Morgunblaðið - 22.03.2014, Qupperneq 14
BAKSVIÐ
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Kísilver, álver, gagnaver, kapalverk-
smiðjur, lyfjaverksmiðja, koltrefja-
verksmiðjur, kalkþörungaverk-
smiðja, vatnsverksmiðjur, fisk-
eldisiðnaður, risagróðurhús.
Allt eru þetta dæmi um orku- og
mannfrek verkefni sem áform eru
uppi um hér á landi á næstu miss-
erum. Er þá ótalin stór fjárfesting í
t.d. sjávarútvegi og ferðaþjónustu.
Reynslan hefur sýnt að áform sem
þessi ganga ekki alltaf eftir. Þar
skipta stóru máli þættir eins og orku-
og umhverfismál, fjármögnun, leyfis-
veitingar og markaðsaðstæður al-
mennt. Fyrir liggur að í eingöngu
orkumálum þarf að styrkja flutn-
ingskerfið og fjölga virkjunum ef öll
stærstu áformin eiga að verða að
veruleika.
Fyrirhuguð verkefni eru mislangt
á veg komin. Sum þeirra eru aðeins á
byrjunarstigi en önnur eru lengra
komin með t.d. viljayfirlýsingum,
lóðarumsóknum, fjárfestingarsamn-
ingum við stjórnvöld eða orkusölu-
samningum. Frá árinu 2010 hafa
stjórnvöld undirritað sex fjárfesting-
arsamninga og orkufyrirtækin gert
enn fleiri samninga um sölu á raf-
orku. Nú nýverið gerði Landsvirkjun
t.d. tvo samninga vegna kísilverk-
smiðja PCC á Bakka og United Sili-
con í Helguvík.
Meðfylgjandi yfirlitskort um fyrir-
huguð verkefni er alls ekki tæmandi
en gefur engu að síður góða mynd af
því sem komið er á kortið. Sést vel
hve þau raðast að miklu leyti á suð-
vesturhorn landsins en þó hillir undir
uppbyggingu á svæði eins og
Bakka við Húsavík. Að
minnsta kosti er Bergur Elías
Ágústsson, sveitarstjóri
Norðurþings, kampakátur
með orkusölusamninginn við
PCC. Einnig liggja fyrir lóð-
arumsóknir um álver og slípi-
efnaverksmiðju. Hann segir
eitt verkefni til viðbótar í píp-
unum sem of snemmt sé að
greina frá opinberlega. En
Bergur vill fara að bretta upp ermar.
„Maður er orðinn þreyttur á vol-
æðistalinu sem tröllriðið hefur um-
ræðunni, bæði á Alþingi og í þjóð-
félaginu. Menn þurfa að standa
saman og koma sér út úr þessari um-
ræðu, fara að skapa fólki störf og
tekjur. Ef menn ætla að aðstoða aðra
þá er gott að byrja á því að taka til í
eigin ranni,“ segir Bergur Elías.
Önnur kalkþörungaverksmiðja
Nokkur þessara kortlögðu verk-
efna munu skýrast frekar á allra
næstu vikum og mánuðum, eins og
kísilver Thorsil í Helguvík, sólarkís-
ilverksmiðja á Grundartanga, vatns-
verksmiðja á Rifi og ný kalkþör-
ungaverksmiðja á norðanverðum
Vestfjörðum.
Tvö gagnaver hafa verið tekin í
notkun á undanförnum árum, Verne
og Advania-Thor. Bæði huga þau að
töluverðri stækkun sem kallar á
mikla orkuþörf til viðbótar. Áform
hafa verið um gagnaver víðar á land-
inu, eins og í Reykjavík og á Blöndu-
ósi, en engin niðurstaða komin þar
enn. Þá eru sum verkefni á því stigi
að fara í gang eða þegar farin af stað,
líkt og örþörungaverksmiðja Algalífs
á Ásbrú og stálverksmiðja GMR á
Grundartanga. Einnig eru fram-
kvæmdir að fara af stað í Vatnsmýri
fyrir lyfjafyrirtæki Alvogen.
Becromal vill stækka
Eitt þeirra íslensku fyrirtækja
sem hafa verið að laða erlenda fjár-
festa til samstarfs við sig er Strokkur
Energy, sem á aðild að álþynnuverk-
smiðju Becromal á Akureyri, GMR
stálverksmiðju á Grundartanga og
Thorsil í Helguvík. Eyþór Arnalds,
framkvæmdastjóri Strokks, segir
kísilverið langt á veg komið og bind-
ur hann vonir við að samningar klár-
ist á næstunni. Becromal hefur farið
vel af stað og kominn tími á stækkun.
Álþynnur að andvirði 12 milljarða
króna voru fluttar út í fyrra en Ey-
þór segir stækkun verksmiðjunnar
því miður ekki mögulega vegna
skorts á raforku. Þá á Strokkur
meirihluta í stálverksmiðjunni, sem
hóf nýlega starfsemi. Þar vinna nú
um 40 manns og Eyþór segir líklegt
að fjölga þurfi starfsfólki allt upp í 60
manns. Um er að ræða endurvinnslu
á stáli, sem unnið er til útflutnings
eða fyrir álverin hérlendis. En Eyþór
hefur áhyggjur af stöðu orkumála.
„Orkuskerðingin að undanförnu er
afleit til afspurnar, það er ekki gott
þegar þarf að skerða orku til lykilvið-
skiptavina. Það hafa orðið tafir í
virkjunarframkvæmdum í
fjögur ár. Við glímum ekki
bara við vatnsskort heldur
virkjanaskort. Við erum með
mörg verkefni sem væri
hægt að ráðast í en hafa verið
í algjörri biðstöðu.“
Höftin gætu haft áhrif
Fjárfestingasvið Íslands-
stofu vinnur að því að kynna
landið fyrir erlendum fjár-
festum. Þar ræður Þórður H. Hilm-
arsson ríkjum. Í samtali við Morgun-
blaðið segir hann áhuga fjárfesta
hafa aukist og flæði verkefna ekki
minnkað. Gjaldeyrishöftin hafi ekki
haft áhrif á þau verkefni sem nú eru
til skoðunar, enda er undanþága frá
takmörkunum fjármagnsflutninga
vegna nýfjárfestinga.
„Ef lögð verður áhersla á líftækni-
og hátækniverkefni með alþjóðlegri
starfsemi hér, þá munu höftin hins
vegar fara að skipta mun meira máli,
eins og komið hefur fram í máli for-
svarsmanna þeirra alþjóðlegu fyrir-
tækja sem hér starfa í augnablikinu.
Þó að mörg verkefni séu til skoðunar
á hverjum tíma þá er ekki þar með
sagt að niðurstaðan verði jákvæð í
öllum tilfellum. Það er reyndar af og
frá,“ segir Þórður.
Hann telur skipta öllu máli að
samkeppnishæfni landsins sé a.m.k.
jafn mikil og helstu nágrannalanda
okkar og að viðskipta- og lagaum-
hverfið styðji við þá viðleitni að laða
hingað til lands áhugaverð fyrirtæki
sem skapa ný og verðmæt störf og
bera með sér nýja þekkingu og
aukna framleiðni. Þórður segir viða-
miklar tillögur liggja fyrir í þessum
efnum frá fjölmörgum aðilum. Vonar
hann að þessar tillögur verði á dag-
skrá ríkisstjórnarinnar sem allra
fyrst.
„Okkar hlutverk á Íslandsstofu er
fyrst og fremst að fá fjárfesta hingað
til að skoða aðstæður og veita þeim
sem allra besta þjónustu við gagna-
öflun og tengslamyndun. Ef það
tekst þá er okkar markmiði í raun
náð. Við ráðum lítið við aðstæðurnar
eftir það, því við semjum ekki fyrir
hönd fjárfestanna um aðstöðu og
skilmála hér á landi, né heldur getum
við haft áhrif á samkeppnishæfni Ís-
lands í samanburði við aðrar þjóðir.“
Þórður segir Ísland hafa tækifæri
á mörgum sviðum. Nefnir hann t.d.
uppbyggingu í hátækniiðnaði, rann-
sóknum og þróun, eins og fyrirhug-
aða starfsemi lyfjafyrirtækisins
Alvogen og háskólanna í Vatnsmýri.
Við þróun vísindagarða gefist færi á
að laða að erlend fyrirtæki. „Einnig
sjáum við gríðarleg tækifæri í frí-
verslunarsamningi við Kína, þar sem
bæði kanadísk, bandarísk og evrópsk
fyrirtæki gætu náð miklu hagræði
við að setja upp virðisaukandi starf-
semi á Íslandi og flytja út til Kína.“
Varðandi fregnir af orkuskerðingu
til stóriðjunnar segir Þórður þær
ekki farnar að hafa áhrif á erlenda
fjárfesta. Litið sé á þetta sem und-
antekningu þar sem síðustu áratug-
ina hafi tiltölulega lítið verið um
orkuskerðingu. Þetta snúi að auki
fyrst og fremst að vatnsaflsvirkj-
unum og sé t.d. ekki áhættuþáttur
hvað jarðvarmaveitur varðar.
„Hins vegar er sú staða sem upp
er komin í vatnsbúskapnum staðfest-
ing á því að við eigum enn langt í land
með að samnýta orkuauðlindir okkar
á landsvísu með samhæfðu og öflugu
dreifikerfi milli Norður- og Suður-
lands,“ segir Þórður að endingu.
Fyrirhuguð verkefni í stóriðju eða mannfrekri starfsemi
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Reykjavík
Hafnarfjörður
ÞorlákshöfnGrindavík
Ásbrú
Helguvík
Grundartangi
Rif
Sunnanverðir
Vestfirðir
Ísafjörður/Bolungarvík
Blönduós
Sauðárkrókur
Siglufjörður
Akureyri
Bakki við Húsavík
Finnafjörður
Seyðisfjörður
Lyfjaverksmiðja í Vatnsmýri
Alvogen
Vatnsverksmiðja
IV Iceland/Moonraker Ltd
Kalkþörungaverksmiðja
Ísl. kalkþörungafélagið
Gagnaver
Nokkrir áhugasamir aðilar
Koltrefjaverksmiðja
Gasfélagið o.fl.
Hafnarsvæði v Dysnes
Ýmsir í samstarfi
Umskipunarhöfn
Bremenports o.fl
Kapalverksmiðja
Álkaplar ehf.
Tómatagróðurhús
EsBro
Sólarkísilverksmiðja
Silicor Materials
Kapalverksmiðja
Southwire o.fl.
Stálverksmiðja
GMR-Strokkur
Gagnaver á Korputorgi
SMI-fjárfestingar
Gagnaver á Esjumelum
Nokkrir áhugasamir aðilar
A
A
A
Klór-alkalíverksmiðja
Genis
A
Líftækniverksmiðja
Genis
A
Álver*
Klappir Development
A
Slípiefnaverksmiðja*
Saint Gobain
A
A
A
A
A
A
A
A
Áburðarverksmiðja
?
B
Stórskipahöfn
?
Áburðarverksmiðja
?
B
B
C
Vatnsverksmiðja
Brúarfoss
C
Álver
Norðurál
C
C
Kísilverksmiðja
PCC Bakki Silicon
C D
Kísilverksmiðja
United Silicon
D
Kísilverksmiðja
Thorsil
D
E
F
Skýringar:
A Áform/viðræðustig
B Þingsályktanir um hagkvæmniathugun
C Viljayfirlýsing/fjárfestingasamningur
D Orkusölusamningur
E Nýlega farið af stað
F Framkvæmdir að hefjast
* Hafa sótt um lóðGagnaver - stækkun
Verne
A
Metanólverksmiðja-stækkun
Carbon Recycling Int.
A
Örþörungaverksmiðja
Algalíf
E
Gagnaver – stækkun
Advania-Thor Datacenter
A
Fiskeldisiðnaður – stækkun
Arnarlax, Fjarðalax o.fl.
A
Fjöldi stórverkefna í pípunum
Orkufrek stóriðja og tengd verkefni áformuð víða um land Mislangt á veg komin Fjögur kísil-
ver komin á kortið Íslandsstofa finnur aukinn áhuga fjárfesta Gagnaverin huga að stækkun
Þórður H.
Hilmarsson
Bergur Elías
Ágústsson
Eyþór
Arnalds
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014