Morgunblaðið - 22.03.2014, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
FRUMSÝNING
NÝR RENAULT MEGANE
RENAULT MEGANE
DÍSIL, SJÁLFSKIPTUR. VERÐ 3.590.000 KR.
Renault Megane hefur slegið í gegn sem einn sparneytnasti bíll landsins. Nýr Megane er ekki síðri sparibaukur því beinskiptur Megane með start/stopp búnaði notar aðeins
3,5 l/100 km og sjálfskiptur 4,2 l/100 km*. Þú getur því keyrt ríflega 1.700 km á einum tanki á þessum framúrskarandi sparneytna bíl og CO2 útblástur er einungis frá 90 g/km.
ÞÚ TANKAR SJALDNAR Á RENAULT
RÍFLEGA HRINGINN Á EINUM TANKI!
BL ehf / Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar, Reykjanesbæ, 420 0400 – Bílasalan Bílás, Akranesi, 431 2622 – Bílasala Akureyrar, Akureyri, 461 2533 – Bílaverkst. Austurlands, Egilsst., 470 5070 – IB ehf., Selfossi, 480 8080
L/
10
0
KM3,5
M.V. BLANDAÐAN AKSTUR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
19
6
8
/
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
rt
öl
ur
fra
m
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri
/A
uk
ab
ún
að
ur
á
bí
lu
m
17
Ӈ
lfe
lg
ur
.
Páll Sævar Guðjónsson, annar frá vinstri, bar sigur úr
býtum í keppninni Mottumars í ár en hann safnaði alls
1.069.000 krónum í ár. Þetta er annað árið í röð sem
Páll Sævar safnar yfir milljón krónum í söfnuninni,
sem er átaksverkefni Krabbameinsfélags Íslands vegna
krabbameins karla, en hann lenti í öðru sæti í fyrra.
Í öðru sæti lenti Vilhjálmur Einarsson, annar frá
hægri, og í því fjórða var Kristján Björn Tryggvason,
lengst til vinstri. Pétur Jakob Pétursson lenti í þriðja
sæti en hann var ekki viðstaddur verðlaunaathöfnina í
Hörpu í gær.
Sérstök verðlaun fyrir fallegustu mottu keppninnar í
ár hlaut Guðni Hannesson, lengst til hægri, sem þótti
skarta sérlega vígalegu yfirvararskeggi.
Verðlaun fyrir Mottumars voru veitt í Hörpu í gærkvöldi
Morgunblaðið/Eggert
Hefur safnað yfir milljón tvö ár í röð
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ragnar Birgisson var í gær kjörinn
formaður Sambands íslenskra spari-
sjóða (SÍSP) en mótframbjóðandi
hans var Ari Teitsson, fráfarandi
formaður. Fer Ari úr stjórn SÍSP en
verður áfram stjórnarformaður
Sparisjóðs Suður-Þingeyinga.
Aðalfundur samtakanna fór fram í
Reykjavík og hafði hver fulltrúi
sparisjóðanna átta atkvæðisrétt. At-
kvæðavægið fer hins vegar eftir
efnahagsreikningi sparisjóðanna. Þá
höfðu stjórnarmenn og starfsmenn
sparisjóðanna seturétt á fundinum.
Um 20 fulltrúar sparisjóðanna
sátu fundinn og segir Ari að margir
hafi ekki átt heimangengt vegna
ófærðar á Norður- og Austurlandi.
Hann telji þó að sínir stuðningsmenn
hafi mætt og stutt hann í kjörinu.
Fóru atkvæði þannig að Ragnar fékk
76% atkvæða en Ari 24%.
Haldi áfram að hagræða
Ragnar er stjórnarformaður
Sparisjóðs Bolungarvíkur en hann
hefur verið í stjórn SÍSP í tvö ár.
Spurður hvað hann muni leggja
áherslu á sem formaður nefnir
Ragnar framtíðarsýn SÍSP.
„Við höfum rætt það innan okkar
raða að halda þurfi áfram á braut
hagræðingar og sameina sparisjóði,
að stækka einingarnar. Það er verið
að skoða sameiningu þeirra spari-
sjóða sem Bankasýsla ríkisins fer
með meirihluta í.
Þá er í athugun hvort opna eigi
útibú eða stofna sparisjóð í Reykja-
vík. Þar eru sóknarfæri. Þar er vöxt-
urinn. Sparisjóðirnir hafa engan
sýnileika á höfuðborgarsvæðinu. Frá
Hólmavík og suður að Vestmanna-
eyjum, þar sem eru sparisjóðir, er
enginn sparisjóður á Vesturlandi og
Suðurlandi, nema á Selfossi.“
Ragnar bendir á að árið 2012 hafi
verið tekin stefnumótandi ákvörðun
hjá sparisjóðunum um að þeir þurftu
að sameinast í þrjá til fimm, svæðis-
bundið. „Síðan hefur átt sér stað ein
sameining, með sameiningu Spari-
sjóðs Svarfdæla og Sparisjóðs Þórs-
hafnar í Sparisjóð Norðurlands. Frá
því að ákvörðunin um að sameina
þyrfti sparisjóði var tekin eru liðin
tvö ár og sparisjóðirnir eru átta.
Planið var að sameina þá í þrjá til
fimm. Það er markmiðið. Þannig
næst fram hagræðing með stærri
einingum með meiri útlánagetu og
arðsemi,“ segir Ragnar Birgisson.
Bankasýslan fer meðal annars
með meirihluta í Sparisjóði Bolung-
arvíkur og Sparisjóði Norðurlands.
Ragnar er nýr
formaður SÍSP
Boðar opnun sparisjóðs í Reykjavík
Ragnar
Birgisson
Ari
Teitsson