Morgunblaðið - 22.03.2014, Blaðsíða 1
# $ %
&
'
'
"#
(
)
L A U G A R D A G U R 2 2. M A R S 2 0 1 4
Stofnað 1913 69. tölublað 102. árgangur
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
FRUMSÝNING
NÝR RENAULT MEGANE
BL ehf / Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
VELKOMIN Í KAFFI OG REYNSLUAKSTUR
ULLARPARADÍS Í
BARNA-
ÓPERU ÞURÍÐUR SYNGUR LÖGIN SÍN
KYNSLÓÐIR MÆTAST 47HANS OG GRÉTA 46
Fréttamenn á RÚV sendu þau
skilaboð að loknum fundi í Félagi
fréttamanna á fimmtudag að þeir
bæru fullt traust til
fréttastjórans Óð-
ins Jónssonar, sem
sagt hefur verið
upp störfum ásamt
öðrum fram-
kvæmdastjórum
stofnunarinnar.
Þetta er ólíkt því sem gerðist fyrir
rúmu ári, í byrjun mars 2013, en þá
gengu fulltrúar fréttamanna á fund
Óðins og greindu honum frá
óánægju félagsmanna. Snerist
óánægjan m.a. um stjórnunarhætti
hans. Fundur þessara fulltrúa með
Óðni í fyrra kom í kjölfar funda-
halda fréttamanna þar sem óánægj-
an var rædd. Niðurstaða þeirra
fundahalda var að álykta ekki en
gera Óðni sjálfum þess í stað grein
fyrir óánægjunni.
Á fundi félagsins síðastliðinn
fimmtudag voru fréttamenn beðnir
að greiða atkvæði um skilaboð til
Magnúsar Geirs Þórðarsonar um að
þeir bæru traust til fréttastjórans
með handauppréttingu. Samkvæmt
heimildum ríkti ekki einhugur með-
al fréttamanna um að lýsa skyldi yfir
svo afdráttarlausu trausti við núver-
andi fréttastjóra áður en ljóst er
hverjir sækja um stöðuna, ekki síst í
ljósi þeirrar óánægju sem ríkt hefur.
Traustsyfirlýsing var þó samþykkt
einróma á fundinum. »Sunnudagur
Ekki sátt um
traustsyfirlýsingu
Virkjanaskortur
» Við glímum ekki bara við
vatnsskort heldur einnig
virkjanaskort,“ segir Eyþór
Arnalds hjá Strokki Energy.
» Becromal á Akureyri er í há-
marksframleiðslu en getur ekki
stækkað vegna orkuskorts.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það verður að segjast að talsverð-
ur áhugi er á Íslandi þessa dagana.
Mörg þeirra verkefna sem hafa ver-
ið til skoðunar síðustu árin eru loks-
ins að nálgast ákvörðunarstig, eins
og fram hefur komið í fjölmiðlum.
Það ánægjulega er síðan að einnig
eru að bætast við ný verkefni til at-
hugunar, en oft tekur þetta ferli þar
til ákvörðun liggur fyrir minnst eitt
eða tvö ár,“ segir Þórður H. Hilm-
arsson, forstöðumaður fjárfestinga-
sviðs Íslandsstofu, við Morgunblað-
ið en fyrirhuguð verkefni í orku- og
mannfrekum iðnaði hér á landi
skipta tugum. Verkefnin eru mis-
langt á veg komin en sem dæmi má
nefna áform um þrjú kísilver, eitt
sólarkísilver, kapalverksmiðjur,
vatnsverksmiðjur, kalkþörunga-
verksmiðju, tómatagróðurhús, slípi-
efnaverksmiðju og líftækniverk-
smiðju. Þá fyrirhuga gagnaverin
Verne og Advania-Thor töluverða
stækkun.
Íslandsstofa hefur aðstoðað orku-
fyrirtæki og sveitarfélög við að
kynna fjárfestum hugmyndir um
t.d. gagnaver og koltrefjaverk-
smiðjur. Þórður segir vaxandi
áhuga á ný á gagnaverum, sér í lagi
í Evrópu, og horfur séu einnig að
verða mjög jákvæðar í framleiðslu
koltrefja.
MFjöldi stórverkefna » 14
Aukinn áhugi fjárfesta
Tugir verkefna í orkufrekum iðnaði á teikniborðinu Áform um fjögur kísilver
Gagnaverin ráðgera stækkun og aukinn áhugi í Evrópu á fleiri gagnaverum
Morgunblaðið/Kristinn
Mikið efni Ingólfur Sigurðsson
leikur nú með Þrótti í Reykjavík.
Ingólfur Sigurðsson knattspyrnu-
maður var aðeins fimmtán ára þegar
hann greindist með geðsjúkdóm,
kvíðaröskun. Hann var þá á mála hjá
hollenska félaginu Heerenveen en
þurfti fljótlega að snúa heim vegna
veikinda sinna. Í tvö önnur skipti
reyndi hann sig í atvinnumennsku í
greininni en það fór á sama veg.
Lengi vel hélt Ingólfur veikindum
sínum leyndum, meðal annars af ótta
við viðbrögð knattspyrnusamfélags-
ins, en stígur nú fram og segir sína
sögu í ítarlegu samtali í Sunnudags-
blaði Morgunblaðsins.
„Knattspyrna er í eðli sínu karl-
lægt sport. Þeir sterkustu lifa af,“
segir Ingólfur. „Með því að ljóstra
því upp að ég sé haldinn geðsjúk-
dómi þykir örugglega einhverjum ég
vera að gefa höggstað á mér. Það
staðfestir meira en allt annað að þörf
er á þessari umræðu. Knattspyrnu-
samfélagið hefur alltof mikla til-
hneigingu til að steypa alla í sama
mót. Leikmenn eiga bara að bíta á
jaxlinn, sama hvað bjátar á, og fara
áfram á hnefanum. Auðvitað hentar
það sumum – en öðrum ekki. Knatt-
spyrnumenn eru misjafnir.“
Glímir við kvíðaröskun
Vill opna umræðuna um geðsjúkdóma hjá íþróttafólki
TF-SYN, þyrla Landhelgisgæslunnar, kom til
landsins í gær en hún hefur verið í ítarlegri skoð-
un í Noregi undanfarið. Þar var settur í þyrluna
nætursjónaukabúnaður en hún var einnig máluð í
áberandi appelsínugulum lit. Til stendur að allar
þyrlur Gæslunnar beri þann lit í framtíðinni. Eftir
sem áður verða hins vegar aðeins tvær björg-
unarþyrlur í landinu því að TF-GNA heldur utan
til annarra verkefna og skoðunar nú um helgina.
Syn komin heim litsterk eftir andlitslyftingu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar snýr heim eftir skoðun
Brynja Hall-
dórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri
Norvikur, gagn-
rýnir Samkeppn-
iseftirlitið í við-
tali við Sunnu-
dagsblað Morg-
unblaðsins. Hún
segir Samkeppn-
iseftirlitið vera
„með bægsla-
gang og húsleitir sem skila engum
niðurstöðum fyrr en mörgum árum
síðar og skapa fyrirtækjum stór-
felld vandræði, oft undarlegri nið-
urstöðu og síðast en ekki síst, valda
stórfelldum kostnaði“.
Bægslagangur hjá
Samkeppniseftirliti
Brynja
Halldórsdóttir