Morgunblaðið - 22.03.2014, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
FLUGFARÞEGAR FÁ VSK
AFÖLLUMGLERAUGUM
SÍMI 527 1515 GÖNGUGÖTU
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Búist er við fjölda ferðamanna til
Færeyja eftir rétt ár, en almyrkvi á
sólu, sem verður 20. mars 2015,
mun hvergi sjást af landi nema það-
an og frá Svalbarða. Að því er fram
kemur á vefmiðlum eru flest hótel í
Þórshöfn og í nærliggjandi byggð-
um nú fullbókuð vegna þessa. Fær-
eyska flugfélagið Atlantic Airways
ætlar að setja upp sérstakar sól-
myrkvaferðir til Færeyja, meðal
annars frá London. Þá verða marg-
víslegir menningarviðburðir í Fær-
eyjum í tengslum við þetta náttúru-
fyrirbæri.
97% sólar hverfa í Reykjavík
Sólmyrkvinn verður mestur kl.
9:45. Í Reykjavík verður deildar-
myrkvi, það er að 97% sólar hverfa
fyrir tungl og ætla má að það verði
tilkomumikið að sjá. Að sögn Einars
Bárðarsonar, forstöðumanns Höfuð-
borgarstofu, fylgist fólk í ferðaþjón-
ustu með málinu. Er til að mynda
áformað að sérstakra sólmyrkva-
ferða til Íslands verði getið í mark-
aðskynningum Reykjavíkur fyrir
næsta vetur.
„Þetta náttúruundur getur
skapað möguleika. Marsmánuður er
í sókn í ferðaþjónustunni þó hann sé
utan háannarinnar og þarna kemur
innspýting. Sólmyrkvi hefur mikið
aðdráttarafl því fólk eltir svona
fyrirbæri heimsálfa á milli,“ segir
Einar.
Bandarískir aðilar lögðu á dög-
unum inn pöntun hjá Flugfélagi Ís-
lands um leigu á þremur Fokker-
flugvélum í sólmyrkvaflug. Er ætl-
unin sú að vera á sveimi suður af
Færeyjum og við bestu möguleg
skilyrði þegar sólmyrkvinn gengur
yfir.
Í hámarki kl. 9:37
Að sögn Gunnlaugs Björns-
sonar hjá Raunvísindastofnun HÍ
hefst myrkvinn í Reykjavík kl. 8:38
og verður í hámarki þar kl. 9:37.
Eftir það fer sólin að birtast aftur
og er myrkvinn afstaðinn kl. 10:39.
Á Íslandi sást almyrkvi á sólu
síðast 30. júní 1954. Veðurskilyrði
voru þá hagstæð, þannig að margir
gátu fylgst með myrkvanum sem
sást einna best í Vík í Mýrdal. Þar
tók Ólafur K. Magnússon ljósmynd-
ari Morgunblaðsins einstakar
myndir sem oft hafa birst. Einnig
var almyrkt í Færeyjum og í
Sumba, litlu þorpi á Suðurey, sem
er syðst Færeyja, minnist fólk þess
að þegar sólin hvarf á björtum degi
hafi kindur lagst út af og hænur far-
ið í hús og lagst í hreiður.
Sólmyrkvi á næsta
ári hefur aðdráttarafl
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Sólmyrkvi Á Íslandi varð almyrkvi á sólu síðast 30. júní 1954. Margir fylgdst með myrkvanum í Vík í Mýrdal.
Elta fyrirbærið heimsálfa á milli Flogið yfir Færeyjar
Himintungl
» Ferill sólmyrkvans 20.
mars 2015 liggur sunnan og
austan við Ísland og fer yfir
Færeyjar og Svalbarða. Hér á
landi verður deildarmyrkvi sem
hylur tungl 97% af þvermáli
sólar.
» Almyrkvi verður á sólu 12.
ágúst 2026. Ferill skuggans,
sem er tæplega 300 km á
breidd, liggur yfir Ísland
vestanvert. Í Reykjavík mun al-
myrkvinn standa í 1:10 mín.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis-
ráðherra staðfesti á fimmtudaginn
þvingunaraðgerðir gegn rússneskum
og úkraínskum einstaklingum sem
tengjast aðgerðum Rússa á Krím-
skaga. Fram kemur í tilkynningu frá
utanríkisráðuneytinu að ráðherrann
fordæmi innlimun Rússlands á Krím
og ítreki fyrri yfirlýsingar sínar um
ólögmæti atkvæðagreiðslunnar sem
fór fram 16. mars um að Krímskagi
skyldi verða hluti af Rússlandi.
Í svari við fyrirspurn Morgun-
blaðsins til utanríkisráðuneytisins
kemur fram að þvingunaraðgerðirnar
felist í ferðabanni annars vegar og
frystingu eigna hins vegar. Ein-
staklingarnir sem um ræðir eru 21,
bæði Rússar og Úkraínumenn. Með-
an annarra eru þetta Sergey Aksyo-
nov, Deniz Berezovskiy & Sergei
Zheleznyak. Aðilarnir sem um ræðir
eru tilgreindir í þvingunaraðgerðum
ESB og eru Íslendingar þátttak-
endur í þeim. Gunnar Bragi sagði í
símaviðtali frá Úkraínu í gærkvöldi
að hann vissi ekki til þess að nokkur
ofangreindra einstaklinga hafi umsvif
á Íslandi eða tengsl við landið.
vidar@mbl.is
Þvingunaraðgerðum
beitt gegn einstaklingum
Gunnar Bragi Sveinsson Utan-
ríkisráðherra dvelur nú í Úkraínu.
Ferðabann og
frysting eigna
Þvingunaraðgerðir
» Íslendingar hafa hafið þving-
unaraðgerðir gegn rússneskum
og úkraínskum einstaklingum.
» Gunnar Bragi Sveinsson,
utanríkisráðherra fór til Úkraínu
til að kynna sér stöðu mála.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Við ætlum að hitta utanríkis-
ráðherra Úkraínu, Andrii Deshchyt-
sia. Við ætlum að hitta þingmenn og
fulltrúa hinna ýmsu frjálsu félaga-
samtaka. Þá munum við heimsækja
skrifstofu Eftirlits- og öryggisstofn-
unar Evrópu,“ sagði Gunnar Bragi
Sveinsson utanríkisráðherra í síma-
viðtali frá Kænugarði í gærkvöldi en
hann var þá nýlentur í borginni.
Ráðherrann er í opinberri heim-
sókn sem lýkur á morgun, sunnu-
dag, og segir hann dagskrána þétt-
bókaða, tíminn verði nýttur vel.
„Við munum að sjálfsögðu koma á
framfæri okkar stuðningi við úkra-
ínsku þjóðina og mótmæla því sem
Rússar eru að gera á Krímskaga.
Meginmarkmið ferðarinnar er að
sjálfsögðu að sýna stuðning við
úkraínsku þjóðina.“
Mannréttindi séu í heiðri höfð
Gunnar Bragi segir íslensk stjórn-
völd reiðubúin til aðstoðar.
„Við munum einnig ræða við úkra-
ínska utanríkisráðherrann um það
að nú verða stjórnvöld að tryggja
mannréttindi minnihlutahópa, að
sýna fram á að það eigi að verða
breyting þar á í landinu. Við munum
líka að sjálfsögðu koma því á fram-
færi að Íslendingar eru reiðubúnir
að aðstoða við uppbyggingu landsins
eftir megni.“
– Hvernig geta íslensk stjórnvöld
lagt lóð á vogarskálarnar?
„Við getum lagt lóð á vogarskál-
arnar þegar kemur að því að tala
fyrir og styðja aðgerðir alþjóðlegra
stofnana. Við getum lagt lóð á vogar-
skálarnar með því að miðla af
reynslu okkar af því að endurreisa
land. Við getum mögulega komið
okkar sérfræðingum á framfæri
hvað varðar innviði samfélagsins og
svo framvegis,“ segir Gunnar Bragi
og svarar því aðspurður til að engar
ákvarðanir hafi verið teknar um
beina aðstoð Íslendinga að öðru
leyti.
„Það er síðari tíma mál. Við mun-
um fylgjast grannt með því hvað
önnur ríki munu gera varðandi
þvingunaraðgerðir og annað slíkt.
Við höfum jafnframt hvatt Rússa til
að láta hlutina ekki stigmagnast. Við
erum að sjálfsögðu alltaf reiðubúin
til viðræðna og ef við getum á ein-
hvern hátt miðlað málum erum við
að sjálfsögðu alltaf tilbúin til þess.“
Spurður hvort málið geti haft
frekari afleiðingar fyrir samskipti
Íslands og Rússlands segir Gunnar
Bragi að í 70 ára stjórnmála-
sambandi landanna hafi alltaf komið
upp mál sem séu ekki góð fyrir sam-
band ríkjanna. „Það er of snemmt að
segja til um það. Ég vona að sjálf-
sögðu að þetta hafi ekki langvarandi
áhrif. Við höfum átt mjög gott sam-
starf við Rússa. Við getum hins veg-
ar ekki horft fram hjá því þegar þeir
gera ólöglega hluti að okkar mati.“
Fundar með
ráðamönnum
í Úkraínu
Gunnar Bragi í opinberri heimsókn
Ísland geti mögulega miðlað málum
AFP
Spenna Úkraínskir landamæra-
verðir standa vaktina í gær.
Fimma manna hópur
» Gunnar Bragi Sveinsson fer
fyrir fimm manna hópi frá
utanríkisráðuneytinu.
» Með honum í för eru Sunna
Marteinsdóttir, aðstoðarmaður
ráðherrans, Urður Gunnars-
dóttir, upplýsingafulltrúi ráðu-
neytisins, og tveir starfsmenn
á alþjóða- og öryggisskrifstofu
ráðuneytisins.