Morgunblaðið - 22.03.2014, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Alþjóðamálastofnun heldur opinn
fund í Norræna húsinu mánudaginn
24. mars kl. 12. Heiti fundarins er
„Úkraína: Staðan í dag í sögulegu
samhengi.“
Frummælendur verða Jón Ólafs-
son heimspekiprófessor og Sverrir
Jakobsson, lektor í sagnfræði. Þeir
munu ræða um söguna og þá póli-
tísku stöðu sem upp er komin í
Úkraínu vegna atburðanna á Krím-
skaga. Allir eru velkomnir á fund-
inn.
Fundi stjórnar Pia Hansson, for-
stöðumaður Alþjóðamálastofnunar
Háskóla Íslands.
Rætt um pólitíska
stöðu í Úkraínu
Undirritaður hefur verið rekstrar-
samningur milli Kvenfélagsins
Hringsins og Sjónarhóls ráðgjafar-
miðstöðvar. Hringurinn mun veita
fimm milljónir á ári, næstu þrjú
árin til reksturs Sjónarhóls.
Sjónarhóll er ráðgjafarmiðstöð
sem veitir foreldrum barna með
sérþarfir ráðgjöf og stuðning. Til
Sjónarhóls geta foreldrar leitað
með börn sín á öllum aldri með
margvísleg vandamál. Þar getur
verið um að ræða mál tengd
skólagöngu barnsins, þörf fyrir
stuðningsúrræði, félagslega erfið-
leika og margt fleira. Þjónustan
er endurgjaldslaus og ekki er þörf
fyrir tilvísun eða greiningu. Á
myndinni eru Valgerður Einars-
dóttir, formaður Hringsins, og
Lára Björnsdóttir, formaður
stjórnar Sjónarhóls, sem undirrit-
uðu samninginn, stjórn Hringsins
og María Hildiþórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sjónarhóls.
Hringurinn styrkir
Sjónarhól árlega
STUTT
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Viltu vinna miða á
Justin Timberlake?
Opið allar helgar á Fiskislóð 29
8:00-19:00 virka daga og 10:00-18:00 um helgar
Löður dregur út tvo miða fyrir einn heppinn föstudaginn 4 apríl!
Farðu á Facebook-síðu Löðurs og taktu þátt.
Þú gætir verið að fara á Justin Timberlake í ágúst.
ADHD-samtökin hafa látið þýða á
pólsku bækling með grunnupplýs-
ingum um ADHD.
Pólverjar eru fjölmennasti inn-
flytjendahópurinn á Íslandi. Á tí-
unda þúsund Pólverjar eru hér á
landi eða um 3% landsmanna. Þar
af eru að minnsta kosti 1.500 börn.
Upplýsingabæklingnum verður
dreift á heilsugæslustöðvar, þjón-
ustumiðstöðvar og félagsþjónustur
sveitarfélaga um allt land og víðar.
Þá verður bæklingurinn fáanlegur
á rafrænu formi á vefsíðu ADHD-
samtakanna og vef pólska sendi-
ráðsins.
Bæklingur um
ADHD á pólsku
Sigurður Ægisson
Siglufirði
Siglufjörður hefur á undanförnum árum verið
að rísa úr öskustónni, eftir niðurlægingar-
tímabil sem varð eftir að síldin hvarf í lok sjö-
unda áratugar 20. aldar. Ekki síst hefur ferða-
mannaiðnaðurinn tekið að blómstra og má að
stórum hluta þakka það opnun Héðinsfjarðar-
ganga 2. október 2010, þótt margt fleira komi
auðvitað til, t.d. hin ýmsu söfn, hvert öðru flott-
ara, gistihús og veitingastaðir.
Eitt hefur samt vantað til þessa, fyrirtæki
sem býður upp á gönguferðir með leiðsögn um
fjöllin þar í kring. En á dögunum varð hér
breyting á, þegar hjónin og fjallakempurnar
Gestur Hansson og Hulda Friðgeirsdóttir
hleyptu af stokkunum nýrri heimasíðu og buðu
þar einmitt upp á áðurnefnda þjónustu. Um er
að ræða „allt frá léttum dagsferðum til alvöru
fjallaferða þar sem klofað er yfir fjallseggjar úr
Héðinsfirði yfir í Hvanndali, auk þess sem hægt
er að haga för þannig að það henti bæði áhuga-
svið og göngugetu þeirra sem vilja skoða þetta
svæði.“ Gestur er snjóflóðaeftirlitsmaður hjá
Veðurstofu Islands fyrir Siglufjörð og nágrenni
og Hulda er sjúkraliði og vinnur á Heilbrigðis-
stofnun Fjallabyggðar og er jafnframt aðstoð-
armaður manns síns í snjóflóðaeftirlitinu. Þau
eru bæði fædd og uppalin á Siglufirði og þar
hefur fjölskyldan búið. Þau eiga fimm börn.
„Við hjónin höfum alltaf verið mikið útivist-
arfólk og haft ríka þörf fyrir að hreyfa okkur,
segir Gestur. „Hér áður fyrr vorum við mikið á
skíðum, sérstaklega meðan börnin voru að alast
upp. Það var gengið á fjöll, hlaupið, hjólað,
stundað sjósund o.s.frv. allt eftir tímum og að-
stæðum. Gönguferðum á fjöll fjölgaði sér-
staklega eftir að ég hætti á sjó og fór að vinna í
landi ásamt því að börnin urðu eldri og við fór-
um að hafa meiri tíma fyrir tómstundir okkar,
þ.e.a.s. fjöllin. Einnig má segja að eftir að ég tók
við starfi snjóaeftirlitsmanns fyrir um sjö árum
og síðar Hulda sem aðstoðarmaður hafi hjólin
fyrst farið að snúast. Fljótlega fóru okkur að
berast fyrirspurnir um gönguferðir, hvort þessi
leiðin eða hin væri heppilegri, hversu lengi mað-
ur væri að ganga leiðina, hversu erfið hún væri
o.s.frv. Á þessum tíma gekk ég líka í Ferðafélag
Siglufjarðar og ekki leið á löngu þar til ég var
farinn að taka að mér eitt og eitt leiðsöguverk-
efni. Eftir það varð ekki aftur snúið og þær eru
ófáar ferðirnar sem farnar hafa verið með minni
og stærri hópa. Síðastliðinn vetur hef ég einnig
stundað nám í fjallamennsku við Fjölbrauta-
skóla Austur-Skaftafellssýslu. Og nú á loksins
að láta draumana rætast með stofnun fyrirtæk-
isins TopMountaineering.is.“
Ganga með ferðamenn á fjöll
Léttar dagsferðir og fjallaferðir þar sem klofað er yfir fjallseggjar úr Héðinsfirði yfir í Hvanndali
Á fjöllum Gestur Hansson og Hulda Friðgeirsdóttir uppi á Hestskarðshnjúki ásamt tíkinni Yrsu.