Morgunblaðið - 22.03.2014, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-2
2
6
6
Að málþinginu standa auk Öryrkjabandalags Íslands,
Rannsóknasetur í fötlunarfræðum og Félag um fötlunarrannsóknir.
ÞÁTTTAKA Í
LITRÍKUM HEIMI
Málþing:
Fötlun og menning
Mannréttindi hversdagsins
28. mars kl. 9.00 –17.00 í Norðurljósasal Hörpu
Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald
Skráning og allar upplýsingar á www.obi.is
Síðasti skráningardagur er 27. mars
„Við í Halaleikhópnum erum stolt af að hafa
tekið þátt í að breyta heiminum. Mörgum
finnst óhugsandi að sjá Hamlet í hjólastól eða
spastískan Skugga-Svein. En leiklist er fyrir alla,
menning er sameign. Hindranirnar hverfa um
leið og við göngum yfir þær... eða rúllum.“
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram fyrirspurn um
Borgartún á fundi ráðsins sl.
fimmtudag.
Fyrirspurn borgarráðs-
fulltrúanna er svohljóðandi:
„Óskað er eftir sundurliðuðum
upplýsingum um framkvæmda- og
fjárfestingarkostnað vegna breyt-
inga við Borgartún. Hve mörg bif-
reiðastæði voru í götunni fyrir
breytingu og hve mörg eru þau eft-
ir breytingu? Við hvaða öryggis-
staðla eru ljósastaurarnir sem þar
hafa verið settir upp miðaðir og eru
þeir árekstravottaðir? Óskað er eft-
ir skýringum á því af hverju götu-
lýsingin virðist aðallega miðuð við
akandi umferð um götuna en ekki
umferð gangandi og hjólandi.
Stendur til að bæta úr því?“
Óska upp-
lýsinga um
Borgartún
Ljósastaurar
árekstravottaðir?
Morgunblaðið/Ómar
Borgartún Ekki eru lengur útskot
að strætóstoppistöð við götuna.
Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur hef-
ur styrkst mikið og það lítur út fyrir
að markmið Plansins svonefnda
muni nást. Þetta kom fram á kynn-
ingarfundi í Orkuveitunni í gær.
Rekstarhagnaður Orkuveitunnar
nam 17,2 milljörðum á síðasta ári,
skuldir lækkuðu um tæpa 40 millj-
arða, eigið fé jókst um rúma 20 millj-
arða og eiginfjárhlutfall er 29% sam-
kvæmt ársreikningi fyrir 2013.
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orku-
veitunnar, segir að þrátt fyrir þenn-
an árangur sé reksturinn ekki enn
orðinn traustur, en sé á góðri leið
þangað. Þetta hafi meðal annars
skilað sér í því að erlendir bankar
séu farnir að sýna fyrirtækinu áhuga
varðandi endurfjármögnun að fyrra
bragði. „Það er eitthvað nýtt fyrir
okkur,“ sagði Bjarni.
Planið svokallaða, aðgerðaáætlun
sem sett var fram árið 2011 um
rekstur næstu fimm ár, gerði ráð
fyrir að félagið myndi ná 53,1 millj-
arði með innri og ytri aðgerðum, en
meðal annars þurfti 12 milljarða lán
frá eigendum veitunnar. Þetta virð-
ist hafa skilað sér, en farið var í
mikla hagræðingu og eru starfs-
menn fyrirtækisins nú meðal annars
tvö hundruð færri en árið 2009. Þá
var stefnt að lækkun fjárfestinga-
kostnaðar í veitukerfum á tímabilinu
upp á 15 milljarða og sölu eigna upp
á 10 milljarða. Gjaldskrá hefur einn-
ig verið hækkuð nokkuð sem á að
skila um 8 milljörðum yfir tímabilið í
hærri tekjum.
Bætt afkoma Orkuveitunnar
Morgunblaðið/RAX
Virkjun Hellisheiðarvirkjun, sem Orkuveita Reykjavíkur reisti.
Forstjóri OR segir reksturinn ekki traustan en á réttri leið
Aukinn áhugi erlendra banka á viðskiptum við fyrirtækið
Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar
samþykkti á fundi
á tíunda tímanum
í gærkvöldi tilboð
Íslandsbanka um
endurfjármögnun
á hluta skulda
bæjarins. Var af-
greiðslunni frest-
að sl. miðvikudag-
inn að ósk
minnihlutans. Að sögn Guðrúnar
Ágústu Guðmundsdóttur, bæjar-
stjóra Hafnarfjarðar, varðar málið
svonefnd FMS-lán sem tekin voru
hjá erlendum lánardrottnum 2011.
Tilboð Íslandsbanka hljóðar upp á
allt að 13,1 milljarð króna – sem er
ádráttarréttur – og yrði fjárhæðin
nýtt til að endurfjármagna lánin og
þannig lækka fjármagnskostnað.
Hún segir Seðlabankann eiga eftir
að afgreiða beiðni um undanþágu
vegna fjármagnshafta en af heildar-
upphæðinni færu 11,5 ma. til upp-
greiðslu á erlendu láni sem er á
gjalddaga 2015. Afgangur ádráttar-
réttar, 1,6 ma., er vegna innlendra
lána.
Samþykkja
endurfjár-
mögnun lána
Guðrún Ágústa
Guðmundsdóttir