Morgunblaðið - 22.03.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Ferð til þessa fornfræga menningarríkis, spannar
óteljandi möguleika til að sjá og sinna því sem
hugurinn girnist. Víða má sjá fornar borgir, alda og
árþúsunda gamla garða og söfn, minjar frá ýmsum
menningarskeiðum, iðandi nútímaborgir og svo er það
ilmurinn frá víðfrægri, japanskri matargerðarlist.
Verð: 689.800 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
9. - 20. október
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sp
ör
eh
f.
Japan- ríki sólarinnar
Fararstjóri: Inga Ragnarsdóttir
Öllum mátti ljóst vera að þegarHofsvallagatan yrði þrengd
með fuglahúsum, fánum og fiski-
kerjum myndu margir bílstjórar
finna sér aðrar leiðir um Melana.
Nú hefur talning bíla sýnt þeim,
sem þrátt fyrir
hve augljóst
þetta var vildu
ekki skilja það,
að niðurstaðan
varð einmitt sú
sem sjá mátti
fyrir.
Talningarbíla í
hverfinu sýna
fram á að þrengingar Hofs-
vallagötu hafi orðið til þess að allt
að 1.000 bílar á sólarhring leiti inn
í nærliggjandi götur þar sem mikil
umferð á mun minna erindi en á
Hofsvallagötu.
Bílarnir hurfu sem sagt ekki ogfólk tók ekki fram reiðhjólin
og gönguskóna við það eitt að
borgarstjórn legði steina í götu
þess á Hofsvallagötunni.
Það færði sig aðeins til, enda erumferðin eins og vatnið og
rafmagnið; hún leitar þangað sem
fyrirstaðan er minnst. Og þó að
borgarstjórn hafi „komið til móts
við“ hávær mótmæli íbúanna með
því að fjarlægja fuglahús og annað
furðuverk af götunni hefur ekkert
breyst því að hindranirnar eru enn
fyrir hendi. Og það var meira að
segja bætt í hindranirnar, senni-
lega líka til að „koma til móts við“
íbúana.
Niðurstaðan af þessu bröltiborgarstjórnar er að íbúar
hverfisins eru síður öruggir en áð-
ur og eiga erfiðara með að komast
leiðar sinnar.
Þar slógu Dagur og Jón tværflugur í einu höggi.
Tvær flugur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 21.3., kl. 18.00
Reykjavík 1 snjókoma
Bolungarvík -3 snjókoma
Akureyri 0 snjókoma
Nuuk -12 léttskýjað
Þórshöfn 5 léttskýjað
Ósló 7 heiðskírt
Kaupmannahöfn 8 heiðskírt
Stokkhólmur 8 heiðskírt
Helsinki 7 léttskýjað
Lúxemborg 10 skýjað
Brussel 10 léttskýjað
Dublin 5 alskýjað
Glasgow 5 skýjað
London 12 léttskýjað
París 12 heiðskírt
Amsterdam 8 léttskýjað
Hamborg 6 skýjað
Berlín 20 heiðskírt
Vín 21 skýjað
Moskva 2 heiðskírt
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 20 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 16 léttskýjað
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg -11 skafrenningur
Montreal -2 snjókoma
New York 3 léttskýjað
Chicago 1 heiðskírt
Orlando 17 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:21 19:49
ÍSAFJÖRÐUR 7:25 19:55
SIGLUFJÖRÐUR 7:08 19:38
DJÚPIVOGUR 6:51 19:19
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Aðsókn að Landnámssýningunni í
Aðalstræti hefur verið talsvert um-
fram það sem reiknað hafði verið
með. Guðbrandur Benediktsson,
deildarstjóri miðlunar hjá Minja-
safni Reykjavíkur, áætlar að að-
sókn í janúar og febrúar hafi verið
um 30% meiri en sömu mánuði í
fyrravetur. „Þetta er í sjálfu sér
lúxusvandamál, sem gaman er að
takast á við. Við þurfum að bregð-
ast við fyrir sumarið og fjölga fólki
á vöktum, þegar reikna má með
holskeflu ferðamanna til landsins,“
segir Guðbrandur.
Hann segir að ferðamönnum hafi
einnig fjölgað í Árbæjarsafni og á
fleiri söfnum og sýningum. Land-
námssýningin skeri sig þó úr og
njóti góðs af staðsetningunni í
hjarta miðborgarinnar.
Járnvinnsla á Alþingisreit
Vegna endurbóta var sýningin
lokuð í vikutíma í byrjun mánaðar-
ins. Guðbrandur segir að í fornleifa-
rannsókn undir stjórn Völu Garð-
arsdóttur fornleifafræðings á
Alþingisreitnum á milli Kirkju-
strætis, Vonarstrætis og Tjarnar-
götu hafi komið í ljós minjar um
fjölbreytta starfsemi þegar á land-
námstímanum. Talsvert af þessu
hafi tengst útgerð og fiskvinnslu,
en einnig rauðablæstri og járn-
vinnslu.
Alþingi sem stóð fyrir fornleifa-
rannsókninni á Alþingisreitnum
tekur þátt í því að bæta nið-
urstöðum úr þeirri rannsókn við þá
sögu sem sögð er á Landnámssýn-
ingunni.
Fornleifarannsóknir
og margmiðlunartækni
Á sýningunni er fjallað um land-
nám í Reykjavík og byggt á forn-
leifarannsóknum sem fram hafa
farið í miðbænum. Miðpunktur
sýningarinnar er skálarúst frá 10.
öld, sem fannst þegar grafið var
fyrir nýju húsi á horni Aðalstrætis
og Túngötu. Búið var í skálanum
frá því um 930 til 1000, að því er
fram kemur á heimasíðu Minja-
safnsins.
Norðan við skálann fannst veggj-
arbútur sem er ennþá eldri, eða frá
því um eða fyrir 871 og eru það
elstu mannvistarleifar sem fundist
hafa á Íslandi. Landnámssýningin
Reykjavík 871+/-2 er staðsett í
Aðalstræti 16.
Margmiðlunartækni er notuð til
að útskýra byggingarlag húsa á
víkingaöld. Einnig er hægt að
skyggnast inn í skálann með hjálp
tölvutækni og ímynda sér hvernig
lífi heimilisfólksins var háttað. Á
sýningunni er reynt að gefa hug-
mynd um umhverfi Reykjavíkur
eins og það var við landnám. Einnig
eru sýndir munir sem fundist hafa
við fornleifauppgröft í miðbænum.
Aðsókn talsvert
umfram áætlanir
Upplýsingum um járnvinnslu
á Alþingisreit bætt við frásögnina
Morgunblaðið/Eggert
871 +/-2 Margmiðlunartækni er
notuð á landnámssýningunni.
Fulltrúar Verkalýðsfélags Akraness
skrifuðu undir nýjan kjarasamning
við forsvarsmenn Elkem Ísland og
Samtök atvinnulífsins í gær.
Verkfall starfsmanna járnblendi-
verksmiðjunnar á Grundartanga
átti að hefjast á þriðjudag ef ekki
hefði náðst að semja fyrir þann
tíma.
Samningurinn gildir í þrjú ár frá
1. janúar og verður hann kynntur
starfsmönnum verksmiðjunnar á
þriðjudag að því er kom fram á vef-
síðu verkalýðsfélagsins í gær. Þá
verður jafnframt kosið um hann.
Á vefsíðu Verkalýðsfélags Akra-
ness kom enn fremur fram að lausn
kjaradeilunnar hefði meðal annars
byggst á því að taka upp nýja bón-
usa fyrir starfsmenn verksmiðjunn-
ar. Kjarasamningar þeirra höfðu
verið lausir frá 1. desember í fyrra.
Verkfalli starfsmanna
Elkem var afstýrt
Samningur byggist á nýjum bónusum