Morgunblaðið - 22.03.2014, Síða 11
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hugsi Tveir ungir og efnilegir skákmenn etja kappi við taflborðið og láta ekkert trufla einbeitinguna.
mót félagsins eru gott dæmi um
opin mót fyrir alla sem hafa áhuga
og eru tvímælalaust flaggskipin í
mótahaldi okkar. Mótin hafa bæði
verið haldin í 80 ár og næstkom-
andi haust mun Taflfélag Reykja-
víkur einmitt fagna 80 ára afmæli
haustmótsins.“
Tengsl við skóla mikilvæg
Þrátt fyrir að Taflfélag
Reykjavíkur komi ekki beint að
kennslu í grunnskólum borgar-
innar heldur félagið úti öflugum
mótum fyrir grunnskólanema og á
hverjum laugardegi gefst börnum
og unglingum tækifæri til að
mæta á laugardagsæfingar hjá
Taflfélagi Reykjavíkur þar sem
kennsla og þjálfun fer fram. „Æf-
ingarnar fara fram alla laugardaga
yfir vetrartímann og eru í höndum
þrautreyndra kennara sem notast
við nýtt og glæsilegt kennsluefni
sem formaður félagsins, Björn
Jónsson, hannaði. Algjör spreng-
ing hefur orðið í aðsókn á æfing-
arnar og nýverið mætti hvorki
meira né minna en á sjöunda tug
barna, sem heyrir til eindæma hin
síðari ár.“ Áhugi reykvískra ung-
menna á skáklistinni var áberandi
á Opna alþjóðlega Reykjavíkur-
mótinu en Þórir segir það hafa
verið ánægjulegt að fylgjast með
krökkunum úr Taflfélagi Reykja-
víkur á mótinu sem öll hafi staðið
sig með sóma og hafi bætt dýr-
mætri reynslu í sarpinn. Eins
bendir Þórir á að í mörgum skól-
um borgarinnar sé rekið öflugt
skákstarf. „Rimaskóli hefur staðið
sig gífurlega vel og bar skólasveit
þeirra sigur úr býtum á Reykja-
víkurmóti grunnskóla í ár en skól-
inn hefur verið einráður á mótinu
á undanförnum árum.“
Sleitulaust og öflugt barna-
og unglingastarf hefur skilað Ís-
lendingum öfundsverðum árangri í
skák og fjölda stórmeistara. Tafl-
félag Reykjavíkur á stóran þátt í
uppbyggingu skákstarfs í landinu
og sem þakklætisvott fyrir allan
áhugann og orkuna í starfinu í
vetur ætlar félagið að halda sér-
stök páskamót fyrir krakka á
grunnskólaaldri. „Við höldum mót-
in í samstarfi við Nóa-Síríus dag-
ana 30. mars, 6. apríl og 13. apríl.
Auðvitað verða vegleg verðlaun í
boði, meðal annars í formi ljúf-
fengra páskaeggja frá Nóa-
Síríusi.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Í vetur hefur á þriðja tug verk-
fræðinema unnið að hönnun og
smíði eins manns rafknúins kapp-
akstursbíls fyrir alþjóðlega hönnun
og kappakstur-
0skeppni, For-
mula Student,
sem fram fer á
Silverstone-
brautinni á Eng-
landi í júlí. Liðs-
menn íslenska
liðsins sem nefn-
ist TeamSPARK
eru allir nem-
endur í Háskóla
Íslands og koma
þeir úr iðnaðar-, véla-, hugbúnaðar-,
rafmagns- og tölvuverkfræðideild
skólans.
Keppnisbíll liðsins sem ber nafnið
TS14 verður svo afhjúpaður 3. apríl
næstkomandi og fer athöfnin fram á
Háskólatorgi klukkan 17.00. Ragn-
heiður Björk Halldórsdóttir, liðs-
stjóri TeamSPARK, segir að hönn-
un bílsins hafi verið lokið rétt fyrir
áramót og frá þeim tíma hafi allar
stundir liðsins farið í smíði hans.
„Hönnun og smíði kappakstursbíls
er mikið og dýrt verk sem við
vinnum í góðri samvinnu við Há-
skóla Íslands og styrktaraðila okkar
í atvinnulífinu en þeir eru yfir 40
talsins,“ segir Ragnheiður og bendir
á að kostnaður við hönnunina og
smíði bílsins sé kominn í 24 milljónir
króna og fari hækkandi. „Verkefnið
væri ekki framkvæmanlegt án vel-
vildar okkar góðu styrktaraðila og
einstakrar samvinnu við Háskóla Ís-
lands.“ Ragnheiður nefnir sér-
staklega gott samstarf við Kristínu
Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Ís-
lands, sviðsforsetann Hilmar Braga
Janusson og deildarforsetann Ólaf
Pétur Pálsson.
TeamSPARK var stofnað árið
2009 og keppti í sinni fyrstu keppni
árið 2011 og hefur keppt öll sumur
síðan. Í fyrra lenti liðið í þriðja sæti
keppninar og stefnir hærra í sumar
að sögn Ragnheiðar. „Allir í hópn-
um eru spenntir fyrir sumrinu og
við höfum fulla trúa á því að komast
lengra í keppninni í ár. Hópurinn er
mjög samheldinn og ég fullyrði að
verkefnið væri ekki komið jafn vel á
veg og það er ef ekki væri fyrir
fórnfýsi allra í liðinu,“ segir Ragn-
heiður en flestir liðsmenn TeamSP-
ARK eru í fullu námi og því gefst
ekki mikill tími fyrir annað en skóla
og vinnu við bílinn.
„Það hefur verið unnið við hönn-
un og smíði bílsins bæði dag og nótt
enda hönnun og smíði bíls frá
grunni mikið verk. Það hafa alla-
vega fáir í liðinu mætt nýlega í
kvöldmat til mömmu.“
Háskólanemar hanna og smíða kappakstursbíl
Morgunblaðið/Kristinn
Lítill tími fyrir
mat hjá mömmu
Ragnheiður Björk
Halldórsdóttir
Kappakstursbíll Verkfræðinemar í HÍ vinna að hönnun og smíði rafbíls.
Í dag frá klukkan 13 til 15 verður
haldið málþing í fyrirlestrasal Þjóð-
minjasafnsins um vefnað og hann-
yrðir fyrr á öldum í Þjóðminjasafni Ís-
lands. Með málþinginu er þess
minnst að Elsa E. Guðjónsson hefði
orðið níræð hinn 21. mars, hefði hún
lifað, en Elsa starfaði við Þjóðminja-
safnið um áratuga skeið. Bók um
rannsóknir Elsu á íslenskum refil-
saumuðum altarisklæðum er vænt-
anleg á vegum safnsins á næsta ári.
Málþingið er öllum opið og aðgangur
ókeypis.
Fjórir áhugaverðir fyrirlesarar
verða á málþinginu en þær dr. Hrefna
Róbertsdóttir, Lilja Árnadóttir safn-
vörður, Kristín Bjarnadóttir rann-
sóknarlektor og Kristín Schmid-
hauser Jónsdóttir verða allar með
fyrirlestur á málþinginu. Fundarstjóri
er Bryndís Sverrisdóttir.
Málþing í Þjóðminjasafni
Ræða vefnað
og hannyrðir
Í áratugi hefur Taflfélag Reykja-
víkur haldið metnaðarfullar skák-
æfingar fyrir börn og unglinga.
Laugar-
dagsæfingarnar
eru fyrir löngu
orðnar rótgró-
inn hluti af
starfi félagsins
og flestum
skákiðkendum
landsins vel
kunnar. Margir
af sterkustu
skákmönnum þjóðarinnar stund-
uðu æfingarnar á sínum yngri ár-
um hjá Taflfélagi Reykjavíkur og
alls ekki ólíklegt að framtíðar-
stórmeistarar séu að stíga sín
fyrstu skref á laugardagsæf-
ingum taflfélagsins í dag.
Þjálfun og kennsla á laugar-
dagsæfingunum er í höndum
þaulreyndra og sterkra skák-
manna og er aðgangur ókeypis
líkt og Þórir Benediktsson,
stjórnarmaður í Taflfélagi Reykja-
víkur, hefur bent á. Æfingarnar
henta byrjendum jafnt sem
lengra komnum og er börnum
velkomið að mæta og fylgjast
með til að byrja með ef þau eru
ekki tilbúin að taka þátt með
beinum hætti strax.
Laugardags-
æfingar
SKÁKKENNSLA
Skák og mát.