Morgunblaðið - 22.03.2014, Blaðsíða 3
FRÉTTIR 3Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
RENAULT MEGANE SPORT TOURER
DÍSIL, SJÁLFSKIPTUR. VERÐ 3.890.000 KR.
Staðalbúnaður: 16" álfelgur, Bluetooth handfrjáls símabúnaður, tölvustýrð miðstöð með
loftkælingu, hraðastillir, hiti í framsætum, leðurklætt aðgerðastýri, útvarp og geislaspilari
með USB og AUX tengi, rafdrifnar rúður og speglar.
Velkomin í kaffi og reynsluakstur
OPIÐ Í DAG FRÁ 12–16
www.renault.is
Helgi Bjarnason
Baldur Arnarson
Landflutningar hafa víða farið úr
skorðum vegna ófærðar og féllu
ferðir tugi flutningabifreiða niður.
Að sögn Ólafs William Hand, upp-
lýsingafulltrúa Eimskips, sem rekur
flutningafyrirtækið Flytjanda, kom-
ust um 15 stórar flutningabifreiðar
ekki yfir Öxnadalsheiði í gær og í
fyrradag. Flutningabifreiðir kæm-
ust ekki með fisk suður en þær sem
væru fyrir sunnan ekki með neyt-
endavörur norður. Ástandið hefði
ekki verið jafn slæmt á Austurlandi.
Fiskur sé sóttur sjóleiðina á Reyð-
arfjörð og fluttur á markað.
Ingi Þór Hermannsson, forstöðu-
maður Landflutninga hjá Samskip,
sagði allt „kolófært á Vestfjörðum“.
„Við felldum því niður allar ferðir
á Vestfirði í kvöld [í gærkvöldi].
Tveir bílar áttu að fara vestur en
fóru ekki. Fjórir fóru norður og bíða
færis á Blönduósi. Aðrir sex bílar
áttu að fara norður en fóru ekki. Alls
bíða 12 bílar því færis. Öxnadalsheið-
in hefur verið erfið í allan vetur, en
alveg sérstaklega síðasta sólar-
hring,“ sagði Ingi Þór í gær.
Fyrirtækið hefði lent í hremming-
um á Austurlandi í vetur, m.a. vegna
hálku, en áætlun haldið síðustu daga.
Nóg er í kælunum á Akureyri
Jón Ævar Sveinbjörnsson, versl-
unarstjóri Bónuss á Akureyri, sagði
ófærðina ekki haft mikil áhrif.
„Einu áhrifin eru þau að utanbæj-
arfólk hefur ekki komist til okkar.
Það er aðeins farið að ganga á græn-
metið, enda fengum við ekki vörur í
dag [í gær]. Annað er í lagi. Við höf-
um Mjólkursamlagið hér á Akureyri
og höfum því nóg í kælunum.“
Þær upplýsingar fengust hjá
Vegagerðinni að ef veður leyfi verði
byrjað snemma að moka Öxnadals-
heiði í dag. Vonir standi til að færð á
heiðinni verði orðin góð um hádegið.
Um það sé þó mjög erfitt að spá.
Mikil ófærð er á Norðausturlandi,
á Fjarðaheiði, Vopnafjarðarheiði og
Mývatns- og Möðrudalsöræfum.
Sömu sögu er að segja af Vest-
fjörðum. Þar eru vegir víða ófærir.
Fór veðurútlit þar batnandi í gær en
spáð var leiðeindaveðri fyrir austan í
dag. Taldi Veðurstofan óvíst hvort
veður leyfði mokstur austan Möðru-
dalsöræfa og á Austurfjörðum í dag.
Hálka og lélegt skyggni var á Hellis-
heiði í gær en heiðin var þó ekki
ófær. Fór veðurútlit þar batnandi.
Ófærð setur landflutninga úr skorðum
Tugir stórra flutningabifreiða hafa ekki komist yfir Öxnadalsheiðina Mikil ófærð er á Vestfjörðum
Fiskur kemst ekki suður og vörur ekki norður Útlit er fyrir erfiða færð víða á Austurlandi í dag
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Snjómokstur Vegagerðin hafði í nógu að snúast í Oddsskarði í gær.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fannfergi Akureyri er í vetrarbúningi þessa dagana. Ófærð hefur haft lítil áhrif á vöruframboð í verslunum þar.
Vegagerðin lagði 450 milljónir í
snjómokstur fyrstu tvo mánuði
ársins 2013 og þótti mikið, eins
og Björn Ólafsson, forstöðu-
maður þjónustudeildar, getur
um. Kostnaðurinn á sama tíma í
ár varð 600 milljónir og er
aukningin því 150 milljónir. Mik-
ill kostnaður hefur verið við
snjómokstur í þessum mánuði
austanlands og fyrir norðan en
sá kostnaður hefur ekki verið
tekinn saman.
Allt aðra sögu er að segja hjá
Reykjavíkurborg. Kostnaður við
vetrarþjónustu frá september
til dagsins í dag er orðinn 366
milljónir kr., samkvæmt upplýs-
ingum upplýsingafulltrúa. Ef
Vetur konungur sýnir klærnar
ekki þeim mun meira á útmán-
uðum virðist ljóst að kostnaður-
inn verði töluvert undir því sem
vetrarþjónustan kostaði á síð-
asta vetri, hvað þá veturinn þar
á undan. Í fyrra fór kostnaður-
inn í tæpar 500 milljónir og
rúmar 640 veturinn þar á und-
an. Hins vegar var veturinn
2010 til 2011 ódýr fyrir borgina,
þá kostaði vetrarþjónustan 336
milljónir kr. helgi@mbl.is
Mun meira fé
í moksturinn
ÁHRIFIN Á VEGAGERÐINA