Morgunblaðið - 22.03.2014, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MARS 2014
Hluthafafundur Arion banka sam-
þykkti á fimmtudaginn tillögu stjórn-
ar um 7,8 milljarða króna arðgreiðslu
til hluthafa vegna ársins 2013. Arð-
greiðslan nemur 60% af hagnaði
bankans á síðasta rekstrarári.
Monica Caneman, stjórnarformað-
ur bankans, vék í ávarpi sínu á hlut-
hafafundinum að orðræðu og verkum
stjórnvalda undanfarin misseri sem
hún taldi ekki auka tiltrú innlendra
og erlendra aðila á íslensku efna-
hagslífi. Í því sambandi nefndi hún
sérstaklega hækkun bankaskatts,
sem tengdur er skuldum en ekki
tekjum eða afkomu. Skapa þyrfti
meiri stöðugleika um starfsemi fjár-
málastofnana ef þær ættu að geta
eflst og stutt við íslenskt atvinnulíf.
Varðandi lagaumhverfi íslenskra
fjármálafyrirtækja er mikilvægt að
mati Monicu Caneman að horfa til
nágrannaríkja og annarra Evrópu-
landa og byggja á þeirri reynslu sem
þar hefur skapast.
Í máli Höskuldar H. Ólafssonar
bankastjóra kom fram að ný útlán
Arion banka á síðasta ári námu 120
milljörðum króna og jukust um 60%.
Taldi Höskuldur 9,2% arðsemi á eig-
in fé bankans á síðasta ári vera við-
unandi, sérstaklega í ljósi stórhækk-
aðs bankaskatts. Þá hefðu fjölbreytni
og gæði aukist í fjármögnun bank-
ans, annars vegar með útgáfu nýrra
skuldabréfa hér á landi og erlendis,
og hins vegar með aukinni bindingu
innlána. Minni áhætta vegna hærra
hlutfalls einstaklingslána og aukinna
gæða í fjármögnun endurspeglist í
lægri vaxtamun, sem hann var 2,9% á
árinu.
Fjórar konur í stjórn
Í stjórn Arion banka voru kjörin,
auk Monicu Caneman, þau Benedikt
Olgeirsson, Björgvin Skúli Sigurðs-
son, Guðrún Johnsen, Kristín Þ. Fly-
genring, Måns Höglund, og Þóra
Hallgrímsdóttir. Kristín kemur ný
inn í aðalstjórn en hún er fulltrúi
Bankasýslu ríkisins í stjórninni, sem
fer með 13% hlut íslenska ríkisins í
bankanum. Aðrir stjórnarmenn eru
tilnefndir af Kaupskilum, sem fer
með 87% hlut kröfuhafa Kaupþings.
Mogunblaðið / Styrmir Kári
Aðalfundur Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka segir hærra
hlutfall einstaklingslána og betri fjármögnun hafa dregið úr vaxtamun.
Arður hjá Arion
7,8 milljarðar
Hluthafar fá 60% hagnaðar 2013
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Ölgerð Egils Skallagrímssonar var
krafin af embætti ríkisskattstjóra í
síðastliðnum desember um að greiða
endurálagningu tekjuskatts vegna öf-
ugs samruna árið 2007 að fjárhæð
tæplega 583 milljónir króna. Það er
um þriðjungur af bókfærðu eigin fé
fyrirtækisins á síðasta fjárhagsári.
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri
Ölgerðinnar, staðfestir þetta í samtali
við Morgunblaðið. Hefur fyrirtækið
þegar greitt endurálagninguna.
„Þessi ákvörðun kemur okkur í opna
skjöldu og við munum mótmæla
henni af fullum þunga. Að okkar mati
þá stendur ekki steinn yfir steini í
röksemdum embættis ríkisskatt-
stjóra,“ segir Andri. Hafa stjórnend-
ur Ölgerðarinnar kært úrskurðinn til
yfirskattanefndar.
Aðspurður segist Andri hins vegar
ekki vilja tjá sig nánar um röksemdir
ríkisskattstjóra né heldur hvaða áhrif
– að því gefnu að úrskurðurinn standi
– þetta muni hafa fyrir fjárhagsstöðu
Ölgerðarinnar. Þarf fyrirtækið einnig
að greiða 25% álag samkvæmt
ákvörðun ríkisskattstjóra.
Eigendaskipti urðu að Ölgerðinni í
ársbyrjun 2007 þegar Andri og Októ
Einarsson, núverandi stjórnarfor-
maður, eignuðust 69% hlut í fyrirtæk-
inu í gegnum OA-eignarhaldsfélag.
Kaupin voru gerð með skuldsettri yf-
irtöku sem þýðir að eignarhaldsfélag
tekur lán til kaupa á fyrirtæki og sam-
einar það eignarhaldsfélaginu með
eignum og skuldum. Fyrirtækið fjár-
magnar því kaupin á sjálfu sér að
stórum hluta.
Hæstiréttur staðfesti sl. sumar, í
svonefndum Toyota-dómi, að vaxta-
kostnaður vegna öfugs samruna fyr-
irtækja væri ekki frádráttarbær frá
skatti. Að mati skattasérfræðinga var
sá dómur skýr um að öfugur samruni
félags í kjölfar kaupa á félagi, sem var
augljóslega stofnað til að kaupa það
tiltekna félag, væri heimill. Hins veg-
ar væri ekki heimilt að nota vaxta-
gjöldin af lánum, sem voru tekin til að
kaupa dótturfélagið, til frádráttar
skattaskilum sameinaða félagsins. Al-
exander Eðvardsson, forstöðumaður
skattasviðs KPMG, sagði í samtali við
Morgunblaðið sl. desember að ef
hægt væri að sýna fram á að samrun-
inn fæli í sér rekstrarlegan tilgang og
næði fram samlegðaráhrifum þá væri
ekki víst að dómur Hæstaréttar ætti
við.
Sjóður Auðar á 45% hlut
Eignarhlutur félags Andra og Ok-
tós í Ölgerðinni er í dag 38%. Aðrir
eigendur eru eignarhaldsfélagið F-13,
en það er í eigu fjögurra millistjórn-
enda fyrirtækisins, og fjárfestinga-
sjóður í stýringu Auðar Capital sem
er stærsti einstaki hluthafinn með
45% hlut. Eignarhlutur stjórnenda
Ölgerðarinnar þynntist út 2010 þegar
félagið fór í gegnum fjárhagslega
endurskipulagningu og Auður Capi-
tal kom inn sem nýr hluthafi.
Fyrirtækið skilaði um 253 milljóna
króna hagnaði á fjárhagsárinu sem
lauk í febrúar 2013. Rekstrarhagnað-
ur jókst um 52 milljónir króna og nam
1.053 milljónum. Eignir voru 12,6
milljarðar en skuldir námu 10,9 millj-
örðum. Eigið fé Ölgerðarinnar er 1,76
milljarðar króna.
Ölgerðin greiðir um 600 milljónir
Ríkisskattstjóri gerði Ölgerðinni að greiða endurálagningu skatts vegna öfugs samruna 2007 að
fjárhæð 583 milljónir Forstjórinn segir ákvörðun ríkisskattstjóra koma stjórnendum í opna skjöldu
Ósáttur „Stendur ekki steinn yfir steini í röksemdum RSK,“ segir Andri.
Morgunblaðið/Ómar
Endurálagning skatta
» Öfugur samruni er þegar
eignarhaldsfélag tekur lán til
kaupa á fyrirtæki og sam-
einar það eignarhaldsfélaginu
með eignum og skuldum.
» Endurálagður skattur
vegna öfugs samruna 2008-
2013 nam ríflega fjórum
milljörðum
» Fengu 27 fyrirtæki endur-
álagðan tekjuskatt á tíma-
bilinu, þar af nítján í desem-
ber á síðasta ári.
» Af þeim hafa 20 greitt
endurálagninguna að fullu.