Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 24
*Heimili og hönnunÍbúð í Garðabæ einkennist af svörtum og hvítum en fallegir munir setja svip sinn á heimilið »26
G
ríðarleg aðsókn er í bólstrunarnám-
skeiðið og eru öll námskeið fram á
vor uppbókuð. Kristján Ágústsson
bólstrari og umsjónarmaður nám-
skeiðsins segir það ekki hafa komið sér á óvart
hversu margir hafi áhuga á að læra fagið. „Nú er
tískan þannig að fólk er að sækja svolítið hús-
gögn frá sjöunda áratugnum, þessi léttu, tekk-
húsgögn. Góði hirðirinn er með töluvert af þeim
og fólk er mikið að kaupa þar hluti sem þarf að
gera upp og það ýtir svolítið undir áhugann.“
Námskeiðin eru 12 tímar hvert, fjögur skipti
og þrír tímar í senn. Alls eru átta nemar í hverju
námskeiði. „Það eru allavega húsgögn sem fólk
kemur með á námskeiðið. Ég byrja á smásýni-
kennslu, hvernig á að sníða svamp, áklæði,
sauma og bóla bak. Síðan hef ég nýtt tímann í
þau húsgögn sem fólk kemur með. Þetta er ætl-
að sem byrjendanámskeið en það eru oft flókin
húsgögn sem fólk hefur komið með. Fólk vill fá
sem mest út úr þessu,“ segir Kristján og hlær.
Kristján er með yngstu bólstrurum landsins og
vonar að hægt sé að endurlífga þessa iðngrein
svo bólstrun deyi ekki út.
Ungt fólk sækir í bólstrun
Mikill áhugi er fyrir því að læra þetta en erfitt
er að komast að.
„Það er enginn skóli hér á landi til þess að
læra bólstrun, það er erfitt að komast á samning
því bólstrararnir vilja frekar vera með aðstoð-
arfólk heldur en fólk á samningi því það er ódýr-
ara og þess vegna fara þessir bólstrarar að detta
út.“
En hvers vegna sækir fólk í námið?
„Ég held að fólk sé ekki endilega að spá í
verðið á bólstrun almennt en margir eru þó með
svona einn og einn grip sem þeir vilja láta klæða
og sjá þá fram á að komast slétt út úr námskeið-
inu og fá þekkingu og annað um leið. En sumir
koma með stykki og vilja bara læra, sérstaklega
unga fólkið.“
Einnig hefur verið nokkuð af ungu fólki á
námskeiðinu samhliða námi í húsgagnasmíði sem
langar að fá innsýn í bólstrun sem Kristján telur
ákaflega jákvætt.
Kvenfólk er nú í meirihluta og segir Kristján
konur almennt duglegri að taka þátt. Aðsókn
karlmanna hefur þó verið að aukast en núna eru
þrír karlmenn af átta nemendum á námskeiðinu.
Kristján ætlar að halda áfram með bólstr-
unarnámskeiðin í haust. „Ég verð með sex nám-
skeið í haust og stefni á að halda þeim áfram á
meðan áhugi fólks er fyrir hendi.“
Morgunblaðið/Kristinn
Verkefnin eru miskrefjandi á bólstrunarnámskeiðinu.
Gamall stóll bólstraður á námskeiðinu.Ruggustóll bólstraður í Tækniskólanum.
Mikill áhugi er hjá nemendum námskeiðsins.
Á námskeiðinu læra nemendurnir að sníða svamp, áklæði, sauma og bóla bak.
Kristján Ágústsson segir margt ungt fólk sækja í námskeiðið.
MIKIL AÐSÓKN Í BÓLSTRUNARNÁMSKEIÐ
Ýtir undir
áhugann
TÆKNISKÓLINN Í REYKJAVÍK FÓR AF STAÐ MEÐ
BÓLSTRUNARNÁMSKEIÐ Í FYRRAHAUST. KRISTJÁN
ÁGÚSTSSON, UMSJÓNARMAÐUR NÁMSKEIÐSINS, SEGIR
MIKLA AÐSÓKN Í NÁMIÐ OG VONAST TIL AÐ HÆGT SÉ
AÐ ENDURLÍFGA IÐNGREININA HÉR Á LANDI.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Á námskeiðinu mæta nemarnir hver með einn hlut sem Kristján aðstoðar þá við að bólstra.
* „Þetta er ætlað sem byrjenda-námskeið en það eru oft flókinhúsgögn sem fólk hefur komið með.
Fólk vill fá sem mest út úr þessu.“