Morgunblaðið - 22.03.2014, Síða 48
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Reglubundið eru gefnar útplötur sem falla rækilega ámilli þilja; virðast gufa upp
nánast á því andartaki sem þeim er
komið fyrir í hillunni. Margar þeirra
hverfa réttilega sjónum en í sumum
tilfellum er það beinlínis grátlegt að
þær skuli ekki hafa fengið sitt tæki-
færi ef orða má það sem svo. Slíkt á
svo sannarlega við um plötu Lindu
Perhacs frá 1970, Parallelograms, en
hún inniheldur dásamlega dreymna
og léttsýrða söngvaskáldatónlist, líkt
og Joni Mitchell sé að leika á gígjur
sínar úr handanheimum. Fór svo að
lokum að platan fékk uppreisn æru
og var hún endurútgefin árið 1998
hjá The Wild Places sem sérhæfir sig
í að grafa upp gripi sem eiga fleiri
eyru skilið. Snilld Perhacs hefur svo
verið básúnuð af samtímalistamönn-
um á borð við Mikael Åkerfeldt (úr
tilraunakenndu öfgarokkssveitinni
Opeth), Juliu Holter, Joönnu New-
som og Devandra Banhart en tvö þau
síðastnefndu hafa verið tengd við
skríti-þjóðlagastefnuna svokölluðu
eða „freak-folk“, en hún dró m.a.
mikil áhrif frá þessari einu plötu.
Tannfræði
Saga Perhacs er áhugaverð.
Hún vann sem tannfræðingur í Kali-
forníu og einn viðskiptavinanna var
tónskáldið Leonard Rosenman. Hann
komst á snoðir um að Perhacs væri
að semja lög og varð það hrifinn að
hann reddaði henni samningi við
Kapp, undirmerki Universal, á þeim
tíma. Rosenman sá um upp-
tökustjórn og allan frágang en hvor-
ugt varð svo ánægt með loka-
afurðina. Perhacs lét sig hverfa í
kjölfarið, líkt og platan, og sinnti
dagvinnunni (en hélt samt áfram að
semja).
Endurútgáfan á Parallelograms
dýpkaði síðan mikið á orðspori Per-
hacs en eigandi The Wild Places
Sýrðir samsíðungar
Lifi ljósið Linda Perhacs hefur nú gefið út tvær breiðskífur – á 44 árum!
hafði loksins uppi á henni eftir fyrstu
útgáfulotuna (platan hefur verið gef-
in út margsinnis aftur eftir það) en
þá var hún enn búsett í Kaliforníu og
enn í sama starfi. Aðdáendur reyndu
að virkja hana til góðra starfa, De-
vandra Banhart fékk hana t.d. til að
syngja inn á plötu sína, Smokey Rolls
Down Thunder Canyon (2007) og
hún hóf að spila á tónleikum árið
2010. Julia Holter (plata hennar, Lo-
ud City Song, var valin plata ársins
af Wire í fyrra) aðstoðaði hana m.a. á
sviði og segist undir miklum áhrif-
um. Holter er frá Kaliforníu eins og
átrúnaðargoðið og kemur einnig
fram á nýju hljóðversplötunni.
Verður að skapa
Sú plata er gefin út af Asthma-
tic Kitty Records sem stýrt er af
Sufjan Stevens, enn einn samtíma-
„hipsterinn“ sem dáleiddur er af tón-
um Perhacs. Platan kallast The Soul
of All Natural Things og það er síst
farið leynt með nýaldartaktana eins
og sjá má í lagatitlum eins og „River
of God“ og „Song of the Planets“.
Tónlistarlega er höggvið í sama kné-
runn og áður, áferðin um margt nú-
tímalegri en kjarninn í sköpun Per-
hacs er enn sá sami.
Perhacs starfar enn sem tann-
fræðingur og segir starfið ganga vel
með tónlistinni. „Þegar maður hefur
unnið svona lengi að heilsu annarra
verður þú eins konar líknari,“ segir
hún í spjalli við Pitchfork-síðuna.
„Þú ert að gefa af þér, vinnur með
kærleika og allt slíkt skilar sér inn í
tónlistina. Þetta er fullkomin
blanda. Og ég gæti ekki hugsað mér
að sinna bara öðru; þetta bætir
hvort annað upp.“ Hún fer þá þá
fögrum orðum um samstarf sitt við
yngri listamenn, segist hafa fundið
svipaðar sálir þar. „Julia og De-
vandra eru í þessu á réttum for-
sendum. Þau eru ekki að búa til tón-
list peninganna vegna. Þau eru að
skapa tónlist af því að þau eru þann-
ig fólk, geta ekki annað í raun, og ég
tengi vel við það.“
»… inniheldurdásamlega dreymna
og léttsýrða söngva-
skáldatónlist, líkt og
Joni Mitchell sé að
leika á gígjur sínar
úr handanheimum.
Ný plata frá Lindu Perhacs er komin út Fylgir hinni
„hópdýrkuðu“ Parallelograms eftir, 44 árum síðar
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
STOFNAÐ1987
einstakt
eitthvað alveg
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n S k i p h o l t 5 0 a | S í m i 5 8 1 4 0 2 0 | w w w . g a l l e r i l i s t . i s
M
ál
ve
rk
:
Si
g
u
rb
jö
rn
Jó
n
ss
o
n
Good Moon Deer heldur tónleika í menningarhúsinu
Mengi í kvöld kl. 21. Good Moon Deer er tónlistarsjálf
grafíska hönnuðarins Guðmundar Inga Úlfarssonar
sem hófst með „smávægilegu svefnherbergisgutli“,
eins og segir í tilkynningu. Guðmundur fékk trommu-
leikarann Ívar Pétur Kjartansson til liðs við sig og úr
varð dúettinn Good Moon Deer og hefur tónlist tvíeyk-
isins verið lýst sem djassi fyrir stafræna öld.
Á tónleikum Good Moon Deer má búast við „framúr-
stefnulegum og geðklofnum smölunarbútum í bland
við þunga trommutakta og margvíslegar lifandi sjón-
rænar skreytingar“, eins og því er lýst í tilkynningu.
Mengi er á Óðinsgötu 2 í Reykjavík.
Good Moon Deer leikur í Mengi
Guðmundur Ingi
Úlfarsson
Heiðríkja og haustvindar nefnast
kammertónleikar tónlistarhópsins
Elektra Ensemble sem haldnir verða
á Kjarvalsstöðum annað kvöld kl. 20.
Flutt verða kammerverk fyrir flautu,
klarínett og strengi eftir Haydn,
Boccherini og Brahms. Flytjendur
eru Emilía Rós Sigfúsdóttir flautu-
leikari, Helga Björg Arnardóttir
klarínettuleikari, Helga Þóra Björg-
vinsdóttir fiðluleikari, Margrét
Árnadóttir sellóleikari, Una Svein-
bjarnardóttir fiðluleikari og Þór-
arinn Már Baldursson víóluleikari. Kammerkvöld Elektra Ensemble heldur tónleika á Kjarvalsstöðum.
Heiðríkja og
haustvindar