Morgunblaðið - 22.03.2014, Page 16
ÚR BÆJARLÍFINU
Albert Eymundsson
Hornafjörður
Ragnar Imsland er handhafi
Menningarverðlauna Hornafjarðar
2014. Ragnar er þúsundþjala-
smiður og einstakur hagleiksmaður
sem hlýtur viðurkenninguna fyrir
þau lista- og handverk sem hann
hefur skapað og prýða umhverfið
og híbýli á Hornafirði og víðar.
Ferðafólk heldur áfram að
flykkjast hingað austur og hafa öll
met verið slegin í fjölgun ferða-
manna síðustu mánuði. Dæmi eru
um svipaða nýtingu á gistirými
þessa vetrarmánuði og yfir sumar-
mánuðina. Helsta aðdráttaraflið er
náttúra héraðsins, Jökulsárlón,
norðurljósin og íshellaskoðun, sem
færri komast í en óska. Vaxtar-
verkir fylgja þessari öru þróun því
fjölga þarf starfsfólki og er farið
að bera á húsnæðisskorti fyrir
starfsfólk ferðaþjónustufyrirtækja.
„Leyndardómar Suður-
lands“ er kynningarátak fyrir
landsfjórðunginn, dagana 28. apríl
til 6. apríl nk., þar sem megininn-
takið er „matur – saga – menn-
ing“. Á Hornafirði verður fjöl-
breytt dagskrá alla dagana í
tengslum við átakið sem sjá má á:
www.sudurland.is.
Bókmenntahátíð í Þórbergs-
setri á Hala í Suðursveit verður á
morgun, sunnudag. Hér er um ár-
legan viðburð að ræða sem haldinn
er í minningu meistara Þórbergs.
Dagskráin er fjölbreytt með upp-
lestri, erindum og söng þar sem
Þórbergur er oftast nálægur eða
mannlíf og náttúra Suðursveitar.
Nettó, sem er eina matvöru-
verslunin á Hornafirði, hélt í gær
upp á stækkun verslunarinnar þar
sem gerðar voru miklar endur-
bætur á allri versluninni. Var ráð-
ist í framkvæmdir m.a. vegna
fjölgunar ferðamanna en þrengsli
voru farin að há starfsfólki og við-
skiptavinum.
Skinney-Þinganes stendur í
miklum og fjárfrekum fram-
kvæmdum vegna starfseminnar,
bæði í landi og með endurbótum á
bátum fyrirtækisins. Með þeim er
stefnt að því að auka hagkvæmni
og afkastagetu vinnslunnar sem og
vinnuumhverfi starfsfólks í landi
og bæta aðbúnað sjómanna.
Vetrarvertíð hefur gengið vel
þrátt fyrir rysjótta tíð. Netabátar
mokfiska þegar þeir róa og upp-
sjávarskipin náðu að klára kvótann
sinn.
Knattspyrnudeild Sindra
bauð upp á knattspyrnuskóla sem
haldinn var í byrjun mars og tókst
einstaklega vel til. Það væri ekki í
frásögur færandi nema vegna
tímasetningarinnar en á Hornafirði
er fyrsta flokks aðstaða á þessum
árstíma til að æfa knattspyrnu
m.a. vegna tilkomu Bárunnar, fjöl-
nota knatthúss, með góðu gervi-
grasi.
Menningarverðlaun Hornafjarðar Ragnar Imsland og eiginkona hans Júlía Imsland fyrir miðri mynd ásamt
fulltrúum sem tóku við styrkjum fyrir hönd ýmissa félagasamtaka og stofnana við athöfnina.
Öll met slegin í fjölgun ferðamanna
Hekla Frá Heklugosi árið 2000.
Tveir jarðskjálftar, báðir 1,2 að
stærð, hafa mælst við Heklu undan-
farna sólahringa. Sá fyrri varð á
fimmtudagskvöld en sá seinni
skömmu eftir hádegi í gær.
Undanfarið hefur verið sagt frá
kvikusöfnun og þenslu í Heklu en
hún er orðin meiri en hún var fyrir
Heklugosið árið 2000. Það hefur vak-
ið áhyggjur margra af því að annað
gos sé yfirvofandi. Almannavarna-
deild ríkislögreglustjóra hefur meðal
annars fengið fyrirspurnir frá sendi-
ráðum, öryggisfyrirtækjum og ein-
staklingum vegna þessa.
Pálmi Erlendsson, sérfræðingur
hjá Veðurstofunni, segir það koma
fyrir að jarðskjálftar mælist við eld-
fjallið en að yfirleitt séu það, eins og í
þessum tilvikum, örskjálftar.
„Þetta er ekki beint neitt til þess
að hafa áhyggjur af. Hekla er nú
samt óútreiknanleg eins og við
þekkjum og margir segja að það sé
kominn tími á hana. En maður getur
ekki séð að svona stöku skjálftar séu
forboði um eitthvað verra,“ segir
hann.
Ekki til
að hafa
áhyggjur af
Smáskjálftar
við Heklu
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Gunnlaugur Árnason
Leikfélagið Grímnir frumsýndi á dögunum leikritið Lýð-
ræði eftir Bjarka Hjörleifsson. Tónlistina í samdi Jón
Torfi Arason. Höfundarnir eru ungir Hólmarar sem eru
að feta listabrautina.
Lýðræði er margslungið leikverk sem gerist á rusla-
haugum. Efni leikritsins er samfélagsgagnrýni frá sjón-
arhóli höfundar. Leikendur eru 9 auk hljómsveitar og
alls koma að leiksýningunni yfir 20 manns, flest ungt fólk
sem er að stíga sín fyrstu skref á sviði. Leikstjóri er
Hrafndís Bára Einarsdóttir.
Gaman að skrifa leikrit
Bjarki Hjörleifsson 24 ára Hólmari og er formaður
leikfélagsins Grímnis. Hann hefur áður samið leikritið
Við dauðans dyr sem Grímnir sýndi árið 2012.
Bjarkir segir að hann hafi alltaf haft gaman af að
skrifa.
„Strax í grunnskóla var hvatning um skapandi skrif.
Ég hafði gaman af að semja sögur, ljóð og söngtexta. Það
þurfti ekki mikið til að ýta á mig að fara á leiksvið á
árshátíðum skólans. Þá datt mér ekki hug að ég ætti eft-
ir að semja leikrit. Tengsl mín við Grímni urðu örugg-
lega til þess að ég fór að skrifa. Ég hafði ekki mikla trú á
mér, en ég fór af stað. Eftir tveggja mánaða starf var ég
kominn langleiðina með fyrsta verk mitt og þá var ekki
um annað að gera en klára verkið. Það var erfitt, en gam-
an eftir á. Formið á því hvernig leikrit eru skrifuð er
mjög heillandi og skemmtilegt,“ segir Bjarki og bætir
við: „Eftir þessa reynslu langar mig að halda áfram á
þessari braut. Ég hef áhuga á að leita mér að góðri
menntun varðandi leikhús, hvort sem er leikstjórn eða
leikritaskrif.“
Bjarki er ánægður með hversu vel hefur tekist til og
vonar að áhorfendur verði sama sinnis.
Sýningar fara fram í félagsheimilinu Skildi í Helga-
fellssveit.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Á ruslahaugunum Leikendur í Lýðræði. Þeir eru 9 auk hljómsveitar og alls koma að leiksýningunni yfir 20 manns.
Lýðræði á ruslahaugunum
Leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi sýnir verk eftir ungan höfund
ÚRVALSFÓLKSFERÐIR
Tenerife 2. – 21. maí
ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19, KÓP. | S. 585 4000
Best Tenerife
Hálft fæði innifalið
VERÐ FRÁ
231.900 KR.
á mann miðað við 2 fullorðna í tvíbýli.
Brottför: 2. maí
Heimkoma: 21. maí.
La Siesta
Hálft fæði innifalið
VERÐ FRÁ
228.000 KR.
á mann miðað við 2 fullorðna í tvíbýli.
Brottför: 2. maí
Heimkoma: 21. maí
Skemmtanastjóri
á Tenerife
Kjartan Trausti
Skemmtanastjóri
á Benidorm
Jenný Ólafsdóttir