Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2014, Side 32
1 eggaldin 2 egg, pískuð 1 stk hvítlauksrif ½ rauður chilipipar 2 msk af ferskri steinselju 2 dl af parmasanosti saltvatn hálf panna af djúp- steikingarolíu Skerið eggaldin í skífur og leggið í bleyti í saltvatn í um það bil hálftíma. Skolið það og þerrið. Skerið hvít- lauk, chilipipar og steinselju smátt og blandið pískuðum eggjum saman við. Leggið eggaldinið í blönduna, þekið með parmesanosti og djúp- steikið. Kryddið með salti og pipar. Djúpsteikt eggaldin 1 stk sellerírót 1 stk steinseljurót 2 stk fennel 1 stk sæt kartafla 2 stk rauðrófur 4 stk skalotlaukar 4 stk hvítlauksrif 1 msk þurrkað timjan 1 msk þurrkað rósmarín 2 msk rauðvínsedik 2 msk olía salt og pipar Þvoið grænmetið og flysjið. Skerið allt grænmetið í frekar grófa bita og setjið í eldfast mót. Blandið saman kryddjurtum, salti og pipar, olíu og ediki og blandið saman við grænmetið. Bakið í ofni við 180°C í um 1 klukkustund. Ofnbakað rótargrænmeti 2 bollar steinselja 4 stórir hvítlauksgeirar ¼ bolli ferskt óreganó (eða 4 tsk þurrkað) ¼ bolli rauðvínsedik ½ tsk chiliflögur ½ tsk Maldon-salt svartur pipar eftir smekk 1 bolli jómfrúarolía Blandið öllu vel saman í mat- vinnsluvél, best er að geyma sósuna í kæli í sólarhring áður en hún er borin fram en a.m.k. í 2 klst.. Hrærið í sósunni áður en hún er borin fram. Sósan geymist í um viku í kæli. Argentínsk chimichurri-sósa 1 hryggjarsneið (porterhouse-steik) á hverja tvo gesti ólífuolía eftir smekk 1 msk ferskt rósmarín 1 msk svartur pipar 1 pressað hvítlauksrif sjávarsalt eftir smekk Blandið ólífuolíu, rósmaríni, hvítlauk og svörtum pipar saman og marínerið kjötið blöndunni í nokkrar klukkustundir. Grillið kjötið í nokkrar mínútur á hvorri hlið við hæsta hita. Stingið kjötinu inn í ofn og hitið við 225°C þar til kjötmælir sýnir kjarnhitann 54°C. Þegar steikurnar koma úr ofninum eru þær saltaðar vel með sjávarsalti. Porterhouse-steik 32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.2. 2014 Matur og drykkir Meðlætisuppskriftir passa allar fyrir 4-5 Tvær öskjur portobellosveppir 1 box kastaníusveppir 1 dl tamarí sósa 2 dl sojasósa 2 msk sesamolía 1 tsk chilipipar 1 tsk hvítlaukskrydd Skerið sveppi í bita og blandið öllum hráefnum saman. Látið þá standa í tvo klukkutíma og bakið þá í ofni við 180°C í um hálftíma. Blandaðir sveppir 350 g smjör 4 eggjarauður 2 msk hvítvínsedik ½ msk sterkt sinnep karrí á hnífsoddi cayenne-pipar á hnífsoddi ¼ nautakraftskubbur ½ msk þurrkað estragon sjávarsalt og nýmalaður pipar Bræðið smjörið í potti við vægan hita. Þeytið eggjarauðurnar ásamt ediki, sinnepi, karrí og cayenne-pipar þar til blandan verður ljós og létt. Leggið pottinn á vinnuborðið og hellið smjörinu smám saman út í og hrærið vel á milli. Þegar 1/3 hluti af smjörinu er kominn í blönduna er kjötkraftskubbi og estragoni bætt við og síðan haldið áfram að bæta smjörinu smám saman við þar til það er upp- urið. Kryddið til með salti og pipar. Bernaise-sósa Döddu 1 askja konfekttómatar, smátt skornir 1 laukur, smátt skorinn 4 msk majónes 2 msk sýrður rjómi karrí eftir smekk smá chiliduft salt eftir smekk Hrærið öllu varlega saman í sósu. Stekkjarbólssósa

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.