Morgunblaðið - 22.03.2014, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 22.03.2014, Blaðsíða 48
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Reglubundið eru gefnar útplötur sem falla rækilega ámilli þilja; virðast gufa upp nánast á því andartaki sem þeim er komið fyrir í hillunni. Margar þeirra hverfa réttilega sjónum en í sumum tilfellum er það beinlínis grátlegt að þær skuli ekki hafa fengið sitt tæki- færi ef orða má það sem svo. Slíkt á svo sannarlega við um plötu Lindu Perhacs frá 1970, Parallelograms, en hún inniheldur dásamlega dreymna og léttsýrða söngvaskáldatónlist, líkt og Joni Mitchell sé að leika á gígjur sínar úr handanheimum. Fór svo að lokum að platan fékk uppreisn æru og var hún endurútgefin árið 1998 hjá The Wild Places sem sérhæfir sig í að grafa upp gripi sem eiga fleiri eyru skilið. Snilld Perhacs hefur svo verið básúnuð af samtímalistamönn- um á borð við Mikael Åkerfeldt (úr tilraunakenndu öfgarokkssveitinni Opeth), Juliu Holter, Joönnu New- som og Devandra Banhart en tvö þau síðastnefndu hafa verið tengd við skríti-þjóðlagastefnuna svokölluðu eða „freak-folk“, en hún dró m.a. mikil áhrif frá þessari einu plötu. Tannfræði Saga Perhacs er áhugaverð. Hún vann sem tannfræðingur í Kali- forníu og einn viðskiptavinanna var tónskáldið Leonard Rosenman. Hann komst á snoðir um að Perhacs væri að semja lög og varð það hrifinn að hann reddaði henni samningi við Kapp, undirmerki Universal, á þeim tíma. Rosenman sá um upp- tökustjórn og allan frágang en hvor- ugt varð svo ánægt með loka- afurðina. Perhacs lét sig hverfa í kjölfarið, líkt og platan, og sinnti dagvinnunni (en hélt samt áfram að semja). Endurútgáfan á Parallelograms dýpkaði síðan mikið á orðspori Per- hacs en eigandi The Wild Places Sýrðir samsíðungar Lifi ljósið Linda Perhacs hefur nú gefið út tvær breiðskífur – á 44 árum! hafði loksins uppi á henni eftir fyrstu útgáfulotuna (platan hefur verið gef- in út margsinnis aftur eftir það) en þá var hún enn búsett í Kaliforníu og enn í sama starfi. Aðdáendur reyndu að virkja hana til góðra starfa, De- vandra Banhart fékk hana t.d. til að syngja inn á plötu sína, Smokey Rolls Down Thunder Canyon (2007) og hún hóf að spila á tónleikum árið 2010. Julia Holter (plata hennar, Lo- ud City Song, var valin plata ársins af Wire í fyrra) aðstoðaði hana m.a. á sviði og segist undir miklum áhrif- um. Holter er frá Kaliforníu eins og átrúnaðargoðið og kemur einnig fram á nýju hljóðversplötunni. Verður að skapa Sú plata er gefin út af Asthma- tic Kitty Records sem stýrt er af Sufjan Stevens, enn einn samtíma- „hipsterinn“ sem dáleiddur er af tón- um Perhacs. Platan kallast The Soul of All Natural Things og það er síst farið leynt með nýaldartaktana eins og sjá má í lagatitlum eins og „River of God“ og „Song of the Planets“. Tónlistarlega er höggvið í sama kné- runn og áður, áferðin um margt nú- tímalegri en kjarninn í sköpun Per- hacs er enn sá sami. Perhacs starfar enn sem tann- fræðingur og segir starfið ganga vel með tónlistinni. „Þegar maður hefur unnið svona lengi að heilsu annarra verður þú eins konar líknari,“ segir hún í spjalli við Pitchfork-síðuna. „Þú ert að gefa af þér, vinnur með kærleika og allt slíkt skilar sér inn í tónlistina. Þetta er fullkomin blanda. Og ég gæti ekki hugsað mér að sinna bara öðru; þetta bætir hvort annað upp.“ Hún fer þá þá fögrum orðum um samstarf sitt við yngri listamenn, segist hafa fundið svipaðar sálir þar. „Julia og De- vandra eru í þessu á réttum for- sendum. Þau eru ekki að búa til tón- list peninganna vegna. Þau eru að skapa tónlist af því að þau eru þann- ig fólk, geta ekki annað í raun, og ég tengi vel við það.“ »… inniheldurdásamlega dreymna og léttsýrða söngva- skáldatónlist, líkt og Joni Mitchell sé að leika á gígjur sínar úr handanheimum.  Ný plata frá Lindu Perhacs er komin út  Fylgir hinni „hópdýrkuðu“ Parallelograms eftir, 44 árum síðar 48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014 STOFNAÐ1987 einstakt eitthvað alveg Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s M ál ve rk : Si g u rb jö rn Jó n ss o n Good Moon Deer heldur tónleika í menningarhúsinu Mengi í kvöld kl. 21. Good Moon Deer er tónlistarsjálf grafíska hönnuðarins Guðmundar Inga Úlfarssonar sem hófst með „smávægilegu svefnherbergisgutli“, eins og segir í tilkynningu. Guðmundur fékk trommu- leikarann Ívar Pétur Kjartansson til liðs við sig og úr varð dúettinn Good Moon Deer og hefur tónlist tvíeyk- isins verið lýst sem djassi fyrir stafræna öld. Á tónleikum Good Moon Deer má búast við „framúr- stefnulegum og geðklofnum smölunarbútum í bland við þunga trommutakta og margvíslegar lifandi sjón- rænar skreytingar“, eins og því er lýst í tilkynningu. Mengi er á Óðinsgötu 2 í Reykjavík. Good Moon Deer leikur í Mengi Guðmundur Ingi Úlfarsson Heiðríkja og haustvindar nefnast kammertónleikar tónlistarhópsins Elektra Ensemble sem haldnir verða á Kjarvalsstöðum annað kvöld kl. 20. Flutt verða kammerverk fyrir flautu, klarínett og strengi eftir Haydn, Boccherini og Brahms. Flytjendur eru Emilía Rós Sigfúsdóttir flautu- leikari, Helga Björg Arnardóttir klarínettuleikari, Helga Þóra Björg- vinsdóttir fiðluleikari, Margrét Árnadóttir sellóleikari, Una Svein- bjarnardóttir fiðluleikari og Þór- arinn Már Baldursson víóluleikari. Kammerkvöld Elektra Ensemble heldur tónleika á Kjarvalsstöðum. Heiðríkja og haustvindar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.