Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.02.2014, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.2. 2014
mæðgurnar aftur eftir tæplega átta áratuga
aðskilnað.
Vakti áhuga í skólanum
Bob lýkur lofsorði á bók bróður síns, hún sé
verðugt framtak og geri þeim systkinum öll-
um auðveldara um vik að fræða sína afkom-
endur um uppruna sinn. „Ég las bókina ein-
mitt fyrir átta ára gamla sonardóttur mína
fyrr í vetur og hún hafði gríðarlega gaman af.
Fór meira að segja með hana í sögustund í
skólanum sínum og fékk fjölmargar fyr-
irspurnir. Fyrir jólin sagði hún krökkunum í
bekknum síðan frá íslensku jólasveinunum og
þótti þeim stórmerkilegt að þeir væru þrett-
án. Við eigum bara einn jólasvein í Bandaríkj-
unum,“ segir Bob og hlær.
George er sannfærður um að vakað hafi
verið yfir sér við gerð bókarinnar. Allt hafi
gengið upp. Hvert einasta smáatriði.
Á leiðinni heim varð hann fyrir undarlegri
lífsreynslu. „Ég hef aldrei viljað sitja við
glugga í flugvélum en þar sem gluggasætið
var laust að þessu sinni færði ég mig þangað.
Þegar við vorum hálfnuð milli Íslands og
Grænlands varð mér litið út um gluggann og
sá þá tvær manneskjur, konu með litla stúlku
sér við hlið. Þær veifuðu til mín og báðu mig
um að koma aftur og hitta sig. Ég veit að
þetta hljómar undarlega og eflaust halda ein-
hverjir að ég sé genginn af göflunum. En ég
veit hvað ég sá. Þetta var ekki ofskynjun. Ég
var heldur ekki í glasi og hef aldrei notað
fíkniefni.“
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem George
verður fyrir því sem hann kallar „trúarupp-
lifun“. Árið 2000 vildi hann ná ljósmynd af
Aðalvík og klifraði í þeim tilgangi upp í ná-
læga hlíð. Komst þó ekki alla leið enda með
léleg hné frá því hann gegndi herþjónustu.
Sonur hans, Tim, tók þá við myndavélinni og
hélt áfram upp hlíðina til að taka myndina.
Meðan hann beið heyrði George óvænt rödd
sem sagði: „Það verður allt í lagi, við fylgj-
umst með þér!“ Hann sá engan. „Ég veit ekki
hvernig ég á að útskýra þetta.“
Spurður hvort mælt hafi verið á íslensku
eða ensku kveðst George ekki gera sér grein
fyrir því.
„Ég hef bara orðið þrisvar fyrir upplifun af
þessu tagi, alltaf hér á landi. Það er eitthvað
kynngimagnað við Ísland.“
Vill þýða bækurnar á íslensku
Þetta varð kveikjan að annarri bók, „Ég er
kominn aftur“ (I’m Back), þar sem George fer
með ítarlegri hætti yfir sögu fjölskyldu sinn-
ar. Nú er þriðja bókin í smíðum en hún fjallar
um kirkjuna á Látrum, Staðarkirkju.
Bækurnar eru aðeins fáanlegar á ensku en
George hefur mikinn áhuga á að láta þýða
þær yfir á íslensku. Hefur hann rætt við út-
gefendur hér heima með það í huga. „Ég vona
að af þessu geti orðið í náinni framtíð enda
held ég að efnið gæti vakið áhuga margra. Ég
hef gert þessar bækur af brennandi áhuga en
ekki fjárhagslegri þörf og hef raunar ákveðið
að verði ágóði af sölu bókanna hér á landi
myndi hann renna óskiptur í kirkjusjóð Stað-
arkirkju í Aðalvík.“
George hefur mikinn áhuga á því að rekja
ættir sínar og hefur orðið töluvert ágengt.
Hann viðurkennir þó að sá siður Íslendinga
að kenna börn við feður sína hafi aðeins
þvælst fyrir honum. „Ég skil hugsunina á bak
við þá hefð en það er auðveldara að rekja
ættir þar sem allir bera ættarnöfn,“ segir
hann.
Ég lýsi því yfir við George á íslensku að
hann sé bara orðinn ættfræðingur, eins og
annar hver maður hér á landi. Hann hlær að
því innleggi.
Verður aldrei fyrir vonbrigðum
George Valdimar Tiedemann kemur á hverju
ári til Íslands, til að njóta landsins og rækta
frændgarðinn. Hann hefur mikið dálæti á
Reykjavík en segir samt ekkert jafnast á við
Aðalvík. Fegurðina og kyrrðina. Meðan heils-
an leyfir mun hann koma áfram. „Ég verð
aldrei fyrir vonbrigðum þegar ég kem til Ís-
lands.“
Daginn eftir samtal okkar sneri George
heim til Bandaríkjanna ásamt föruneyti sínu.
Við heimkomuna gat hann ekki setið á sér að
rita mér tölvupóst. Hann var á þessa leið:
„Hér er áhugaverð staðreynd. Þegar við yf-
irgáfum Ísland var hitastigið 2,8 gráður á Cel-
cius. Þegar við lentum á JFK-flugvelli var það
-10 gráður. Þegar við lentum sá ég bara hluta
af flugbrautinni fyrir snjó. Það tók okkur
meira en fjóra tíma að keyra heim en ekki
einn og hálfan tíma eins og venjulega. Guði sé
lof að það var Íslendingur undir stýri!“
Morgunblaðið/RAX
* Ég hef bara orðiðþrisvar fyrir upplifun af þessu tagi,
alltaf hér á landi. Það
er eitthvað kynngi-
magnað við Ísland.
George á göngu í Reykjavík
ásamt eiginkonu sinni, Sharon,
og yngri bróður, Bob.
20–70%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRU
M
RISA-
ÚTSALA
DIDRIKSONS
BARNAÚLPUR
25%
AFSLÁTTUR
BAKPOKAR
30%
AFSLÁTTUR
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
14
00
22