Morgunblaðið - 22.03.2014, Qupperneq 21
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Það var ekki búið að rita neitt um
skattamál og þessi kerfi sem nýtt
hafa verið,“ segir Friðrik G. Olgeirs-
son, sagnfræðingur og höfundur rit-
verksins Í þágu
þjóðar, en þar er
fjallað í tveimur
bindum um sögu
skatta og skatt-
kerfisbreytinga á
Íslandi frá 1877
til 2012. Verkið
er fyrsta fræði-
lega úttektin í
bókarformi á
þeirri miklu sögu,
en ríkisskatt-
stjóri átti frumkvæðið að því að hún
var færð í letur.
Friðrik segir að margir hafi spurt
sig út í titil verksins, en hann vísar
til þess að það að koma á tekju-
skattskerfinu og ríkissjóði hafi verið
í þágu þjóðarinnar.
Engir peningar voru til
Í verki Friðriks er meðal annars
fjallað um þá breytingu sem varð á
þjóðfélaginu í kjölfar lagasetningar
Alþingis árið 1877, þar sem tekju-
skattur var settur á í fyrsta sinn, og
innheimtur tveimur árum síðar.
Friðrik segir að sú breyting hafi
verið tímabær, því að þvert á það
sem haldið hafi verið fram hafi
skattheimta fyrr á öldum verið lítil
miðað við það sem seinna varð, en
komið illa við þá sem áttu lítið.
„Þannig að þegar Íslendingar
„vakna úr dvalanum,“ þegar líður á
nítjándu öldina, átta þeir sig á því að
það eru ekki peningar til eins eða
neins, ekki vegaframkvæmda eða
brúargerðar, til að reisa skóla eða
hvað sem er; það voru engir fjár-
munir til,“ segir Friðrik og bætir við
að landssjóður, sem síðar hét rík-
issjóður, hafi stöðugst verið tómur.
Þess vegna hafi verið farið í það eft-
ir að löggjafar- og fjárveitingavald
færðist til landsins 1874 að breyta
gamla tíundarkerfinu sem var orðið
úr takt við þjóðfélagið og taka upp
tekjuskattskerfi að erlendri fyrir-
mynd. Skattheimta hafi því í raun
verið ákveðin forsenda þess að hægt
var að fara lengra á braut framfara.
Eitt af því sem vakti athygli Frið-
riks var það að þegar verið var að
dæmis höfðu embættismenn verið
skattfrjálsir, þannig að þeim leist
mörgum ekkert á blikuna.“
Tók hálfa öld að innleiða kerfið
Þá voru menn að reyna að miða
skattkerfið við þjóðfélagsástand
þess tíma. „Það var ekki hægt að
innleiða tekjuskattskerfi nema fyrir
mjög takmarkaðan hóp manna,
embættismenn og kaupmenn, sem
fengu greitt í peningum. Það var til
dæmis ekki hægt að innleiða slíkt
kerfi hjá þorra þjóðarinnar, sem
voru bændur og fengu ekki beinar
launagreiðslur,“ segir Friðrik.
Breytingin hefði því falist í því að
taka upp tekjuskatt fyrir ákveðinn
hluta, og síðan voru sérstakir skatt-
ar teknir upp fyrir aðra, eins og
ábúðarskattur fyrir bændur. Árið
1921 var skrefið stigið til fulls, þann-
ig að það tók um hálfa öld að taka
upp tekju- og eignarskatt fyrir alla
þjóðina, en það er það kerfi sem enn
er við lýði í dag, þó að það hafi tekið
óteljandi breytingum. „En í grund-
vallaratriðum hefur þetta kerfi verið
notað síðan árið 1921,“ segir Frið-
rik.
Hann segir að það sem hafi helst
komið honum á óvart við vinnslu
verksins sé það hvað skattheimta
hafi verið lítil lengst af miðað við
verga landsframleiðslu, en á fyrri
öldum hafi hlutfallið verið um 5%.
„Á móti því kemur að í gamla kerf-
inu lenti stærri hluti skattheimt-
unnar á fólki sem átti miklu minna
fé.“ Friðrik segir að á þessu hlutfalli
sjáist glöggt hvers vegna Íslend-
ingar voru svo lengi á eftir öðrum
Evrópuþjóðum með uppbyggingu.
Forsenda fyrir framförum þjóðar
Með umbreytingu skattkerfisins 1877 opnuðust dyrnar að frekari framþróun íslensks þjóðlífs
Tekjuskattur tók við af gamla tíundarkerfinu Lagðist fyrst á kaupmenn og embættismenn
Máttu bíða Ýmislegt hefur breyst í íslenskri skattheimtu. Árið 1987 þurftu
þeir sem vildu fá frest á skattskilum að bíða í röðum á skattstofunni.
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
„Íslendingar höfðu verið með
þetta gamla tíundarkerfi í
nærri 800 ár þótt ótrúlegt sé,“
segir Friðrik, en í verki hans er
farið stuttlega yfir gamla kerf-
ið sem sett var á með lögum á
Alþingi árið 1097 fyrir til-
stuðlan Gissurs biskups Ís-
leifssonar, og var fyrsti skattur
sem lagður var á Íslandi.
Aðspurður hvort í því kerfi
hafi verið einhver séríslensk
einkenni segir Friðrik að gamla
tíundarkerfið hafi verið frekar
keimlíkt því sem tíðkaðist ann-
ars staðar í Evrópu. „Fyrir utan
það, að í Evrópu var þetta
tekjuskattur, og miðaður við
10% af tekjum, en hérna voru
þannig þjóðhættir að menn
miðuðu frekar við eign,
jarðir og bústofn,“ en
Friðrik telur að í raun
hafi það komið svipað
út og í Evrópu.
Tíundarkerfið lagð-
ist ekki strax af þó
að tekjuskattur
væri lagður á, en
var afnumið í
áföngum á ár-
unum 1877 til
1914.
Var við lýði
í um 800 ár
GAMLA TÍUNDARKERFIÐ
Skálholtskirkja
Friðrik G.
Olgeirsson
fjalla um það að koma á tekjuskatts-
kerfinu hafi menn viljað vera var-
kárir. „Þetta voru menn sem eru
þjóðþekktir í dag, eins og Grímur
Thomsen og Jón Hjaltalín land-
læknir og margir aðrir, en þeim
þótti þetta ægilegt og óttuðust
mikla skattpíningu.“ Raunin
hefði hins vegar verið önnur.
„Þetta óx mörgum hins vegar í
augum, því að skattheimtan
hafði verið svo lítil áður. Til
www.volkswagen.is
Snjall-Transporter kostar aðeins frá
4.490.000 kr.
(3.577.689 kr. án vsk)
Volkswagen Transporter
Snjallari kynslóð atvinnubíla
Atvinnubílar
Söluaðilar: HEKLA Reykjavík · Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
VW SNJALL-BÍLL
Þær eru orðnar nokkuð margar, kynslóðirnar af atvinnurekendum sem hafa treyst á
Volkswagen-bíla við störf sín. Volkswagen Transporter er fimmta kynslóð sendibíla sem
rekja ættir sínar til Volkswagen T1, „rúgbrauðsins“ sígilda.
Það er því löng hefð fyrir því að líta á Volkswagen Transporter sem snjallan kost þegar kemur að
því að velja atvinnubifreið og nú er valið snjallara en nokkru sinni fyrr. Með snjallsímanum þínum
getur þú til dæmis stjórnað tíma- og fjarstýrt olíumiðstöðinni og tryggt þér hlýja og notalega
byrjun á vinnudeginum. Transporter er því ekki bara traustur vinnufélagi – hann vinnur einnig vel
með símanum þínum.
Staðalbúnaður í Transporter
• Rennihurðir á báðum hliðum
• 16“ stálfelgur og heilkoppar
• Lokað skilrúm með glugga
• Fullkomin stöðugleikastýring og spólvörn
• Bekkur fyrir 2 farþega
• Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
(aftengjanlegur farþegamegin)
• Útvarp með geislaspilara
• Tengi fyrir MP3 spilara
• Klukka
• Fullkomin aksturstölva
• Glasahaldari
• Fjarstýrðar samlæsingar
• Rafstýrðir upphitaðir hliðarspeglar
• Hæðarstillanlegt öryggisbelti
• Velti- og aðdráttarstýri
• Hæðarstillanlegt ökumannssæti með 2 armpúðum
• Viðarklæðning í lofti og hliðum flutningsrýmis
Aukabúnaður
Snjall-Transporter
• Þráðlaust símkerfi
• Fjarlægðaskynjarar að aftan
• Tveir fjarstýringalyklar
• Þjóvavörn
• Viðarklæðning á gófi
flutningsrýmis
• Hraðastillir (Cruise control)
• Fjarstýrð Webasto olíumiðstöð