkju. Kallast
hún „Allir farnir“ og getur þar að líta
um 60 ljósmyndir, tvö olíumálverk og
eitt textílverk. Ljósmyndirnar voru
teknar í yfirgefnu húsi eftir að afkom-
endur nýlátinnar ættmóður tóku til
eftir sig og hana.
3
Um helgina stendur yfir í
Deiglunni á Akureyri hátíð
sem helguð er leiknum kvik-
myndum og heimildamyndum
frá Hong Kong. Um er að ræða
samstarf Sjónlistarmiðstöðvar og
Listhúss í Fjallabyggð.
1
MÆLT MEÐ
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópr-an og píanóleikarinn Ástríður AldaSigurðardóttir taka þátt í dagskrá
Myrkra músíkdaga nú um helgina og halda
tónleika í Kaldalóni í Hörpu í kvöld, laug-
ardag, og hefjast þeir klukkan 21.30. Á efnis-
skránni er ný og nýleg tónlist, að sögn Sig-
ríðar Óskar. Fyrst má nefna djassaðan
söngflokk eftir Gunnar Reyni Sveinsson,
Undanhald samkvæmt áætlun, en hann var
saminn árið 1977 við ljóð Steins Steinars. Þá
frumflytja þær stöllur hér á landi verkið
Adriana Songs eftir margverðlaunað finnskt
tónskáld, Kaija Saariaho. Að lokum eru á
efnisskránni lög eftir Hjálmar H. Ragn-
arsson, Þrír söngvar Sólveigar úr leikritinu
Pétri Gaut, „undurfalleg lög“ að sögn söng-
konunnar.
„Við erum að flytja þessi verk í fyrsta
skipti,“ segir Sigríður Ósk. Hún segir lög
Gunnars Reynis vera býsna djössuð, fjöl-
breytt og skemmtileg. „Þessi flokkur hefur
ekki verið mikið fluttur í heild sinni. Gunnar
Reynir samdi hann á sínum tíma fyrir kon-
una sína, Ástu Thorsteinsson mezzósópran.
Gunnar lék á víbrafón og tengdi klassík og
djass á áhugaverðan hátt,“ segir hún.
„Hljómarnir og ryþminn eru undir djass-
áhrifum.“
Finnska tónskáldið Kaija Saariaho hefur
vakið mikla athygli á undanförnum árum og
meðal annars hlotið hin sænsku Polar-
tónlistarverðlaun, í fyrra, og árið 2011 fékk
hún dönsku Sonning-verðlaunin. „Hún býr í
Frakklandi og tónlist hennar hefur mjög
flottan karakter, er dularfull og íburðarmikil.
Þá er ákveðin finnsk melankólía í verkunum,
sem eru mjög falleg. Verkin sem við flytjum
samdi hún árið 2006 og þá fyrir mezzó og
hljómsveit en þau eru líka til í þessari píanó-
útsetningu.“
Um lögin sem Hjálmar samdi fyrir upp-
setningu á Pétri Gaut í Þjóðleikhúsinu og
margir þekkja, segir hún að gaman sé að
hafa á efnisskránni nokkur verk sem eru
ekki framandi fyrir áheyrendur.
„Þetta eru falleg og einföld lög, eins og
Hjálmar stefndi að, í anda Sólveigar sem
syngur lögin í leikritinu,“ segir Sigríður Ósk.
Þetta verður í fyrsta skipti sem hún kem-
ur fram á Myrkum músíkdögum og segist
hún hlakka til enda sé þetta „fjölbreytt hátíð
og margt gott í gangi. Það er svo mikilvægt
að hafa slíka hátíð með nútímatónlist“.
TÓNLEIKAR SIGRÍÐAR ÓSKAR OG ÁSTRÍÐAR ÖLDU Á MYRKUM MÚSÍKDÖGUM
„Falleg og einföld lög“
Á EINSÖNGSTÓNLEIKUM Í HÖRPU
VERÐA FLUTT VERK EFTIR GUNNAR
REYNI SVEINSSON, HJÁLMAR H.
RAGNARSSON OG SAARIAHO.
„Það er svo mikilvægt að hafa slíka hátíð,“ segir
Sigríður Ósk um Myrka músíkdaga.
ar ég var 18 ára. Ég fær ennþá gæsahúð við
að hugsa um það!
Ég söng í kórum í mörg ár, allt þar til ég
fór út í nám, og það markaði djúp spor. Milli
stærri verkefna finnst mér alltaf gott að
grípa í að skrifa kórverk, það finnst mér eins
og að komast heim. Mér finnst það iðulega
ekki jafn flókið og að skrifa fyrir hljómsveit,
mér finnst ég vita vel hvað virkar fyrir kór,
enda alinn upp í þessari íslensku kórahefð.
Þegar ég var kominn í framhaldsnám í
Danmörku kom ég af og til með ný kórverk í
tíma en mætti takmörkuðum skilningi, kenn-
ararnir ypptu áhugalitlir öxlum og spurðu
hvers vegna ég væri að gera þetta.“ Hann
hlær. „En hér á landi er svo mikið af fram-
bærilegum kórum sem eru skipaðir áhuga-
mönnum, hefðin er svo rík. Það þekkist ekki
á sama hátt í Danmörku. Ég held ég spretti
af sama jarðvegi og Atli Heimir Sveinsson,
Þorkell og aðrir sem hafa gripið í þetta hér.“
Kórtónlistin á diskinum spannar allan tón-
smíðaferil Huga, frá 1998 til dagsins í dag.
„Ég hrærist í heimi nútímatónlistar, sem
er ekki endilega það sem fjöldinn er spennt-
astur fyrir, en ég var farinn að sjá að ég
ætti hér efni á heilan disk sem ætti ekki að
stuða neinn,“ segir hann og brosir. „Þetta er
frekar aðgengileg nútímatónlist. Mig langaði
að koma þessu frá mér og sýna að nútíma-
tónlist í dag þarf ekki endilega að vera skrif-
að fyrir fáa útvalda og útlærða fagmenn. Það
viðhorf er sem betur fer að breytast mjög
hratt og aðsókn á tónleika að aukast mikið“.
– Hvernig er að starfa sem íslenskt tón-
skáld í Kaupmannahöfn?
„Býsna gott. Ég get ekki kvartað. Reynd-
ar vinn ég líka töluvert á Íslandi og það er
aftur að aukast mikið eftir algjöra ládeyðu í
kjölfar hrunsins. Úti fæ ég hinsvegar mikið
af pöntunum sem bæði danskir og alþjóð-
legir flytjendur hafa getað fjármagnað með
dönskum styrkjum. Það kerfi gerði það að
verkum að ég hef getað skrimt sem tónskáld
þó að kannski hafi það ekki verið heppileg-
asti tíminn að byrja á því akkúrat árið 2007
þegar kreppan var að fara að skella á.“
– Og eru alltaf einhver verk að fæðast?
„Já, verkin verða til mitt á milli hljóm-
borðsins, tölvunnar og nótnapappírsins – og
sem betur fer en nóg af verkefnum.“
„Mig langaði að koma þessu frá mér og sýna að nútímatónlist í dag þarf ekki endilega að vera skrifuð fyrir fáa útvalda og útlærða fagmenn,“ segir Hugi.
Morgunblaðið/Ómar