Morgunblaðið - 22.03.2014, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Lítil áhætta er talin á því að smitefni
berist til landsins með djúpfrystu
nautasæði eða fósturvísum frá Nor-
egi. Afleiðingar geta hins vegar orð-
ið miklar í meirihluta tilvika, ef smit-
efnin berast til landsins, og þarf að
bregðast við því með sérstökum að-
gerðum.
Matvælastofnun hefur skilað til
atvinnuvegaráðuneytisins áhættu-
mati vegna innflutnings á erfðaefni
frá Noregi til kynblöndunar á holda-
nautastofnum hér. Landssamband
kúabænda (LK) hyggur á innflutn-
inginn, ef það er talið óhætt. Í um-
sókn þess er óskað eftir innflutningi
á djúpfrystu erfðaefni af holda-
nautagerðinni Aberdeen Angus til
notkunar beint hjá bændum. Það er
talin fljótvirkasta og ódýrasta leiðin
til að auka framfarir. Þannig standa
svínabændur að málum og fengu til
þess sérstaka heimild í lögum.
LK hefur einnig falið norsku
dýralæknastofnuninni að gera sjálf-
stætt áhættumat á innflutningnum.
Kjöt af 2.000 gripum flutt inn
Málið verður tekið fyrir á
stjórnarfundi LK næstkomandi
mánudag. „Ég er ánægður með að
það skuli vera komin niðurstaða. Við
fyrstu sýn virðist mér þetta vera
vandað og ítarlegt mat,“ segir Bald-
ur Helgi Benjamínsson, fram-
kvæmdastjóri LK, og tekur fram að
næstu skref hafi ekki verið ákveðin.
Lengi hefur legið fyrir að þörf
er á nýju blóði í holdanautastofna, til
að nautakjötsframleiðsla geti þrifist
hér áfram. Innflutningur á nauta-
kjöti hefur aukist á síðustu árum og
svarar innflutningurinn á árinu 2013
til kjöts af um 2.000 gripum. Hér er
slátrað um 22 þúsund nautgripum á
ári þannig að innflutningurinn nálg-
ast 10% af markaðnum.
Aðgerðir í varúðarskyni
Landbúnaðarráðherra fól Mast
í október að gera mat á áhættu
vegna innflutnings fósturvísa og
sæðis beint til bænda og til notkunar
á einangruðu ræktunarbúi.
Sextán smitefni voru tekin fyrir
í áhættumati Mast. Litlar líkur eru
taldar á því að þau berist til landsins
með sæði frá norsku sæðingastöð-
inni. Við mat á afleiðingum þess ef
smitefnin bærust til landsins voru
tvö smitefnanna talin hafa litlar af-
leiðingar í för með sér, þrjú hefðu
nokkrar afleiðingar og ellefu miklar.
Við endanlegt mat á áhættu
flokkuðust því fimm smitefnanna í
lágan áhættuflokk, ellefu í miðlungs
en ekkert í háan áhættuflokk. Tekið
er fram að þegar áhættan er metin
nokkur eða mikil er talin ástæða til
að bregðast við með aðgerðum sem
geta dregið úr áhættunni og bent á
ýmsar leiðir til þess í sérstakri
skýrslu.
Áhættumat vegna innflutnings á nautasæði
Lítil hætta talin á
að smitefni berist
Morgunblaðið/Eggert
Nautakjöt Íslensku nautin þurfa
nýtt blóð til að auka framleiðsluna.
Laugavegi 174 | Sími 590 5040
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 12-16
Kíkið inná:
heklanotadirbilar.is
GÓÐIR, NÝLEGIR,
TRAUSTIR
GÆÐABÍLAR
Á GÓÐU VERÐI
VW Passat
Alltrack 4motion
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 27.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð:
5.990.000
Skoda Octavia Combi Tdi
4x4. Árgerð 2012, dísil
Ekinn 48.000 km, beinskiptur
VW Touareg V6 TDI 245 hö
Árgerð 2013, dísil
Ekinn 10.000 km, sjálfskiptur
Hyundai Santa Fe Lux
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 31.000 km, sjálfskiptur
Ásett verð: 3.890.000
Ásett verð: 11.390.000
Ásett verð: 5.890.000
Audi A1 Sportback 1.6 TDI
Árgerð 2013, dísil
Ekinn 7.000 km, sjálfskiptur
VW Polo Comfort 1,4 AT
Árgerð 2012, bensín
Ekinn 45.000 km, sjálfskiptur
Skoda Rapid Ambiente
1.2 Tsi. Árgerð 2013, bensín
Ekinn 28.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 3.990.000
Ásett verð: 2.420.000
Ásett verð: 2.840.000
Audi A4 Avant 2.0TDI
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 23.000 km, sjálfskiptur
VW Passat Highline EcoFuel
AT. Árgerð 2011, bensín/metan
Ekinn 65.000 km, sjálfskiptur
Fiat 500 LOUNGE
Árgerð 2012, bensín
Ekinn 11.000 km, beinskiptur
Ásett verð: 5.990.000
Ásett verð: 3.890.000 Ásett verð: 2.390.000
Komdu og
skoðaðu úrvalið!
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
HB Grandi hefur fengið fyrirspurn
frá norðurameríska matvælafyrir-
tækinu High Liner Foods þar sem
óskað er eftir að fyrirtækið skýri
tengsl sín við hvalveiðar. High Liner
Foods hefur ákveðið að eiga ekki
frekari viðskipti við íslensk sjávarút-
vegsfyrirtæki, þar á meðal HB
Granda, fyrr en þau slíta öll tengsl
sín við hvalveiðar.
„Við munum auðvitað gera það.
En það er ekki eins og hætt hafi ver-
ið við einhver viðskipti eða samn-
ingum rift. Viðskiptin hafa verið í
gangi og við búumst við áframhaldi
á því í haust,“ segir Brynjólfur Eyj-
ólfsson, markaðsstjóri HB Granda.
Tengjast með eignarhaldi
High Liner Foods opinberaði
ákvörðun sína á sjávarútvegssýning-
unni Seafood Expo North America í
Boston í vikunni. Náttúruverndar-
samtök höfðu skrifað mörgum heild-
sölum og sjávarútvegsfyrirtækjum í
Bandaríkjunum sem kaupa íslensk-
ar sjávarafurðir bréf þar sem þau
voru hvött til að sýna fram á að þau
keyptu ekki fisk af fyrirtækjum sem
tengdust hvalveiðum, sérstaklega
HB Granda.
Stærsti hluthafi HB Granda er fé-
lagið Vogun, sem er í eigu fiskveiða-
hlutafélagsins Venusar. Venus er
meðal annars í eigu Kristjáns Lofts-
sonar, forstjóra Hvals. Hann er enn
fremur stjórnarformaður HB
Granda.
„Það er tenging við hvalveiðar í
gegnum eignarhaldið, en hins vegar
er HB Grandi ekki í veiðum, vinnslu
eða sölu á hvalaafurðum og hefur
aldrei verið. Fyrirtækið tengist þar
af leiðandi ekki hvalveiðum á neinn
hátt, nema í gegnum þetta eignar-
hald,“ segir Brynjólfur.
High Liner Foods gaf út yfirlýs-
ingu á ráðstefnunni þar sem fram
kom að fyrirtækið styddi hvorki
hvalveiðar né viðskipti með hvala-
afurðir. Þá sagðist fyrirtækið ekki
ætla að gera nýja samninga við HB
Granda fyrr en fyrirtækið myndi
slíta öll tengsl sín við hvalveiðar.
Frestur sem Barack Obama
Bandaríkjaforseti hefur til að
ákveða refsiaðgerðir gegn Íslend-
ingum vegna hvalveiða rann út í
gær.
Krefja HB
Granda svara
Hætta viðskiptum vegna hvalveiða
Morgunblaðið/RAX
Verkun Hvalur hf. hefur veitt lang-
reyðar undanfarin ár.