Morgunblaðið - 22.03.2014, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Á
dögunum lauk hinu
glæsilega Opna
alþjóðlega Reykja-
víkurskákmóti sem
Skáksamband Íslands
heldur árlega. Mótið fagnaði 50
ára afmæli sínu í ár og var í til-
efni þess sérstaklega veglegt.
Þátttökumet var slegið og íslensk-
ir og erlendir meistarar öttu
kappi og áttu öll helstu taflfélög
landsins fulltrúa á mótinu. Áhugi
Íslendinga á skák er einstakur og
endurspeglast það bæði í fjölda
stórmeistara hér á landi og þeim
fjölda fólks á öllum aldri sem tefl-
ir reglulega á skipulögðum mót-
um eða kemur til að fylgjast með.
Velgengni skáklistarinnar á
Íslandi er ekki síst öflugu félags-
starfi skákfélaga og skóla að
þakka. Þórir Benediktsson,
stjórnarmaður hjá Taflfélagi
Reykjavíkur, segir starf taflfélaga
hafa verið skákinni á Íslandi
ómetanlegt. „Í meira en heila öld
hefur til dæmis Taflfélag Reykja-
víkur alið af sér marga af bestu
skákmönnum Íslands og séð
skákháhugamönnum fyrir fjöldan-
um öllum af skemmtilegum skák-
mótum og viðburðum.“
Öflugt barna- og
unglingastarf
Mikill metnaður hefur verið í
barna- og unglingastarfi sem sést
best á því hvað margir barna- og
unglingaskólar senda lið á skák-
mót. Auk skákkennslu í skólum
hafa taflfélög víða haldið úti
kennslu bæði á eigin vegum og í
samstarfi við skóla. „Frá upphafi
hefur kennsla og þjálfun í barna-
starfinu hjá okkur í Taflfélagi
Reykjavíkur verið ókeypis og fé-
lagsgjöld fyrir börn eru engin,“
segir Þórir og bendir á að félagið
haldi úti öflugu starfi fyrir fólk á
öllum aldri. Skákin er fyrir unga
sem aldna. „Í mótahaldi félagsins
er reynt að koma til móts við ósk-
ir og þarfir sem breiðasts hóps
skákmanna þannig að allir geti
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Skákþing Reykjavíkur og haust-
Áhuginn á skáklist-
inni að aukast á ný
Metþátttaka hefur verið á laugardagsæfingum Taflfélags Reykjavíkur en æfing-
arnar, sem eru ætlaðar börnum og unglingum, eru þeim að kostnaðarlausu. Ís-
lendingar hafa lengi sýnt skáklistinni mikinn áhuga en gott starf í skólum og fé-
lögum eins og Taflfélagi Reykjavíkur á stóran þátt í vinsældum skákarinnar.
Skákmót Þórir Benediktsson situr hugsi og einbeittur yfir taflborðinu.
Þátttaka Fjöldi barna og unglinga nýtir sér laugardagsæfingar TR.
Kennsla Skákþrautir og -skýringar eru sýndar á laugardagsæfingu.
Hönnunarmars er árleg hönnunar-
hátíð sem haldin er í sjötta sinn í
ár. Hátíðin hefst næsta fimmtudag
og stendur yfir til 30. mars. Dag-
skráin er glæsileg að þessu sinni
og er hægt að sjá hana í heild
sinni á designmarch.is. Að sögn
Höllu Helgadóttur, framkvæmda-
stjóra Hönnunarmiðstöðvar, var
heimasíðan öll endurhönnuð í ár
og er því mun betri en hún hefur
verið undanfarin ár. „Inn á heima-
síðuna fara allir viðburðir Hönn-
unarmars en þeir eru yfir hundrað
talsins,“ segir Halla. Á heimasíð-
unni er hægt að nálgast flokk-
unarkerfi þar sem hægt er að sjá
dagskrána út frá sérstökum grein-
um hönnunar og hverfum í borg-
inni. „Þarna erum við með allt frá
arkitektúr, grafískri hönnun, vöru-
hönnun til upplifunarhönnunar.
Síðan erum við með lið sem heitir
fyrirlestrar og málþing sem er stór
hluti hátíðarinnar í ár,“ bætir Halla
við. Hátíðin hefst eins og áður kom
fram á fimmutdaginn með sér-
stökum fyrirlestradegi í Hörpu þar
sem meðal annars tískurisinn Calv-
in Klein heldur fyrirlestur. Að sögn
Höllu var ákveðið að hanna ekki
sérstakt smáforrit fyrir hátíðina
eins og undanfarin ár, heldur var
síðan hönnuð þannig að hún yrði
sérstaklega aðgengileg í vafra fyrir
snjallsíma. Á síðunni er einnig
hægt að fræðast um Hönnunar-
mars, fólkið á bak við hátíðina,
skoða yfirlit yfir dagskrá fyrri ára
ásamt því að skoða dagsetningar
hátíðarinnar næstu fimm árin.
Hægt er að sjá heimasíðuna bæði á
íslensku og ensku.
Vefsíðan www.designmarch.is
Hönnun Næstu helgi verður löng hönnunarhelgi sem enginn ætti að missa af.
Tískurisinn Calvin Klein mætir í
Hörpu og heldur fyrirlestur
Í dag mætir Aladdín aftur galvaskur
ásamt Salímu vinkonu sinni og fleiri
furðufuglum á Brúðuloftið í Þjóðleik-
húsinu. „Ekki er hægt að fara nógu
lofsamlegum orðum um brúðugerð
og -stjórn Bernds, en nær allar per-
sónur verksins birtast í ólíkum
stærðum og búningum, sem Eva
Signý Berger og Mao hönnuðu. Brúð-
urnar eru mikil fagursmíði og ótrú-
legt að sjá hvers þær eru megnugar í
meðförum meistara síns,“ skrifaði
Silja Björk Huldudóttir, blaðamaður á
Morgunblaðinu, í gagnrýni sinni á
verkið en hún gaf því fimm stjörnur
af fimm.
Endilega …
… sjáið fimm
stjörnu verk
Stórverk Aladdín aftur á sviðið.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Framundan eru tveir flottir skipti-
dótamarkaðir á vegum ungmenn-
aráðs UNICEF en það er foreldrafélag
grunnskólanna á Akureyri sem skipu-
lagði skiptidótamarkaðinn og allir
skólarnir á Akureyri tóku þátt í því að
safna leikföngum fyrir markaðinn.
Markaðurinn verður haldinn á Gler-
ártorgi og sjálfboðaliðar frá ung-
mennaráðinu og foreldrafélaginu
standa vaktina. Boðið verður upp á
vinnusmiðjur og föndurhorn fyrir
börn til að læra um Barnasáttmálann
og umhverfisvernd.
Leikur sameinar öll börn, hvar svo
sem þau kunna að búa og þjónar mik-
ilvægu hlutverki í þroska hvers ein-
staklings. Með skiptidótamarkaðnum
vill ungmennaráð UNICEF skapa vett-
vang þar sem börn fá tækifæri til að
leika sér um leið og þeim er gefið
tækifæri til að læra um umhverfi sitt
og samfélag. Á markaðnum munu
fulltrúar í ungmennaráðinu leika við
börnin á sama tíma og þeir fræða þau
um endurnýtingu, sjálfbærni og
Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Sams konar markaður verður hald-
inn á Borgarbókasafninu í Reykjavík
klukkan 14.30 á sunnudag en á Ak-
ureyri er markaðurinn á laugardegi
og hefst klukkan 13.00 á Glerártorgi.
Börn á Akureyri fá tækifæri til að mæta með dótið sitt á skiptidótamarkað
Skiptidótamarkaður haldinn á Akureyri
Morgunblaðið/G.Rúnar
Leikföng Það er spennandi að koma með dót á skiptidótamarkað og skipta.
-
Heimir
Bergmann
Sölufulltrúi
630-9000
Kristján Ólafsson hrl.
Lögg. fasteignasali
414-4488
Höfuðborg fasteignasala • Hlíðasmára 2, 6. hæð • 414-4488
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 23. MARS FRÁ KL. 16:00-16:30
Falleg og rúmgóð 4ra-5 herb. þakíbúð í hjarta Reykjavíkur alls 175,9 m2. skv.
nýjum eignaskiptasamningi. Íbúðin er í virðulegu og vel viðhöldnu húsi við
Klapparstíg 29. Um er að ræða sögufrægt hús byggt af V. Poulsen 1927
sem rak þar fyrirtæki sitt til áraraða. Verð 61,5 millj.
Klapparstígur 29 • Laus strax